Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 305/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 305/2016

Fimmtudaginn 10. nóvember 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 20. ágúst 2016, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2016, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2016, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði frá 25. júlí 2016 á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hafi hafnað atvinnutilboði. Kærandi kærði þá ákvörðun til úrskurðarnefndar velferðarmála með kæru, dags. 20. ágúst 2016. Með bréfi, dags. 23. ágúst 2016, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 21. september 2016, þar sem fram kemur að stofnunin telji að ranglega hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda. Stofnunin muni því fella úr gildi ákvörðun sína um biðtíma. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 22. september 2016, var greinargerðin send kæranda til kynningar og óskað eftir afstöðu hans.

II. Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2016, um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á þeirri forsendu að hann hafi hafnað atvinnutilboði.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að ranglega hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því muni stofnunin fella úr gildi ákvörðun sína um biðtíma. Af hálfu úrskurðarnefndarinnar er litið svo á að með þessu hafi verið fallist á þær kröfur kæranda sem kæran lýtur að. Það er því mat úrskurðarnefndarinnar að lögvarðir hagsmunir kæranda af efnislegri úrlausn málsins séu ekki lengur til staðar. Af þeim sökum verður kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum