Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 360/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 360/2016

Fimmtudaginn 27. október 2016

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 15. september 2016, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála, synjun Reykjavíkurborgar, dags. 15. ágúst 2016, á umsókn hennar um styrk að fjárhæð 113.000 kr. á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 14. júní 2016, sótti kærandi um styrk hjá Reykjavíkurborg að fjárhæð 113.000 kr. á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg til greiðslu tannlæknakostnaðar. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 22. júní 2016, með þeim rökum að umsóknin samræmdist ekki reglum Reykjavíkurborgar. Kærandi áfrýjaði niðurstöðunni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 15. ágúst 2016 og staðfesti synjunina.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 19. september 2016. Með bréfi, dags. 21. september 2016, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar þar sem meðal annars kæmi fram rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 26. september 2016. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 28. september 2016, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II. Málsástæður kæranda

Kærandi óskar eftir að ákvörðun Reykjavíkurborgar um synjun á umsókn hennar um styrk til tannviðgerða verði tekin til endurskoðunar.

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda. Tekið er fram að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg, en öll skilyrði ákvæðisins þurfi að vera uppfyllt svo heimilt sé að veita lán eða styrk vegna mikilla fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna. Kærandi hafi einungis uppfyllt skilyrði b-liðar 24. gr. reglnanna. Reykjavíkurborg bendir á að kærandi hafi sótt um styrk til að greiða lán til systur sinnar, en samkvæmt 3. mgr. 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð sé ekki heimilt að veita styrk eða lán til greiðslu skulda við einkaaðila. Með hliðsjón af framansögðu hafi það verið mat velferðarráðs að skilyrði 24. gr. reglnanna væru ekki uppfyllt og því hafi synjun um styrk verið staðfest.

IV. Niðurstaða

Í máli þessu er ágreiningur um hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um styrk að fjárhæð 113.000 kr. á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um aðstoð vegna sérstakra erfiðleika. Samkvæmt því er heimilt að veita einstaklingum, hjónum eða sambúðarfólki lán eða styrk vegna mikilla fjárhagslegra og félagslegra erfiðleika, að uppfylltum öllum neðangreindum skilyrðum:

  1. umsækjandi hafi fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum undanfarna sex mánuði eða lengur,

  2. staðfest sé að umsækjandi hafi ekki aðgang að lánafyrirgreiðslu banka, sparisjóða eða annarra lánastofnana,

  3. fyrir liggi yfirlit starfsmanns þjónustumiðstöðvar eða Umboðsmanns skuldara um fjárhagsstöðu umsækjanda og tillögur að úrbótum þegar við á,

  4. fyrir liggi á hvern hátt lán eða styrkur muni breyta skuldastöðu umsækjanda til hins betra þegar til lengri tíma er litið,

  5. fyrir liggi samkomulag um félagslega ráðgjöf og/eða fjármálaráðgjöf þegar það á við.

Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki notið fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu frá Reykjavíkurborg síðastliðna sex mánuði eða lengur þegar umsókn barst Reykjavíkurborg. Þegar af þeirri ástæðu átti kærandi ekki rétt á styrk vegna sérstakra erfiðleika á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 15. ágúst 2016, um synjun á umsókn A, um styrk að fjárhæð 113.000 kr. á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum