Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Grei%C3%B0slua%C3%B0l%C3%B6gunarm%C3%A1l

Nr. 376/2018 - Úrskurður

Óglögg mynd af fjárhag skuldara skv. b-lið 1. mgr. 6. gr. lge.

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

 

Mál nr. 376/2018

Fimmtudaginn 20. desember 2018

 

A

gegn

umboðsmanni skuldara

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Lára Sverrisdóttir lögfræðingur, Sigríður Ingvarsdóttir lögfræðingur og Þórhildur Líndal lögfræðingur.

Þann 19. október 2018 barst úrskurðarnefnd velferðarmála kæra A. Kærð var ákvörðun umboðsmanns skuldara sem tilkynnt var með bréfi 4. október 2018 þar sem umsókn kæranda um greiðsluaðlögun var synjað.

Með bréfi 31. október 2018 óskaði úrskurðarnefnd velferðarmála eftir greinargerð umboðsmanns skuldara sem barst með bréfi 6. nóvember 2018.

Greinargerð umboðsmanns skuldara var send kæranda til kynningar með bréfi 7. nóvember 2018 og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Athugasemdir bárust með bréfi 19. nóvember 2018. Voru þær sendar umboðsmanni skuldara með bréfi 20. nóvember 2018 og embættinu boðið að koma á framfæri sjónarmiðum sínum. Með tölvupósti 23. nóvember 2018 var úrskurðarnefndinni kynnt að umboðsmaður gerði ekki frekari athugasemdir.

 

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi er X ára. Hún er einhleyp og býr í 89 fermetra leiguhúsnæði.

Kærandi er öryrki í kjölfar veikinda árið X. Hún fær greiddar örorkubætur frá Tryggingastofnun ríkisins.

Heildarskuldir kæranda samkvæmt skuldayfirliti umboðsmanns skuldara 4. október 2018 eru 1.286.546 krónur. Stærstur hluti skuldanna er við Greiðslumiðlun ehf. og ýmis fjarskiptafyrirtæki.

Að sögn kæranda má einkum rekja fjárhagserfiðleika hennar til atvinnuleysis og veikinda.

 

Kærandi lagði fram umsókn um greiðsluaðlögun 4. júní 2018, en með ákvörðun umboðsmanns skuldara 4. október 2018 var umsókn hennar hafnað þar sem fyrirliggjandi gögn voru ekki talin gefa nægilega glögga mynd af fjárhag hennar, sbr. b-lið 1. mgr. 6. gr. laga um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010 (lge.).

 

II. Sjónarmið kæranda

C fer með málið fyrir [...] hönd [kæranda] samkvæmt umboði. Hann fer fram á að umboðsmaður skuldara endurskoði ákvörðun sína og taki beiðni kæranda um aðstoð til greina. Skilja verður þetta svo að þess sé krafist að ákvörðun umboðsmanns skuldara um að synja henni um heimild til að leita greiðsluaðlögunar verði felld úr gildi.

Í málatilbúnaði C kemur fram að kærandi sé [...] og sé örorku hennar að rekja til þess. Þetta hafi verið staðfest af D á sínum tíma. Kærandi hafi átt við [...]sjúkdóm að stríða í mörg ár og hafi af þeim sökum verið lögð inn [...]. Hún gangi reglulega til [...]læknis.

Kærandi búi með E í íbúð á vegum F. Til allrar óhamingju hafi hún sóst eftir því að og hafi tveir menn nýtt sér það og sest að á heimili hennar. Annar mannanna, G, hafi búið með kæranda líklega að hluta til árið 2017. Hinn maðurinn, H, hafi búið með kæranda stopult á þessu ári en einnig áður fyrr. Þeir hafi báðir tekið þátt í tilfallandi kostnaði við rekstur heimilisins og sé velta á bankareikningi kæranda að öllum líkindum vegna greiðslu þeirra á húsaleigu og annars framlags við heimilisrekstur. Auk þessa hafi kærandi tekið þátt í [...]. Tekjur af því geti ekki talist skattskyldar tekjur nema skattyfirvöld færi á það sönnur.

C geti ekki útskýrt hverja einstaka færslu á bankareikningi [kæranda] og sjálf sé hún ófær um það. Samkvæmt bankareikningi kæranda árið 2017 hafi áðurnefndur H lagt 191.160 krónur inn á bankareikning kæranda og fyrrnefndur G 384.168 krónur. C hafi einnig lánað henni 308.375 krónur sem hann hafi lagt inn á reikninginn. Á tímabilinu 1. janúar til 31. ágúst 2018 hafi H lagt 245.511 krónur inn á bankareikning kæranda og G 32.500 krónur. Þá hafi C lánað henni 190.741 krónu. Allar fjárhæðir umfram greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins séu óskattskyldar og því ekki tekjur, heldur lán eða styrkir.

 

III. Sjónarmið umboðsmanns skuldara

Í ákvörðun sinni vísar umboðsmaður skuldara til þess að í b-lið 1. mgr. 6. gr. lge. sé kveðið á um að synja skuli um heimild til að leita greiðsluaðlögunar, gefi fyrirliggjandi gögn ekki nægilega glögga mynd af fjárhag skuldara eða væntanlegri þróun fjárhags hans á tímabili greiðsluaðlögunar.

Í 4. gr. lge. séu raktar þær upplýsingar og þau gögn sem skuldara beri að leggja fram þegar sótt sé um heimild til greiðsluaðlögunar. Í 1. mgr. 4. gr. lge. sé upptalning í 11 töluliðum á því sem koma skuli fram í umsókn. Fram komi í 2. tölul. 1. mgr. 4. gr. lge. að umsókn skuli fylgja sundurliðaðar upplýsingar um eignir og í 4. tölul. 1. mgr. 4. gr. lge. komi fram að umsókn skuli fylgja upplýsingar um hverjar tekjur skuldara séu, hvort sem er af vinnu eða öðrum sökum, og upplýsingar um af hvaða samningum eða öðru tekjurnar ráðist, svo og hvort horfur séu á að breytingar verði á tekjum og atvinnuhögum. Jafnframt skuli greina hvort skuldari muni hafa aðra fjármuni en vinnutekjur sínar til að greiða af skuldum, svo sem vegna sölu eigna eða fjárframlaga annarra. Í 6. tölul. 1. mgr. 4. gr. lge. komi fram að umsókn skuli fylgja mat skuldara á meðaltali mánaðarlegra útgjalda sinna. Þá komi fram í 3. mgr. 4. gr. lge. að umsókn skuli fylgja gögn til staðfestingar þeim upplýsingum sem hún hafi að geyma.

Í 5. gr. lge. sé kveðið á um að umboðsmaður skuldara skuli ganga úr skugga um að í umsókn komi fram allar nauðsynlegar upplýsingar og geti hann, ef þörf krefji, krafist þess að skuldari staðfesti gefnar upplýsingar með skriflegum gögnum.

Í greinargerð frumvarps til laga um greiðsluaðlögun einstaklinga komi fram í athugasemd við 4. gr. að upptalningin þar sé ekki tæmandi, enda gert ráð fyrir að umboðsmaður skuldara geti krafist þess að skuldari afli frekari upplýsinga en tilgreindar séu í ákvæðinu. Einnig komi fram að gert sé ráð fyrir að skuldari útvegi að jafnaði sjálfur nauðsynleg gögn, enda mikilvægt að hann taki virkan þátt í að kortleggja fjárhag sinn til að fá yfir hann heildarmynd. Hins vegar sé ljóst að margir þurfi aðstoð við gagnaöflun og skuli umboðsmaður aðstoða skuldara við hana, auk þess að embættið geti aflað upplýsinga sjálft, með heimild frá skuldara. Þá segi að þó verði eflaust ómögulegt eða erfitt um vik fyrir umboðsmann að nálgast einhver gögn, og sé það á ábyrgð skuldarans að afla þeirra.

Samkvæmt upplýsingum úr skattframtali ársins 2018 vegna tekna ársins 2017 og staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra hafi nettótekjur kæranda á árinu 2017 verið 2.543.207 krónur. Tekjurnar hafi verið vegna greiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins og húsnæðisbóta frá Greiðslustofu húsnæðisbóta. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum hf. hafi velta á bankareikningi kæranda hjá bankanum verið 3.451.279 krónur á árinu 2017. Mismunur á veltu og tekjum hafi því verið 908.072 krónur á árinu 2017 eða sem nemi 75.673 krónum á mánuði.

Samkvæmt upplýsingum úr staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra og frá Tryggingastofnun ríkisins hafi nettótekjur kæranda til og með ágúst 2018 verið 1.771.414 krónur. Tekjurnar hafi allar verið frá Tryggingastofnun ríkisins. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum hf. hafi velta á bankareikningi kæranda hjá bankanum verið 2.235.166 krónur frá 1. janúar til og með 8. ágúst 2018. Mismunur á veltu og tekjum hafi því verið 463.752 krónur eða sem nemi 57.969 krónum á mánuði.

Með ábyrgðarbréfi 27. ágúst 2018 til kæranda hafi Embætti umboðsmanns skuldara óskað eftir afriti af húsaleigusamningi eða þremur nýjustu kvittunum vegna greiðslu á húsaleigu. Einnig hafi verið óskað upplýsinga um hvort kærandi hefði greitt kostnað vegna rafmagns/ hita/hússjóðs og afrits af nýjasta greiðsluseðli vegna þeirra gjalda sem við gætu átt. Loks hafi verið óskað upplýsinga um hvort kærandi hefði greitt tryggingar og yfirlits þar um, ef svo væri. Í bréfinu hafi verið gerð grein fyrir mikilvægi þessara atriða, svo og þess að leggja fram gögn. Kæranda hafi jafnframt verið sendur tölvupóstur á það netfang sem hún hafi gefið upp á umsókn.

Ábyrgðarbréfið hafi verið endursent til umboðsmanns skuldara 2. október síðastliðinn þar sem kærandi hafi ekki vitjað þess. Það sé því mat umboðsmanns skuldara að fyrirliggjandi gögn gefi ekki glögga mynd af fjárhag kæranda eða væntanlegri þróun fjárhags hennar á tímabili greiðsluaðlögunar, sbr. b-lið 1. mgr. 6. gr. lge.

Umboðsmaður skuldara fer fram á að hin kærða ákvörðun verði staðfest með vísan til forsendna hinnar kærðu ákvörðunar.

 

IV. Niðurstaða

Ákvörðun umboðsmanns skuldara byggist á b-lið 1. mgr. 6. gr. lge.

Samkvæmt b-lið 1. mgr. 6. gr. skal synja um heimild til greiðsluaðlögunar gefi fyrirliggjandi gögn ekki nægilega glögga mynd af fjárhag skuldara eða væntanlegri þróun fjárhags hans á tímabili greiðsluaðlögunar.

Kærandi sótti um greiðsluaðlögun 4. júní 2018. Umboðsmaður skuldara synjaði umsókn hennar með ákvörðun 4. október 2018.

Umboðsmaður skuldara telur að fjárhagur kæranda sé óglöggur í skilningi b-liðar 1. mgr. 6. gr. lge. Við mat á því hvað teljist vera nægjanlega glögg mynd af fjárhag skuldara í skilningi b-liðar 1. mgr. 6. gr. lge. telur úrskurðarnefndin meðal annars rétt að líta til 4. og 5. gr. lge.

Í 4. gr. lge. er gerð grein fyrir því hvernig umsókn um greiðsluaðlögun skuli vera úr garði gerð. Í 1. mgr. 4. gr. er upptalning í 11 töluliðum á því sem koma skal fram í umsókninni. Í 4. tölul. lagaákvæðisins segir að í umsókn um greiðsluaðlögun skuli koma fram hverjar tekjur skuldara séu, hvort sem er af vinnu eða öðrum sökum, og upplýsingar um af hvaða samningum eða öðru tekjurnar ráðist, svo og hvort horfur séu á að breytingar verði á tekjum eða atvinnuhögum. Í athugasemdum með 4. gr. í frumvarpi til lge. kemur fram að gert sé ráð fyrir að skuldari, eftir atvikum með aðstoð umboðsmanns skuldara, leggi mat á hversu háa fjárhæð hann geti greitt mánaðarlega til að standa skil á skuldbindingum sínum. Upptalning í 1. mgr. sé ekki tæmandi, enda gert ráð fyrir að umboðsmaður skuldara geti krafist þess að skuldari afli frekari upplýsinga en tilgreindar séu í ákvæðinu.

Í 5. gr. lge. er kveðið á um að umboðsmaður skuldara skuli ganga úr skugga um að í umsókn komi fram allar nauðsynlegar upplýsingar og getur embættið krafist þess að skuldari staðfesti upplýsingarnar með gögnum. Rannsókn á fjárhagsstöðu skuldara hefur bæði þýðingu við mat á því hvort tilefni sé til að synja umsókn á grundvelli 2. mgr. 6. gr. lge. og varpar jafnframt ljósi á núverandi fjárhagsstöðu skuldara og væntanlega þróun hennar til framtíðar.

Í skýringum við frumvarp til lge. er fjallað um inntak b-liðar 1. mgr. 6. gr. Þar segir að umboðsmanni sé skylt að hafna umsókn gefi fyrirliggjandi gögn ekki nægilega glögga mynd af fjárhag skuldara eða væntanlegri þróun hans á tímabili greiðsluaðlögunar, enda mikilvægt að skuldari veiti fullnægjandi upplýsingar um fjárhagsleg málefni sín. Hér sé einungis um það að ræða að skuldari hafi ekki orðið við áskorunum umboðsmanns skuldara um öflun gagna eða upplýsingagjöf sem aðeins er á hans færi að veita. Áréttað er að skuldari skuli taka virkan þátt í og sýna viðleitni til að varpa sem skýrustu ljósi á skuldastöðu sína og félagslegar aðstæður.

Það er markmið lge. að gera einstaklingum kleift að endurskipuleggja fjárhag sinn með samningum við kröfuhafa, eftir atvikum með niðurfellingu skulda að einhverju eða öllu leyti. Samkvæmt reglum lge. er skuldara gert að greiða eins hátt hlutfall af kröfum og sanngjarnt er þar sem í greiðsluaðlögun felst að jafnaði eftirgjöf af kröfum með tilheyrandi afskriftum í lok greiðsluaðlögunartímabils. Hér verður að hafa í huga að skuldari hefur sjálfur óskað þess að fá heimild til að leita greiðsluaðlögunarsamnings við kröfuhafa.

Hver sá sem leitar greiðsluaðlögunar skal þannig veita umboðsmanni skuldara ítarlegar upplýsingar og gögn. Í þessu felst skylda til að veita allar þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að greina fjárhagsstöðu viðkomandi til fulls. Með öðru móti verður ekki lagt efnislegt mat á hvort heimilt eða hæfilegt sé að veita skuldara greiðsluaðlögun. Rannsóknarskylda stjórnvalda leysir umsækjanda um greiðsluaðlögun ekki undan þeirri skyldu.

Í samþykki kæranda fyrir því að umboðsmaður skuldara aflaði gagna vegna málsins, sem er hluti af umsókn um greiðsluaðlögun, segir að með samþykkinu veiti kærandi embættinu heimild til að afla upplýsinga um veltu á bankareikningum umsækjanda til að sem skýrust mynd fáist um tekjur hans. Einnig segir að þörf geti verið á því að afla frekari upplýsinga.

Í ábyrgðarbréfi umboðsmanns skuldara til kæranda 27. ágúst 2018 segir: „Óskað er upplýsinga um það misræmi sem virðist vera á veltu (innborgunum) á reikningi þínum hjá Landsbankanum og tekjum samkvæmt opinberum gögnum á árunum 2017 og 2018. Í því skyni þá getur þú lagt fram yfirlit yfir innborganir vegna reikninga þinna hjá Landsbankanum. Þú getur einnig fyllt út meðfylgjandi eyðublað og getur embættið þá óskað eftir yfirliti yfir innborganir vegna reiknings þíns hjá bankanum.“ Í málinu liggur fyrir að kærandi vitjaði ekki bréfsins.

Fram kemur í hinni kærðu ákvörðun að velta á bankareikningi kæranda hafi verið rúmum 908.000 krónum hærri en brúttótekjur á árinu 2017 og tæpum 464.000 krónum hærri en brúttótekjur frá 1. janúar til og með 8. ágúst 2018.

Í málinu hefur komið fram að kærandi fékk hærri greiðslur inn á bankareikning sinn árið 2017 en tekjur sem hún taldi fram til skatts það ár. Einnig hafi kærandi fengið hærri greiðslur inn á bankareikning sinn á tímabilinu 1. janúar til 8. ágúst 2018 en hún hafi fengið í tekjur. Samkvæmt skattframtali kæranda vegna ársins 2017, yfirliti Ríkisskattstjóra vegna tekna kæranda á tímabilinu janúar til ágúst 2018 og yfirliti frá Landsbanka Íslands hf. var mismunurinn eftirfarandi:


 

 

jan. - des. 2017

jan. - ágúst 2018

Nettólaun

2.439.486

1.567.071

Húsnæðisbætur

41.238

 

Samtals til ráðstöfunar:

2.480.724

1.567.071

Innlegg á bankareikning

3.451.279

2.235.166

Mismunur

970.555

668.095

 

Samkvæmt þessu voru greiðslur inn á bankareikning kæranda alls 1.638.650 krónum (970.555 + 668.095) hærri en framtaldar tekjur hennar á tímabilinu 1. janúar 2017 til 8. ágúst 2018. Af hálfu kæranda hefur verið bent á að mismunurinn stafi af fjárframlögum G, H og C, en engin gögn hafa verið er styðja þessar staðhæfingar. Að þessu leyti verður fjárhagur kæranda talinn óglöggur samkvæmt b-lið 1. mgr. 6. gr. lge. þar sem hvorki liggja fyrir haldbærar upplýsingar né gögn um raunverulegar ráðstöfunartekjur hennar og því ekki mögulegt að reikna út hvað hún getur greitt af skuldum sínum.

Einnig telur umboðsmaður skuldara að fjárhagur kæranda sé óglöggur þar sem skort hafi upplýsingar um fjárhæð húsaleigu, hita/rafmagns/hússjóðs og trygginga þegar ákvörðun var tekin. Í fyrrnefndu bréfi umboðsmanns til kæranda 27. ágúst 2018 er þessara upplýsinga óskað.

Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. lge. skal notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setur þegar gerður er samningur til greiðsluaðlögunar. Við mat á greiðslugetu kæranda telur úrskurðarnefndin því eins og hér stendur á að miða hefði átt við framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara þar sem kærandi sýndi ekki fram á að framfærslukostnaður hennar væri hærri. Ekki verður því talið að þetta atriði leiði til þess að fjárhagur kæranda teljist óglöggur í skilningi b-liðar 1. mgr. 6. gr. lge.

Þar sem þýðingarmiklar upplýsingar skortir engu að síður um fjárhag kæranda samkvæmt framansögðu verður að telja að fjárhagsstaða hennar sé óljós í skilningi b-liðar 1. mgr. 6. gr. lge. Með vísan til þess er það mat úrskurðarnefndarinnar að rétt hafi verið að synja kæranda um heimild til að leita greiðsluaðlögunar þegar af þeirri ástæðu. Ákvörðun umboðsmanns skuldara er samkvæmt því staðfest.


 

ÚRSKURÐARORÐ

Ákvörðun umboðsmanns skuldara um að synja umsókn A um heimild til að leita greiðsluaðlögunar er staðfest.

 

 

F. h úrskurðarnefndar velferðarmála

 

 

 

 

 

Lára Sverrisdóttir

 

 

 

 

Sigríður Ingvarsdóttir

Þórhildur Líndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum