Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 5/2015

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 5/2015

Miðvikudaginn 6. apríl 2016

A

gegn

umboðsmanni skuldara

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Lára Sverrisdóttir formaður, Sigríður Ingvarsdóttir og Þórhildur Líndal.

Þann 1. janúar 2016 tóku gildi lög nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála og tók nefndin yfir frá þeim tíma þau mál sem áður voru til meðferðar hjá kærunefnd greiðsluaðlögunarmála, þ.m.t. mál kæranda, sbr. 1. gr. laga 85/2015 og 32. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga (lge.).

Þann 28. janúar 2015 barst kærunefnd greiðsluaðlögunarmála kæra A. Kærð var ákvörðun umboðsmanns skuldara sem tilkynnt var með bréfi 12. janúar 2015 þar sem greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda voru felldar niður

Með bréfi 9. febrúar 2015 óskaði kærunefnd greiðsluaðlögunarmála eftir greinargerð umboðsmanns skuldara sem barst með bréfi 10. apríl 2015.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi 30. apríl 2015 og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Athugasemdir bárust frá kæranda með bréfi 13. maí 2015. Voru þær sendar Embætti umboðsmanns skuldara með bréfi 22. maí 2015 og óskað eftir afstöðu embættisins. Umboðsmaður taldi ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna málsins.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi er fædd 1942. Hún býr ásamt dóttur sinni og barnabörnum í eigin fasteign, sem er 266,6 fermetra raðhús að B. Raðhúsið er að jöfnu í eigu kæranda og dóttur hennar en þær hafa báðar óskað greiðsluaðlögunar.

Kærandi er ellilífeyrisþegi. Í tekjur hefur hún greiðslur frá Tryggingastofnun og lífeyrissjóði.

Heildarskuldir kæranda samkvæmt skuldayfirliti umboðsmanns skuldara 18. febrúar 2013 eru 48.609.778 krónur. Meginhluti skuldanna er frá árinu 2006 og er til kominn vegna fasteignakaupa.

Að mati kæranda má rekja fjárhagserfiðleika hennar til hækkandi afborgana lána og lægri tekna.

Kærandi lagði fram umsókn um heimild til að leita greiðsluaðlögunar 28. október 2012. Með ákvörðun umboðsmanns skuldara 18. febrúar 2013 var kæranda veitt heimild til greiðsluaðlögunar og umsjónarmaður skipaður með greiðsluaðlögunarumleitunum hennar. Í fylgiskjali með ákvörðun umboðsmanns var upplýst um skyldur skuldara við greiðsluaðlögun samkvæmt 12. gr. laga um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010 (lge.).

Með bréfi umsjónarmanns til umboðsmanns skuldara 30. október 2014 var lagt til að greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda yrðu felldar niður. Í bréfinu kom fram að umsjónarmaður hefði meðal annars óskað eftir upplýsingum um hvað kærandi hefði lagt til hliðar á tímabili frestunar greiðslna, svokallaðs greiðsluskjóls. Dóttir kæranda hafi svarað erindinu og þar komi fram að kærandi hefði ekkert getað lagt til hliðar á tímabilinu. Hvorki skýringar né gögn hafi fylgt þeim upplýsingum. Að mati umsjónarmanns hefði kærandi átt að geta lagt fyrir 1.016.542 krónur. Kæranda hafi því verið send ný fyrirspurn og hún beðin um að skýra af hverju sú fjárhæð var ekki lögð til hliðar. Henni hafi jafnframt verið kynnt að ef engar skýringar bærust innan frests bæri umsjónarmanni að senda málið til umboðsmanns skuldara þar sem fyrirliggjandi upplýsingar bentu til þess að kærandi hefði ekki staðið við skyldur sínar samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. um að leggja fyrir í greiðsluskjóli. Dóttir kæranda hafi svarað fyrir hennar hönd og greint frá því að ýmiss kostnaður hefði fallið til hjá kæranda á tímabili greiðsluskjóls. Kærandi væri orðin léleg til heilsunnar og hefði þurft að leggja út í kostnað við læknisþjónustu, sjúkraþjálfun, nálarstungumeðferð og fleira. Einnig hefði kærandi þurft að láta gera við bifreið og ísskáp. Engin gögn hafi borist umsjónarmanni sem staðfestu þessar upplýsingar.

Umsjónarmaður hefði því talið að framkomnar skýringar væru þess eðlis að honum væri óheimilt að halda áfram vinnu við málið á grundvelli 1. mgr. 15. gr., sbr. a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge.

Með bréfi umboðsmanns skuldara til kæranda 21. nóvember 2014 var henni gefinn kostur á að láta álit sitt í ljós innan tilskilins frests og leggja fram frekari gögn áður en umboðsmaður skuldara tæki ákvörðun um hvort fella skyldi niður greiðsluaðlögunar­umleitanir kæranda, sbr. 1. mgr. 15. gr. lge. Í andmælum kæranda kom fram að hún hefði borið kostnað vegna lyfja, viðgerða o.fl. á tímabilinu en engin gögn voru lögð fram því til stuðnings.

Með bréfi til kæranda 12. janúar 2015 felldi umboðsmaður skuldara greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda niður með vísan til 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi óskar aðallega eftir því að heimild til greiðsluaðlögunar verði veitt. Til vara óskar kærandi eftir því að heimild til greiðsluaðlögunar íbúðarláns verði veitt.

Kærandi kveður sér hafa verið tilkynnt bæði bréfleiðis og í síma að hún ætti ekki að leggja fyrir á meðan mál hennar væri í vinnslu hjá umboðsmanni skuldara, enda hafi hún ekki haft svigrúm til þess. Kærandi hafi þurft að leggja út fyrir óvæntum kostnaði svo sem læknis-, lyfja- og viðgerðarkostnaði.

Fjárhæð íbúðarláns hafi margfaldast frá því að það var tekið. Að mati kæranda þyrfti að koma til leiðrétting á því þannig að mánaðarlegar afborganir yrðu leiðréttar og yrðu viðráðanlegar.

III. Sjónarmið umboðsmanns skuldara

Af hálfu umboðsmanns skuldara er vísað til þess að komi fram upplýsingar sem ætla megi að hindri að greiðsluaðlögun sé heimil á grundvelli lge. skuli umsjónarmaður tilkynna um það til umboðsmanns skuldara sem í kjölfarið taki afstöðu til málsins með rökstuddri ákvörðun, sbr. 1. mgr. 15. gr. lge. Skuldara skuli gefið tækifæri til að láta álit sitt í ljós áður en slík ákvörðun sé tekin. Í 12. gr. lge. sé fjallað um skyldur skuldara meðan hann njóti greiðsluskjóls. Samkvæmt a-lið 1. mgr. lagagreinarinnar skuli skuldari leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum sínum það fé sem sé umfram það sem hann þurfi til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða.

Upplýsingar um þetta hafi verið á heimasíðu embættisins. Þá hafi skriflegar leiðbeiningar um 12. gr. fylgt með ákvörðun umboðsmanns skuldara um samþykki til greiðsluaðlögunar 18. febrúar 2013 sem borist hafi kæranda með ábyrgðarbréfi. Að auki séu skyldur skuldara í greiðsluskjóli samkvæmt 12. gr. lge. ávallt útskýrðar og ítrekaðar á fyrsta fundi umsjónarmanns og skuldara. Kæranda hafi því mátt vera ljóst frá upphafi að henni bæri skylda til að leggja til hliðar þá fjármuni sem hún hefði aflögu í lok hvers mánaðar til greiðslu af skuldum sínum þegar kæmi að því að semja við kröfuhafa.

Í neðangreindum útreikningum sé miðað við að kærandi leggi fyrir mismun meðaltekna á mánuði og framfærslukostnaðar. Sé sú fjárhæð nefnd greiðslugeta kæranda.

Greiðsluskjól kæranda hafi staðið yfir í rúmlega 19 mánuði en miðað sé við tímabilið 1. mars 2013 til 31. október 2014. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi haft neðangreindar tekjur á tímabilinu í krónum:

Launatekjur 1. mars 2013 til 31. október 2014 að frádregnum skatti 3.748.825
Vaxtabætur 2013 og 2014 800.000
Samtals 4.548.825
Mánaðarlegar meðaltekjur 239.412
Framfærslukostnaður á mánuði 173.682
Greiðslugeta að meðaltali á mánuði 65.730
Samtals greiðslugeta í 19 mánuði 1.248.867

Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. lge. skuli umsjónarmaður notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setji. Sé umsjónarmanni almennt óheimilt að miða við annan framfærslukostnað en þann sem reiknaður hafi verið fyrir skuldara með tilliti til fjölskylduaðstæðna. Framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara byggist á hlutlægum viðmiðum um almenna framfærslu með tilliti til fjölskyldustærðar og taki mið af vísitölu. Að auki skuli lagt til grundvallar að við mat á því hvort skuldarar hafi sinnt skyldum sínum meðan á frestun greiðslna standi sé þeim jafnan játað nokkuð svigrúm til að mæta óvæntum útgjöldum í mánuði hverjum. Þá sé almennt tekið tillit til annarra útgjaldaliða sem fella megi undir almennan heimilisrekstur samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. séu lögð fram gögn þar um.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum megi ætla að mánaðarleg heildarútgjöld kæranda hafi verið um 173.682 krónur á mánuði á meðan hún hafi notið greiðsluskjóls. Miðað sé við nýjustu framfærsluviðmið kæranda í hag. Samkvæmt þessu sé miðað við framfærslukostnað nóvembermánaðar 2013 fyrir einstakling. Að þessu virtu sé gengið út frá því að kærandi hafi átt að geta lagt fyrir 1.248.867 krónur á fyrrnefndu tímabili. Kærandi kveðist hafa þurft að greiða óvænt útgjöld á tímabilinu en hafi ekki lagt fram nein gögn því til stuðnings. Hún hafi ekkert lagt til hliðar.

Á meðan á greiðsluskjóli standi skuli skuldari greiða tilfallandi mánaðarlegan framfærslukostnað svo sem rafmagn, hita, fasteignagjöld, samskiptakostnað og fleira þess háttar. Í fylgiskjölum með ákvörðun umboðsmanns skuldara um heimild kærenda til greiðsluaðlögunar sé að finna greiðsluáætlun um framfærslukostnað þeirra í hverjum mánuði þar sem gert sé ráð fyrir þessum kostnaði. Meðan á frestun annarra greiðslna standi sé skuldara ætlað að standa við gjöld og kostnað vegna framfærslu sé greiðslugeta hans jákvæð í mánuði hverjum, enda markmið með greiðsluaðlögun að koma jafnvægi á skuldir og greiðslugetu.

Gera verði þá kröfu til einstaklinga, sem glími við svo verulega fjárhagserfiðleika að íhlutunar sé þörf, að þeir dragi úr útgjöldum sem ætla megi að hægt sé að komast hjá eða fresta og sérstaklega á meðan þeir standi í greiðsluaðlögunarumleitunum vegna endurskipulagningar fjármála sinna. Skuldurum í greiðsluaðlögun séu settar ákveðnar skorður á ráðstöfun fjár í greiðsluskjóli. Þeim sé í fyrsta lagi skylt að leggja fyrir það fé sem sé umfram framfærslukostnað og í öðru lagi að ráðstafa ekki því fé sem gagnast gæti lánardrottnum sem greiðsla. Auk þess sé óheimilt að stofna til nýrra skulda á tímabilinu.

Að framangreindu virtu og með hliðsjón af gögnum málsins hafi ekki verið hjá því komist að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda samkvæmt 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Umboðsmaður skuldara fer fram á að hin kærða ákvörðun verði staðfest með vísan til forsendna sem fram komi í henni.

IV. Niðurstaða

Kærandi óskar aðallega eftir því að heimild til greiðsluaðlögunar verði veitt. Til vara óskar kærandi eftir því að heimild til greiðsluaðlögunar íbúðarláns verði veitt.

Með hinni kærðu ákvörðun felldi umboðsmaður skuldara niður greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda samkvæmt 15. gr. lge. en kæruheimild er í sömu lagagrein. Tímabil greiðsluaðlögunarumleitana stendur samkvæmt lagagreininni þar til niðurstaða úrskurðarnefndarinnar liggur fyrir. Af þessu leiðir að verði hin kærða ákvörðun felld úr gildi halda greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda áfram. Greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda falla hins vegar niður verði ákvörðun umboðsmanns skuldara staðfest. Kemur því aðeins til þess að greiðsluaðlögunarumleitanir haldi áfram verði úrskurðarnefndin við kröfum kæranda um að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi. Kröfur kæranda þess efnis að heimild til greiðsluaðlögunar verði veitt eða til vara að heimild til greiðsluaðlögunar íbúðarláns verði veitt, koma því ekki til skoðunar eins og málið liggur fyrir. Samkvæmt framansögðu verður að skilja kröfugerð kæranda svo að hún krefjist þess að ákvörðun umboðsmanns skuldara verði felld úr gildi.

Í 1. mgr. 11. gr. lge. kemur fram að frestun greiðslna, svokallað greiðsluskjól, hefjist þegar umboðsmaður skuldara hefur samþykkt umsókn um heimild til greiðsluaðlögunar. Kæranda bar því að virða skyldur sínar samkvæmt 12. gr. laganna strax eftir að umboðsmaður skuldara samþykkti umsókn hennar.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi upplýst um skyldur sínar í samræmi við 1. mgr. 12. gr. lge. með skriflegum leiðbeiningum sem fylgdu með ákvörðun umboðsmanns skuldara 18. febrúar 2013 þar sem henni var veitt heimild til greiðsluaðlögunar. Í þeim leiðbeiningum var að finna útskýringar á afdráttarlausu lagaákvæði a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge. um skyldur skuldara við greiðsluaðlögun þar sem segir að á meðan leitað er greiðsluaðlögunar skuli skuldari leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum sínum það fé sem sé umfram það sem hann þurfi til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða.

Ákvörðun umboðsmanns skuldara byggist á 15. gr. lge. með vísan til a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge., þar sem fjallað er um skyldur skuldara á meðan leitað er greiðsluaðlögunar.

Samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. skal skuldari leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum það fé sem er umfram það sem hann þarf til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða. Í 2. mgr. 12. gr. kemur fram að telji umsjónarmaður að skuldari hafi brugðist skyldum sínum skuli hann óska þess við umboðsmann skuldara að greiðsluaðlögunarumleitanir verði felldar niður samkvæmt 15. gr. lge.

Eins og fram er komið lagði umsjónarmaður til með bréfi til umboðsmanns skuldara 30. október 2014 að greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda yrðu felldar niður þar sem kærandi hefði brugðist skyldum sínum samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. með því að láta hjá líða að leggja fé til hliðar í greiðsluskjóli. Í framhaldi af þessu felldi umboðsmaður skuldara greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda niður 12. janúar 2015.

Ákvörðun umboðsmanns skuldara byggist á því að kærandi hafi ekkert lagt til hliðar á því tímabili sem hún naut greiðsluskjóls. Að sögn kæranda var henni tilkynnt bæði bréfleiðis og í síma að hún ætti ekki að leggja fyrir á meðan mál hennar væri í vinnslu hjá umboðsmanni skuldara. Þá hafi hún þurft að leggja út fyrir ýmsum óvæntum kostnaði á tímabilinu.

Að mati umboðsmanns skuldara hafi kærandi átt að leggja til hliðar að minnsta kosti 1.248.867 krónur frá því að umsókn hennar um greiðsluaðlögun var lögð fram.

Samkvæmt fyrirliggjandi skattframtölum og launaupplýsingum ríkisskattstjóra, sem eru meðal gagna málsins, hafa mánaðartekjur kæranda í krónum verið eftirfarandi í greiðsluskjóli á neðangreindu tímabili:

Tímabilið 1. mars 2013 til 31. desember 2013: Tíu mánuðir
Nettótekjur alls 1.378.792
Nettó mánaðartekjur að meðaltali 137.879
Tímabilið 1. janúar 2014 til 31. desember 2014: 12 mánuðir
Nettótekjur alls 2.288.820
Nettó mánaðartekjur alls að meðaltali 190.735
Nettótekjur alls í greiðsluskjóli 3.667.612
Nettó mánaðartekjur alls að meðaltali í greiðsluskjóli 166.710

Sé miðað við framfærslukostnað samkvæmt ákvörðun umboðsmanns skuldara, tekjur kæranda og bætur var greiðslugeta hennar þessi í greiðsluskjóli í krónum:

Tímabilið 1. mars 2013 til 31. desember 2014: 22 mánuðir
Nettótekjur alls í greiðsluskjóli 3.667.612
Bótagreiðslur 2013 og 2014 800.000
Alls til ráðstöfunar í greiðsluskjóli 4.467.612
Mánaðarlegar ráðstöfunartekjur að meðaltali í greiðsluskjóli 203.073
Mánaðarleg útgjöld samkvæmt ákvörðun umboðsmanns 173.682
Greiðslugeta kæranda á mánuði 29.391
Alls sparnaður í 22 mánuði í greiðsluskjóli x 29.391 646.602

Í málinu liggur fyrir að kærandi hefur ekki lagt neina fjármuni til hliðar á greiðsluaðlögunartímanum. Eins og fyrr greinir telur úrskurðarnefndin að kæranda hafi mátt vera það ljóst, með vísan til leiðbeininga umboðsmanns skuldara, að henni hafi verið skylt að leggja til hliðar þá fjármuni sem voru umfram framfærslukostnað hennar samkvæmt framfærsluviðmiðum umboðsmanns skuldara.

Í samræmi við það sem að framan greinir er ljóst að greiðslugeta kæranda var að meðaltali neikvæð um 10 mánaða skeið á árinu 2013. Greiðslugetan var á hinn bóginn jákvæð á árinu 2014. Þegar tekið er tillit til þeirra leiðbeininga sem Embætti umboðsmanns skuldara veitti kæranda um fjárhæð framfærslukostnaðar verður að telja að henni hafi mátt vera ljóst að hún ætti að leggja til hliðar það fé sem væri umfram framfærslukostnað hennar á tímabili greiðsluskjóls í samræmi við a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Kærandi kveðst hafa fengið bréf um að henni bæri ekki að leggja til hliðar á tíma greiðsluskjóls en hún hefur þó ekki lagt það fram. Hún hefur heldur ekki sýnt fram á eða lagt fram gögn er staðreyna óvænt útgjöld á tímabilinu. Af þeim sökum er ekki unnt að taka tillit til þessara útskýringa kæranda. Samkvæmt öllu framansögðu hefði kærandi því átt að leggja fyrir 646.608 krónur á tímabili greiðsluskjóls. Sú fjárhæð samkvæmt ofangreindu er miðuð við heildartekjur kæranda að frádregnum sköttum og heildarframfærslukostnaði hennar á fyrrgreindu tímabili.

Samkvæmt þessu fellst úrskurðarnefndin á þá niðurstöðu umboðsmanns skuldara að kærandi hafi ekki sinnt skyldum sínum samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. á fyrrgreindu tímabili.

Í ljósi alls þessa verður að líta svo á að umboðsmanni skuldara hafi borið samkvæmt 1. mgr. 15. gr. laganna að fella greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda niður. Hin kærða ákvörðun er staðfest.

ÚRSKURÐARORÐ

Ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir A er staðfest.

Lára Sverrisdóttir

Sigríður Ingvarsdóttir

Þórhildur Líndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum