Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 9/2013.

Kærunefnd barnaverndarmála

Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík

 

 

Miðvikudaginn 21. ágúst 2013 var á fundi kærunefndar barnaverndarmála tekið fyrir mál nr. 9/2013, Björn Samúelsson gegn barnaverndarnefnd Húnaþings vestra og héraðsnefndar Strandasýslu. Málið varðar tilkynningu til barnaverndarnefndar undir nafnleynd vegna sonar kæranda, A. Upp var kveðinn svofelldur

 

 

 

Ú R S K U R Ð U R:

 

Með bréfi 20. maí 2013 kærði Leifur Runólfsson hdl., fyrir hönd B, ákvörðun barnaverndarnefndar Húnaþings vestra og héraðsnefndar Strandasýslu frá 18. apríl 2013. Með ákvörðuninni var ákveðið að hafna beiðni um að aflétt yrði nafnleynd vegna barnaverndartilkynningar sem varðaði son kæranda, A.

 

Kærandi krefst þess að nafnleyndinni verði aflétt.

 

Af hálfu barnaverndarnefnar Húnaþings vestra og héraðsnefndar Strandasýslu er bent á að virða beri ósk tilkynnanda um nafnleynd með vísan til 19. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002.

 

 

I

Helstu málavextir

 

Félagsmálastjóra Stranda- og Reykhólahrepps barst tilkynning undir nafnleynd varðandi drenginn A 14. mars 2013. Í tilkynningunni kom fram að drengurinn byggi við andlegt og tilfinningalegt ofbeldi á heimili sínu. Talað væri með niðurlægjandi hætti til hans og hann kallaður nöfnum. Foreldrar hans segi við hann að hann borði of mikið og sé feitur. Enn fremur hafi hann verið spurður hvort hann væri aumingi.

 

Í kjölfar þessa kannaði félagsmálastjóri málið með því að ræða við drenginn, M systur hans, foreldra hans, auk þess að senda skriflegar fyrirspurnir til grunnskólans á D og heilsugæslu. Drengurinn sagði að sér liði ekki vel á heimilinu, þar sem móðir hans væri oft svo reið og að M systir hans væri ekki góð við hann. Þá væri iðulega ósætti milli systur hans og móður þeirra. M, systir drengsins, kvað samskipti sín við móður sína ekki vera góð. Í læknisvottorði Þórðar Ingólfssonar heilsugæslulæknis 5. apríl 2013 kemur ekki annað fram en að líðan drengsins og þroski sé eðlilegur og enn fremur umhirða hans og aðbúnaður. Þá hafi samskipti læknisins og annarra starfsmanna heilsugæslunnar við foreldra drengsins verið eðlileg. Í bréfi D 2. apríl 2013 kemur fram að A gangi vel í skólanum, námslega og nokkuð vel félagslega. Örlað hafi á því að honum hafi verið strítt vegna holdafars en það hafi verið rætt á bekkjarfundum.

 

Með bréfi félagsmálastjóra til foreldra A 10. apríl 2013 var tilkynnt um lokun málsins þar sem könnun þess hafi ekkert leitt í ljós er ýtti undir efni barnaverndartilkynningarinnar og því hafi ekki verið talin þörf á frekari afskiptum á grundvelli barnaverndarlaga vegna tilkynningarinnar.

 

Fram kemur að barnaverndarnefnd Húnaþings vestra og héraðsnefndar Strandasýslu hafi staðfest ákvörðun félagsmálastjórans á fundi sínum 11. júní 2013.

 

 

II

Sjónarmið kæranda

 

Af hálfu kæranda kemur fram að hann telji allar líkur á að tilkynnandi hafi vísvitandi komið á framfæri rangri tilkynningu. Það geti ýmsar ástæður legið að baki slíku. Kærandi búi í litlu sveitarfélagi. Hann standi nú í málarekstri fyrir dómstólum við sveitunga sinn vegna deilna um landamerki milli tveggja jarða. Kærandi hafi einnig verið óhræddur við að tjá skoðanir sínar, svo sem stjórnmálaskoðanir.

Bent er á að sé tilkynning til stjórnvalds röng í meginatriðum þá geti það verið refsivert skv. XV. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Samkvæmt bréfi félagsmálastjórans hafi könnunin ekki leitt neitt í ljós sem ýtt gæti undir efni tilkynningarinnar. Megi því ætla að um hafi verið að ræða ranga tilkynningu í meginatriðum frá tilkynnanda. Því sé nauðsynlegt fyrir kæranda að fá það á hreint hver beri ábyrgð á tilkynningunni, svo að hann geti ákveðið hvort tilefni sé til að kæra hina röngu tilkynningu til lögreglu. Því sé farið fram á að nafnleynd verði aflétt hið fyrsta, enda hafi tilkynningin ekki átt við nein rök að styðjast.

 

 

III

Sjónarmið barnaverndarnefndar Húnaþings vestra og héraðsnefndar Strandasýslu

 

Af hálfu barnaverndarnefndar Húnaþings vestra og héraðsnefndar Strandasýslu kemur fram að 14. mars 2013 hafi félagsmálastjóra Stranda- og Reykhólahrepps borist tilkynning undir nafnleynd, sbr. 16. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002, varðandi A. Snerist tilkynningin um það að drengurinn byggi við andlegt og tilfinningalegt ofbeldi á heimili sínu. Félagsmálastjóri hafi hafið könnun málsins en niðurstaða könnunarinnar hafi ekki skilað neinum haldbærum sönnunum fyrir því að meint andlegt eða tilfinningalegt ofbeldi gagnvart drengnum hafi átt sér stað, en ljóst væri að samskiptavandi væri á heimilinu milli móður og 18 ára systur drengsins. Þessi vandi ylli drengnum mikilli vanlíðan og áhyggjum. Málinu hafi því verið lokað af hálfu barnaverndaryfirvalda og bréf sent foreldrum þess efnis 10. apríl 2013.

 

Barnaverndarnefndinni hafi borist bréf frá lögmanni B, Leifi Runólfssyni hdl., með beiðni um afléttingu á nafnleynd vegna tilkynningarinnar. Bent hafi verið á að slíkt væri ekki gert með vísan til 19. gr. barnaverndarlaga og beiðninni því hafnað. Barnaverndarnefnd Húnaþings vestra og héraðsnefndar Strandasýslu hafi á fundi sínum 11. júní 2013 staðfest ákvörðun félagsmálastjórans.


 

 

IV

Niðurstaða

 

Í kærunni er skorað á kærunefnd barnaverndarmála að leggja fram staðfestingu frá Barnaverndarstofu sem sýni að félagsmálastjórinn hafi haft heimild til að taka ákvörðun um að aflétta nafnleynd. Í gögnum þessa máls kemur fram að barnaverndarnefnd Húnaþings vestra og héraðsnefndar Strandasýslu staðfesti ákvörðun félagsmálastjórans á fundi sínum 11. júní 2013. Verður með vísan til þessa ekki talin þörf á að fjalla frekar um framangreinda kröfu kæranda.

 

Í 1. mgr. 16. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002, er kveðið á um tilkynningarskyldu almennings. Þar segir að hverjum þeim sem hafi ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir áreitni eða ofbeldi, eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu sé skylt að tilkynna það barnaverndarnefnd. Um tilkynningarskyldu þeirra sem sinna börnum vegna stöðu sinnar eða starfa er hins vegar fjallað í 17. og 18. gr. laganna.

 

Í 2. mgr. 19. gr. barnaverndarlaga kemur fram sú meginregla að óski tilkynnandi samkvæmt 16. gr. eftir nafnleynd gagnvart öðrum en barnaverndarnefnd skuli það virt nema sérstakar ástæður mæli gegn því.

 

Samkvæmt því sem hér hefur verið rakið gildir sú meginregla að allir þeir sem beina tilkynningu til barnaverndarnefndar njóta nafnleyndar, ef eftir því er óskað, nema þeir sem sinna börnum vegna starfa sinna og taldir eru upp í 17. og 18. gr. laganna. Þetta á því við um allan almenning án þess að undanskildir séu þeir sem eru venslaðir eða tengdir barni. Í athugasemdum við 19. gr. í greinargerð sem fylgdi frumvarpi til barnaverndarlaga er því nánar lýst að tvö sjónarmið vegist á varðandi nafnleynd tilkynnanda. Annars vegar komi til skoðunar sjónarmið um réttláta málsmeðferð, þar sem upplýsingar um hver hafi tilkynnt um ófullnægjandi aðbúnað barns geti skipt máli svo andmælaréttur þess sem tilkynning beinist að verði virtur. Hins vegar komi til skoðunar sjónarmiðið um virkni og árangur í barnaverndarstarfi þar sem síður megi gera ráð fyrir að tilkynningar berist ef nafnleynd er ekki virt. Var síðarnefnda sjónarmiðið lagt til grundvallar í núgildandi barnaverndarlögum, þó þannig að unnt er að aflétta nafnleynd tilkynnanda ef sérstakar ástæður mæla gegn því að hún verði virt.

 

Þegar tilkynning berst barnaverndaryfirvöldum um grun um óviðunandi aðstæður barns hvílir sú skylda á barnaverndarnefnd að hefja könnun máls og komast til botns í því hvort sá grunur sé á rökum reistur. Könnun í máli því sem hér er til meðferðar hjá barnaverndarnefnd Húnaþings vestra og héraðsnefndar Strandasýslu hófst í kjölfar tilkynningar er barst um andlegt og tilfinningalegt ofbeldi gagnvart syni kæranda sem hann yrði fyrir á heimili sínu. Rætt var við þá sem taldir voru geta varpað ljósi á málið og enn fremur var aflað upplýsinga hjá D og heilsugæslu um drenginn. Þótt könnun hafi lokið án þess að taka þyrfti ákvörðun um sérstök úrræði samkvæmt barnaverndarlögum verður slíkt ekki talið til marks um það að tilkynningin sem barst barnaverndinni hafi verið byggð á því að tilkynnandi hafi með henni komið á framfæri vísvitandi röngum eða villandi upplýsingum.

 

Í athugasemdum kæranda 20. júlí 2013 er vísað til þess að barnaverndarnefndin hafi ekki gert grein fyrir ástæðum þess að nauðsynlegt hafi verið að viðhalda nafnleyndinni. Í hinni kærðu ákvörðun félagsmálastjóra Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps sem staðfest var af barnaverndarnefnd Húnaþings vestra og héraðsnefndar Strandasýslu kemur ekki fram viðhlítandi rökstuðningur fyrir mati á því að ekki væru sérstakar ástæður fyrir hendi til að aflétta nafnleyndinni. Í 22. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, er fjallað um efni rökstuðnings ákvarðana stjórnvalda. Samkvæmt 1. mgr. lagagreinarinnar ber í rökstuðningi fyrir ákvörðun að greina frá þeim meginsjónarmiðum sem ráðandi voru við mat stjórnvaldsins. Þar sem þessa hefur ekki verið gætt af hálfu barnaverndarnefndarinnar ber að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun og vísa málinu til nýrrar meðferðar barnaverndarnefndar Húnaþings vestra og héraðsnefndar Strandasýslu skv. 4. mgr. 51. gr. barnaverndarlaga.

 


 

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun barnaverndarnefndar Húnaþings vestra og héraðsnefndar Strandasýslu þess efnis að synja kröfu B um að aflétta nafnleynd tilkynnanda vegna sonar hans, A, er felld úr gildi og er málinu vísað til barnaverndarnefndarinnar til meðferðar að nýju.

 

Sigríður Ingvarsdóttir,

formaður

 

 

Guðfinna Eydal                     Jón R. Kristinsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum