Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 80/2017 Úrskurður 22. desember 2017

Mál nr. 80/2017 Eiginnafn: Geimar

Hinn 22. desember 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 80/2017 en erindið barst nefndinni 20. desember.

Eiginnafnið Geimar (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Geimars og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Geimar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum