Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 28/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 28/2016

Miðvikudaginn 25. maí 2016

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Lára Sverrisdóttir formaður, Sigríður Ingvarsdóttir og Þórhildur Líndal.

Þann 20. janúar 2016 barst úrskurðarnefnd velferðarmála kæra A. Kærð er ákvörðun umboðsmanns skuldara frá 14. desember 2015 þar sem kæranda er synjað um heimild til að leita greiðsluaðlögunar samkvæmt b-lið 1. mgr. 6. gr. laga um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010 (lge.).

I. Málsatvik og málsmeðferð

Málsatvik eru þau að með ákvörðun 14. desember 2015 synjaði umboðsmaður skuldara umsókn kæranda um greiðsluaðlögun. Var fjárhagur kæranda talinn óljós í skilningi b-liðar 1. mgr. 6. gr. lge. þar sem hún hefði gefið misvísandi upplýsingar um verktakatekjur sínar og verktakastörf. Einnig væri óupplýst hvaða tekjur kærandi hefði haft af útleigu á fasteignum sínum og hvernig leigutekjum hefði verið ráðstafað allt frá árinu 2007. Þá var kærandi með þessu talin hafa veitt rangar eða villandi upplýsingar um mikilsverðar aðstæður í málinu í skilningi d-liðar 1. mgr. 6. gr. lge. Í hinum kærða úrskurði er vísað til þess að af þessum ástæðum hafi embættið talið skylt að hafna umsókn kæranda um heimild til að leita greiðsluaðlögunar. Áður hafi umsóknum kæranda um heimild til að leita greiðsluaðlögunar verið synjað fjórum sinnum.

Þann 20. janúar 2016 barst úrskurðarnefnd velferðarmála kæra vegna málsins. Kærð er synjun umboðsmanns skuldara á umsókn kæranda um greiðsluaðlögun. Kærandi óskar eftir því að tekið sé tillit til þess að hún hafi sent kæru 18. nóvember 2015 og hún þannig talið að ekki væri þörf á að senda nýja kæru.

Kærandi telur að á henni séu brotin mannréttindi samkvæmt Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna og Mannréttindasáttmála Evrópu um sanngjarna málsmeðferð og réttindi fatlaðra. Þá gerir kærandi athugasemdir við vinnubrögð umboðsmanns skuldara í málinu.

Samkvæmt gögnum málsins sendi umboðsmaður skuldara ákvörðun sína frá 14. desember 2015 með ábyrgðarpósti til kæranda 17. desember 2015. Í bréfi umboðsmanns skuldara sem fylgdi ákvörðun embættisins kom fram að kærufrestur væri tvær vikur frá móttöku ákvörðunar. Kærandi sótti sendinguna ekki á pósthús.

Með bréfi 2. febrúar 2016 óskaði úrskurðarnefndin skýringa á því hvers vegna kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Engin svör bárust frá kæranda.

II. Niðurstaða

Samkvæmt 1. mgr. 15. gr. lge. skal stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar umboðsmanns skuldara um synjun á umsókn um greiðsluaðlögun berast úrskurðarnefnd velferðarmála innan tveggja vikna frá því að tilkynning um ákvörðun barst skuldara, sbr. 13. gr. laga nr. 85/2015. Þegar kæra berst að liðnum kærufresti skal vísa henni frá samkvæmt 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 (ssl.) nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, sbr. 1. tölul. lagaákvæðisins, eða veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 2. tölul. þess.

Kæran barst úrskurðarnefndinni sem fyrr segir 20. janúar 2016. Tilkynning um ákvörðun umboðsmanns skuldara á synjun umsóknar um greiðsluaðlögun var í fyrstu send kæranda á lögheimili hennar að B desember 2015. Þar sem kærandi veitti ákvörðuninni ekki viðtöku var henni send tilkynning frá pósthúsi 18. desember sama ár um að hennar biði þar ábyrgðarbréf með fyrrnefndri ákvörðun. Kærandi sótti ekki sendinguna. Tilkynning sama efnis var þá send á heimilisfang eiginmanns kæranda í C desember 2015 en var heldur ekki sótt.

Samkvæmt gögnum málsins bar pósturinn út tilkynningu á lögheimili kæranda á B 18. Desember 2015 sem virðist ekki hafa verið sótt. Ekkert liggur fyrir um ástæður þess að kærandi sinnti ekki tilkynningunni. Í 2. málsl. 1. mgr. 20. gr. ssl. kemur fram að ákvörðun sé bindandi eftir að hún er komin til aðila máls. Það er þó ekki gert að skilyrði í þessu sambandi að ákvörðun sé komin til vitundar hans en þetta kemur fram í athugasemdum sem fylgdu frumvarpi til ssl. Kærandi getur því ekki frestað eða afstýrt réttaráhrifum stjórnvaldsákvörðunar með því að taka ekki á móti bréfi sem hefur ákvörðunina að geyma. Í samræmi við þetta verður að telja að ákvörðun umboðsmanns skuldara hafi borist kæranda í skilningi ssl. 18. desember 2015 er henni var send tilkynning um hana á lögheimili sitt. Samkvæmt því byrjaði kærufrestur að líða þann dag en honum lauk 1. janúar 2016. Svo sem komið er fram barst úrskurðarnefndinni kæran 20. janúar 2016 eða 19 dögum of seint.

Engar haldbærar skýringar hafa komið fram af hálfu kæranda á því hvers vegna kæran barst úrskurðarnefndinni að liðnum kærufresti og ekkert í gögnum málsins gefur til kynna að afsakanlegt verði talið að hún hafi ekki borist fyrr. Önnur atvik málsins þykja ekki leiða til þess að veigamiklar ástæður mæli með því að málið verði tekið til meðferðar á grundvelli 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Af þessum sökum er máli þessu vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

ÚRSKURÐARORÐ

Kæru A á ákvörðun umboðsmanns skuldara um að synja henni um heimild til greiðsluaðlögunar, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Lára Sverrisdóttir

Sigríður Ingvarsdóttir

Þórhildur Líndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum