Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 324/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 324/2016

Fimmtudaginn 27. október 2016

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 31. ágúst 2016, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Reykjavíkurbogar frá 29. júní 2016 á umsókn hennar um sérstakar húsaleigubætur.

I. Málavextir og málsmeðferð

Kærandi sótti um sérstakar húsaleigubætur hjá Reykjavíkurborg með umsókn, dags. 9. febrúar 2016. Með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 31. maí 2016, var umsókn kæranda synjað með þeim rökum að hún hafi ekki uppfyllt skilyrði d-liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík. Kærandi áfrýjaði synjuninni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 29. júní 2016 og staðfesti synjunina.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 31. ágúst 2016. Með bréfi, dags. 2. september 2016, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar þar sem meðal annars kæmi fram rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 15. september 2016. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 19. september 2016, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II. Málsástæður kæranda

Kærandi gerir ekki kröfur í málinu en ráða má af kæru að hún krefjist þess að ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja henni um sérstakar húsaleigubætur verði felld úr gildi.

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda. Vísað er til þess að í 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur séu sett fram tiltekin skilyrði sem uppfylla þurfi til að umsókn um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur taki gildi. Í d-lið sé kveðið á um að umsækjandi þurfi að skora að lágmarki fjögur stig vegna félagslegra aðstæðna sinna, tvö stig vegna húsnæðisaðstöðu og tvö vegna félagslegs vanda eða sérstakra aðstæðna barna. Kærandi hafi ekki fengið nein stig vegna húsnæðisstöðu þar sem hún sé búsett í öruggu húsnæði. Því hafi verið metið svo að kærandi væri hvorki í þörf fyrir húsnæði né að húsnæðisaðstæður hennar væru verulega erfiðar. Skilyrði d-liðar 4. gr. reglnanna hafi því ekki verið uppfyllt þar sem lágmarksstigafjölda vegna félagslegra aðstæðna hafi ekki verið náð.

Með hliðsjón af öllu framansögðu hafi það verið mat velferðarráðs að synja bæri umsókn kæranda þar sem skilyrði d-liðar 4. gr. reglnanna hafi ekki verið uppfyllt og ekki talið unnt að veita kæranda undanþágu frá skilyrðum reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík. Sú ákvörðun hafi hvorki brotið gegn framangreindum reglum né lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

IV. Niðurstaða

Í máli þessu er ágreiningur um hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um sérstakar húsaleigubætur.

Í 3. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík kemur fram að sérstakar húsaleigubætur séu ætlaðar þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar og annarra félagslegra erfiðleika. Í 4. gr. reglnanna er að finna skilyrði fyrir því að umsókn verði metin gild og þarf umsækjandi að uppfylla öll skilyrði sem fram koma í a–e-liðum 1. mgr. ákvæðisins.

Í d-lið 4. gr. framangreindra reglna Reykjavíkurborgar er gert að skilyrði að umsækjandi skori að lágmarki fjögur stig vegna félagslegra aðstæðna sinna, þ.e. tvö stig vegna húsnæðisstöðu og tvö stig vegna félagslegs vanda eða sérstakra aðstæðna barna, sbr. matsviðmið sem fylgir reglunum. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi ekki metinn til stiga vegna húsnæðisstöðu þar sem talið var að hún væri hvorki í þörf fyrir húsnæði né að húsnæðisaðstæður hennar væru verulega erfiðar. Í lið 5 a í matsviðmiði sem fylgir reglunum kemur fram að veitt sé eitt stig ef umsækjandi þurfi á húsnæði að halda, tvö stig ef húsnæðisaðstæður séu verulega erfiðar og þrjú stig ef vart sé mögulegt að bíða eftir húsnæði. Fyrir liggur að kærandi er með ótímabundinn húsaleigusamning og hagstæða leigu miðað við stærð húsnæðis. Verður því hvorki séð að húsnæðismissir sé yfirvofandi né að um óöruggt húsnæði sé að ræða. Úrskurðarnefndin telur því ekki ástæðu til að gera athugasemd við það að húsnæðisaðstæður kæranda hafi ekki verið metnar til stiga, enda verður að telja ljóst að kærandi búi í öruggu leiguhúsnæði.

Í 5. gr. reglnanna er kveðið á um undanþágur frá skilyrðum 4. gr. um lögheimili og/eða tekjuviðmið en ekki er kveðið á um undanþágu frá viðmiðum um stig vegna húsnæðisstöðu eða félagslegs vanda. Þar sem kærandi uppfyllir ekki skilyrði d-liðar 4. gr. reglnanna er það mat úrskurðarnefndarinnar að undanþáguákvæði 5. gr. komi ekki til skoðunar í málinu. Það er því niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, frá 29. júní 2016, um synjun á umsókn A, um sérstakar húsaleigubætur er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum