Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 38/2018 Úrskurður 26. júní 2018

Mál nr. 38/2018                    Millinafn:       Levi

 

 

 

Hinn 26. júní 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 38/2018 en erindið barst nefndinni 5. júní.

Samkvæmt  2. mgr. 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, skal millinafn dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu. Millinafnið Levi er ekki dregið af íslenskum orðstofni, hefur nefnifallsendingu og hefur ekki unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið uppfyllir því ekki skilyrði laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Levi er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum