Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 21/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 21/2016

Fimmtudaginn 13. október 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 20. janúar 2016, kærir A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. desember 2015, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 300.950 kr.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun á tímabilinu 24. janúar 2015 til 31. október 2015. Við samkeyrslu við menntastofnanir í nóvember 2015 kom í ljós að kærandi var skráð í 20 ECTS eininga nám við Háskóla Íslands. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 25. nóvember 2015, var óskað eftir skýringum kæranda vegna þessa og bárust þær stofnuninni þann 26. nóvember 2015. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 8. desember 2015, var kæranda tilkynnt sú ákvörðun stofnunarinnar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar, með vísan til 52. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 300.950 kr. á grundvelli 39. gr. laganna.  

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 20. janúar 2016. Með bréfi, dags. 26. janúar 2016, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 8. mars 2016. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. mars 2016, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust frá kæranda með tölvupósti þann 7. apríl 2016.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að í kjölfar umsóknar um atvinnuleysisbætur hafi hún fengið þær upplýsingar að hún gæti stundað nám samhliða atvinnuleit ef hún myndi gera námssamning við Vinnumálastofnun. Kærandi hafi vanrækt að gera slíkan samning þar sem hún hafi ekki verið viss um hversu margar einingar hún myndi ráða við með starfi. Kærandi tekur fram að hún hafi ekki sinnt náminu mikið fyrr en í nóvember 2015 þar sem hún hafi verið upptekin við atvinnuleit. Þar sem bótaréttur kæranda hafi einungis verið 66% hafi henni fundist mikilvægt að komast í vinnu og fá meiri innkomu til að framfleyta fjölskyldu sinni. Kærandi bendir á að hún hafi reynt að skrá sig úr þeim námskeiðum sem hún hygðist ekki ljúka en það hafi verið orðið of seint.

Kærandi viðurkennir mistök sín varðandi námssamninginn og sættir sig við að bótaréttur hennar sé felldur niður. Kærandi telur hins vegar ósanngjarnt að hún þurfi að endurgreiða tveggja mánaða greiðslur atvinnuleysisbóta. Það að hún hafi fengið ofgreitt sé orðum ofaukið. Kærandi fer því fram á að endurgreiðslukrafa Vinnumálastofnunar verði felld niður.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Í c-lið 3. gr. laganna sé að finna skilgreiningu á námi og í 1. mgr. 52. gr. laganna komi fram að hver sá sem stundi nám, sbr. c-lið 3. gr., teljist ekki tryggður samkvæmt lögunum á sama tímabili enda sé námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar. Samkvæmt framangreindum lagaákvæðum sé meginreglan sú að námsmenn eigi ekki rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga meðan þeir leggi stund á nám sem ekki sé hluti af vinnumarkaðsaðgerð sem samþykkt sé af hálfu Vinnumálastofnunar, sbr. 52. gr. laga nr. 54/2006. Í 1. mgr. 52. gr. sé mælt fyrir um þá meginreglu að hver sá sem stundi nám sé ekki tryggður samkvæmt lögunum á meðan nám sé stundað. Mælt sé fyrir um undanþágur frá þessari meginreglu í 2. og 3. mgr. sömu greinar.

Samkvæmt upplýsingum frá Háskóla Íslands hafi kærandi verið skráð í 20 ECTS einingar á haustönn 2015. Samkvæmt þröngri undanþágureglu 3. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 sé Vinnumálastofnun heimilt að gera námssamning við atvinnuleitendur. Vinnumálastofnun sé að hámarki heimilt að samþykkja undanþágu fyrir námi upp að 20 ECTS einingum þegar sérstaklega standi á. Vinnumálastofnun tekur fram að það hafi ekki úrslitaáhrif á niðurstöðu í málinu hvort kærandi hafi verið skráð í 12 eða 20 ECTS eininga nám á haustönn 2015. Kærandi hafi hvorki sýnt fram á að sérstakar ástæður eigi við í máli hennar né að undanþáguregla 3. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 eigi við um hennar aðstæður. Þá sé ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði þess að gera námssamning við Vinnumálastofnun. Til að geta stundað háskólanám samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur þurfi atvinnuleitandi að óska eftir námssamningi áður en nám hefjist. Nám þurfi að teljast hluti af vinnumarkaðsaðgerðum samkvæmt ákvörðun stofnunarinnar og námið þurfi að nýtast atvinnuleitanda beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Þá skuli atvinnuleitandi leggja fram staðfestingu frá skóla um námshlutfallið áður en til greina komi að gera námssamning vegna náms atvinnuleitanda. Þar sem kærandi uppfylli ekki skilyrði undanþágureglna 2. og 3. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 eigi meginregla 1. mgr. 52. gr. við í máli hennar. Kærandi sé því ekki tryggð samkvæmt lögunum á sama tímabili og nám kæranda vari.

Vinnumálastofnun bendir á að kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um nám sitt. Upplýsingar um nám kæranda hefðu fyrst komið fram við eftirlit hjá stofnuninni. Ekki verði fallist á að afleiðing þess að láta hjá líða að tilkynna um atvik sem hafi veruleg áhrif á rétt til atvinnuleysisbóta séu að stofnunin geri afturvirkan námssamning við atvinnuleitanda. Eftirlitsaðgerðum Vinnumálastofnunar verði ekki jafnað við samráð atvinnuleitanda við stofnunina um gerð námssamnings.

Vinnumálastofnun tekur fram að innheimta ofgreiddra atvinnuleysisbóta sé byggð á 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Samkvæmt ákvæðinu sé Vinnumálastofnun skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og innheimta þær atvinnuleysisbætur sem ofgreiddar hafi verið. Útistandandi skuld kæranda vegna þess tímabils sem hún hafi þegið greiðslur atvinnuleysistryggingar samhliða námi sínu nemi 261.696 kr. Að viðbættu 15% álagi nemi heildarskuld kæranda 300.950 kr. Kæranda beri að endurgreiða skuldina samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki átt rétt á atvinnuleysisbótum þann tíma sem hún hafi stundað nám á haustönn 2015 og að henni beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar fyrir tímabilið 1. september 2015 til 31. október 2015.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 300.950 kr.

Í IX. kafla laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tilvik er leiða til takmörkunar á atvinnuleysistryggingum. Í 52. gr. laganna er fjallað um nám; þar segir:

Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar.

Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á háskólastigi sem nemur að hámarki 10 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.

Í c-lið 3. gr. laganna er að finna skilgreiningu á námi samkvæmt lögunum en þar segir:

Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.

Í athugasemdum við 52. gr. í frumvarpi því sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Þá kemur fram að það kunni að vera að nám sé nauðsynlegur hluti af starfshæfingu atvinnuleitanda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar en í slíkum tilvikum geti atvinnuleitandi talist tryggður samhliða námi.

Óumdeilt er að kærandi var skráð í 20 ECTS eininga nám við Háskóla Íslands á haustönn 2015 og að námið hafi ekki verið hluti af vinnumarkaðsaðgerð samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar. Að því virtu var kærandi ekki tryggð samkvæmt lögunum á þeim tíma. Þar sem ekki lá fyrir námssamningur milli kæranda og Vinnumálastofnunar uppfyllir kærandi ekki undanþáguákvæði 3. mgr. 52. gr. laganna.

Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Samkvæmt framangreindu er ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Því verður ekki fallist á kröfu kæranda um að ofgreiðslukrafa Vinnumálastofnunar verði felld niður.

Kemur þá til skoðunar hvort fella skuli niður álagið sem lagt var á ofgreiðslukröfuna. Í 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt viðkomandi samkvæmt lögunum. Ljóst er að kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki að hún væri skráð í nám haustið 2015 og verður því ekki fallist á að 15% álag á þá fjárhæð sem kæranda ber að endurgreiða verði fellt niður.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. desember 2015, í máli A um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 300.950 kr. er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum