Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 70/2018 úrskurður 20. september 2018

Mál nr. 70/2018                    Millinafn:       Bell

 

 

 

Hinn 20. september 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 70/2018 en erindið barst nefndinni 22. ágúst.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslenskumáli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.

  • nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.

  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Millinafnið Bell er hvorki dregið af íslenskum orðstofni né hefur áunnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið uppfyllir þannig ekki skilyrði ákvæðis 6. gr. fyrrnefndra laga og því ekki unnt að fallast á það.

 

Úrskurðarorð:

Ekki er fallist á beiðni um millinafnið Bell.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum