Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 77/2016 Úrskurður 14. október 2016

Mál nr. 77/2016                     Eiginnafn: Neró

 


                                               

 

Hinn 14. október 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 77/2016 en erindið barst nefndinni 7. september.

 

Öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

1. mgr. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

2. mgr. Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

3. mgr. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Í þessu máli reynir hugsanlega á skilyrðið í 3. mgr. hér af ofan um að eiginnafn megi ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Neró er heiti alræmds rómversks keisara sem segir m.a. um á Vísindavefnum (http://www.visindavefur.is/svar.php?id=5266): „Í kjölfar eldsins hóf Neró ofsóknir á hendur kristnum mönnum í Rómaveldi. Af þeirri ástæðu hefur Neró fengið hörð eftirmæli og verið líkt við And-Krist.“ Það er hins vegar ólíklegt að nafnið hafi í nútímamáli jafn illt orð á sér og að fornu. Fjarlægur eða óviss möguleiki á því að nafn verði nafnbera til ama er ekki nóg til þess að hafna því. Eiginnafnið Neró verður því látið njóta vafans.

Eiginnafnið Neró (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Nerós, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Neró (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum