Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A6%C3%B0ingar-%20og%20foreldraorlof

Mál nr. 22/2011

Fimmtudaginn 1. mars 2012

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Jóna Björk Helgadóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 19. október 2011 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 13. október 2011. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 27. september 2011, um útreikning á greiðslum og viðmiðunartímabil útreiknings.

Með bréfi, dags. 24. október 2011, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 30. október 2011.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 1. nóvember 2011, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum.

 

I.

Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að hún sé að fara í fæðingarorlof í annað sinn á tveimur árum. Hún hafi nýlega fengið í hendur greiðsluáætlun fyrir sex mánaða fæðingarorlof en samkvæmt henni nemi mánaðarleg greiðsla til hennar úr Fæðingarorlofssjóði einungis X kr. Kærandi hafi dreift síðasta fæðingarorlofi yfir á sex mánuði sem virðist hafa þau áhrif að greiðslan verði svo lág sem raun ber vitni. Eftir sex mánaða fæðingarorlof hafi hún verið að hluta til launalaus og að hluta í 50% vinnu. Í janúar 2011 hafi hún hins vegar byrjað í 90% vinnu en einungis tveir mánuðir í 90% vinnu séu taldir með í útreikningi Fæðingarorlofssjóðs.

Kærandi telur útreikninginn vera rangan, meðal annars þar sem ekki sé tekið tillit til launalausra mánaða, heldur séu þeir taldir með þegar deild sé í heildartekjur hennar. Þá fer hún fram á að litið sé til þeirrar vinnu sem hún var í síðustu mánuðina fyrir fæðingu barns síns. Kærandi fer fram á að fæðingarorlof hennar verði reiknað aftur út og þeir mánuðir sem hún var launalaus eða með litlar sem engar tekjur verði teknir út úr útreikningnum, auk þess sem tekið verði tillit til vinnu hennar árið 2011.

 

II.

Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að með umsókn, dags. 4. júlí 2011, hafi kærandi sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í sex mánuði vegna væntanlegrar barnsfæðingar 19. september 2011.

Auk umsóknar kæranda hafi borist þrjár tilkynningar um tilhögun fæðingarorlofs, dags. 4. júlí 2011, vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 3. júní 2011, launaseðlar frá B ehf. fyrir maí og júní 2011 og launaseðlar frá C ehf. fyrir maí og júní 2011. Enn fremur hafi legið fyrir upplýsingar úr skrám ríkisskattstjóra og Þjóðskrá.

Þann 27. september 2011 hafi kæranda verið send greiðsluáætlun með útreikningum á væntanlegum greiðslum þar sem fram kemur að mánaðarleg greiðsla verði X kr. á mánuði miðað við 100% orlof.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að eftir að kæra var lögð fram hafi komið í ljós að greiðsla til kæranda í mars 2010 hafði ekki verið uppreiknuð í samræmi við 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), með greiðsluáætlun, dags. 31. október 2011, hafi það verið leiðrétt en sú leiðrétting hafi þó ekki áhrif á væntanlegar mánaðarlegar greiðslur til kæranda sem áfram séu X kr. á mánuði miðað við 100% orlof.

Fæðingarorlofssjóður vísar í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008 og a-lið 16. gr. laga nr. 120/2009, sé kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram sé og að miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn komi inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Þegar um sé að ræða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna á viðmiðunartímabili skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur miðuðust við og aldrei skuli taka mið af hærri fjárhæð en nemi þeim viðmiðunartekjum enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli þessara greiðslna og viðmiðunartekna bættan samhliða greiðslunum.

Fæðingarorlofssjóður vísar til þess að í 2. mgr. 13. gr. ffl. segi enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna. Í athugasemdum við 8. gr. frumvarpsins er varð að lögum nr. 74/2008 komi fram að átt sé við almanaksmánuði og að áfram sé tekið fram að ekki skuli taka tillit til tekna sem foreldri hefur unnið til utan innlends vinnumarkaðar.

Í 1. mgr. 13. gr. a. ffl. segi að þátttaka á innlendum vinnumarkaði í skilningi IV. kafla feli í sér að starfa í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði eða að starfa við eigin rekstur, án tillits til félagsforms, í því umfangi að hlutaðeiganda sé gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda, skil á tryggingagjaldi. Fullt starf miðist við 172 vinnustundir á mánuði, en þó skuli jafnan tekið tillit til fjölda vinnustunda sem samkvæmt kjarasamningi teljast fullt starf. Í 2. mgr. sé síðan talið upp í fimm stafliðum hvað teljist enn fremur til þátttöku á vinnumarkaði, og er vísað til þess.

Í 3. mgr. 15. gr. ffl. sé kveðið á um að útreikningar á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Vinnumálastofnun aflar um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá skattyfirvalda.  Þar segir jafnframt að Vinnumálastofnun skuli leita staðfestingar hjá skattyfirvöldum á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda vegna viðmiðunartímabila skv. 2. og 5. mgr. 13. gr. laganna.

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að fæðingardagur barns kæranda sé Y. september 2011 og því skuli, samkvæmt framangreindum lagaákvæðum, mánaðarleg greiðsla til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hennar að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram sé þá mánuði sem kærandi hafi verið á innlendum vinnumarkaði tímabilið frá mars 2010 til febrúar 2011, sbr. 2. mgr. 13. gr. og 1. og 2. mgr. 13. gr. a. ffl

Fæðingarorlofssjóður bendir á að samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra hafi kærandi talið tekjur sínar fram í samræmi við það sem fram komi í staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra um tekjur hennar á framangreindu viðmiðunartímabili og telur Fæðingarorlofssjóður að þar með liggi fyrir staðfesting á að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda. Í mars 2010 hafi kærandi þegið greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði vegna eldra barns sem hafi verið uppreiknuð í samræmi við 2. mgr. 13. gr. ffl. Í apríl 2010 hafi kærandi verið launalaus en ekki hefur verið sýnt fram á að kærandi hafi ekki verið á innlendum vinnumarkaði í þeim mánuði og sé mánuðinum því haldið inni við útreikning á meðaltali heildarlauna kæranda en miðað við X kr. Aðra mánuði viðmiðunartímabilsins hafi kærandi verið starfandi í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði og greitt hafi verið tryggingagjald af launum hennar í samræmi við það. Telst hún því hafa verið á innlendum vinnumarkaði þá mánuði sem beri að hafa með við útreikning á meðaltali heildarlauna hennar, sbr. 2. mgr. 13. gr. og 1. og 2. mgr. 13. gr. a. ffl.

Í ffl. og reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, sé ekki að finna neina heimild til þess að víkja frá 2. mgr. 13. gr. og 1. og 2. mgr. 13. gr. a. ffl. við útreikning á meðaltali heildarlauna kæranda né heldur því tímabili sem miða skal við við útreikninginn.

 

III.

Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um útreikning og viðmiðunartímabil greiðslna til kæranda úr Fæðingarorlofssjóði sem tilkynnt var með bréfi, dags. 27. september 2011.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008 og a-lið 16. gr. laga nr. 120/2009, skalmánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns, sbr. 2. mgr. 7. gr., í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram er og skal miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Einungis skal miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hefur verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. Aldrei skal þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Í 1. mgr. 13. gr. a. ffl., sbr. 9. gr. laga nr. 74/2008, kemur fram að þátttaka á innlendum vinnumarkaði í skilningi IV. kafla feli í sér að starfa í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði eða að starfa við eigin rekstur, án tillits til félagsforms, í því umfangi að hlutaðeigandi er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda, skil á tryggingagjaldi. Fullt starf miðast við 172 vinnustundir á mánuði, en þó skal jafnan tekið tillit til fjölda vinnustunda sem samkvæmt kjarasamningi teljast fullt starf.

 

Til atvinnuþátttöku skv. 2. mgr. 13. gr. a. ffl. telst jafnframt:

a. orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti,

b. sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur, er á biðtíma eftir slíkum bótum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar,

c. sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga, er á biðtíma eftir dagpeningum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til Tryggingastofnunar ríkisins samkvæmt gildandi lögum um almannatryggingar, eða fær greiðslur úr sjúkrasjóði stéttarfélags enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum,

d. sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa,

e. sá tími er foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins.

Barn kæranda er fætt Y. september 2011 og því er viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. tímabilið mars 2010 til og með febrúar 2011. Af hálfu kæranda er þess krafist að þeir mánuðir sem hún var launalaus eða með litlar sem engar tekjur verði teknir út en tekið verði tillit til vinnu hennar aðra mánuði ársins 2011.

Hvorki er heimilt skv. ffl. né reglugerð nr. 1218/2008 að líta til launa kæranda á öðru tímabili en kveðið er á um í 2. mgr. 13. gr. ffl. við útreikning meðaltals heildarlauna og greiðslna til foreldris úr Fæðingarorlofssjóði. Með hliðsjón af framangreindu er ekki unnt að fallast á þá kröfu kæranda að taka tillit til launa hennar á árinu 2011 að öðru leyti en því sem mánuðir þess árs falla undir fyrrgreint viðmiðunartímabil meðaltals launa hennar sem nær eins og fyrr greinir frá mars 2010 til og með febrúar 2011.

Kærandi var í 13% fæðingarorlofi með barni fæddu Y. september 2009 í mars 2010 og fékk hún samkvæmt gögnum málsins greitt alls X kr. frá Fæðingarorlofssjóði í samræmi við þann rétt. Hafa þær greiðslur verið uppreiknaðar í samræmi við 2. mgr. 13. gr. ffl.

Samkvæmt staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra fékk kærandi ekki greidd laun í apríl 2010. Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar-Greiðslustofu, sem bárust nefndinni 15. febrúar 2012, átti kærandi 100% rétt til atvinnuleysisbóta frá 1. til og með 30. apríl 2010. Telst kærandi því hafa verið á innlendum vinnumarkaði þann mánuð skv. b-lið 2. mgr. 13. gr. a. ffl. og af þeirri ástæðu kemur sá mánuður inn í útreikning á meðaltali heildarlauna kæranda.

Samkvæmt staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra var kærandi í a.m.k. 25% starfi mánuðina maí og júlí til desember árið 2010 og janúar og febrúar árið 2011. Fékk kærandi greidd laun frá D ehf. mánuðina maí 2010 til febrúar 2011, frá E mánuðina frá ágúst 2010 til febrúar 2011 og B ehf. og C ehf. mánuðina janúar og febrúar 2011. Þá kemur fram að kærandi fékk greiðslu frá VR í maímánuði 2010. Úrskurðarnefndin kallaði eftir launaseðli kæranda fyrir júnímánuð 2010 en samkvæmt honum og upplýsingum úr staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra náði kærandi ekki 25% starfshlutfalli þann mánuð. Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar-Greiðslustofu, sem bárust nefndinni 29. febrúar 2012, átti kærandi rétt til atvinnuleysisbóta þann mánuðinn. Telst hún því hafa verið á innlendum vinnumarkaði í skilningi ffl. í júnímánuði árið 2010.

Af framangreindu má ráða að kærandi telst hafa verið á innlendum vinnumarkaði í skilningi 2. mgr. 13. gr. og 2. mgr. 13. gr. a. ffl. á öllu viðmiðunartímabilinu, svo sem byggt er á í hinni kærðu ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs. Hvorki ffl. né reglugerð nr 1218/2008 hafa að geyma heimild til að undanskilja þá mánuði sem kærandi náði ekki 100% starfshlutfalli en var í a.m.k. 25% starfshlutfalli í skilningi 2. mgr. 13. gr. og 2. mgr. 13. gr. a. ffl. í umræddum útreikningum og af þeirri ástæðu er ekki unnt að fallast á kröfu kæranda um að undanskilja þá mánuði sem hún var í lágu starfshlutfalli en þó hærra en 25%.

Með hliðsjón af öllu framangreindu er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 27. september 2011, sbr. greiðsluáætlun, dags. 31. október 2011, staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um útreikning og viðmiðunartímabil greiðslna til A úr Fæðingarorlofssjóði frá 27. september 2011, sbr. leiðrétt ákvörðun, dags. 31. október 2011, er staðfest.

 

 

Jóna Björk Helgadóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum