Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 87/2016 Úrskurður 28. október 2016

Mál nr. 87/2016                     Eiginnafn:      Reynarð

 

Hinn 28. október 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 87/2016 en erindið barst nefndinni 19. október:

Eiginnafnið Reynarð (nefnifall) er án þeirrar endingar sem hefðbundið væri í íslensku að gefa sambærilegum nöfnum, sbr. Geirarður, en til samanburðar má vísa í fjölda eiginnafna á þessarar endingar, s.s. Eðvarð, Nývarð, Bernharð, Ríkharð og Vernharð.

 

Eiginnafnið Reynarð (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Reynarðs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Reynarð (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum