Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20h%C3%BAsam%C3%A1la

Nr. 13/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 6. maí 2019

í máli nr. 13/2019

 

A

gegn

B

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir hæstaréttarlögmaður, Valtýr Sigurðsson hæstaréttarlögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur. 

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A.

Varnaraðili: B.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða tryggingarfé að fjárhæð 350 evrur ásamt vöxtum.

Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila verði hafnað.

Með kæru, dags. 13. febrúar 2019, beindi sóknaraðili til nefndarinnar erindi vegna ágreinings við varnaraðila. Með bréfi kærunefndar, dags. 18. febrúar 2019, var varnaraðila gefinn kostur á að tjá sig um efni kærunnar. Greinargerð varnaraðila, dags. 25. febrúar 2019, ásamt fylgiskjölum barst kærunefnd 1. mars 2019. Kærunefnd sendi sóknaraðila greinargerð og gögn varnaraðila með bréfi, dags. 1. mars 2019, til upplýsingar og var sóknaraðila veittur frestur til að koma að athugasemdum. Engar athugasemdir bárust. 

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Aðilar gerðu samning um leigu sóknaraðila á íbúð varnaraðila að C. Ágreiningur er um endurgreiðslu tryggingarfjár.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili segir að hún sé námsmaður frá C sem stundi skiptinám við Háskóla Íslands og hafi leigt íbúð varnaraðila á meðan á námi stóð. Sóknaraðili hafi greitt varnaraðila tryggingarfé að fjárhæð 350 evrur með fyrstu leigugreiðslu fyrir október 2018. Sóknaraðili hafi yfirgefið húsnæðið 16. desember 2018 þegar hún hafi farið aftur til heimalands síns.

Systir varnaraðila hafi gist í leiguhúsnæðinu 22. desember 2018 í nokkra daga með fjölskyldu sinni og varnaraðili hafi sjálf flutt aftur inn íbúðina 26. desember 2018.

Eftir nokkur samskipti aðila hafi varnaraðili sent skilaboð 7. janúar 2019 á sameiginlegu svæði þeirra á facebook þar sem hún hafi gert grein fyrir kvörtunum sínum og því að hún myndi ekki skila tryggingunni. Sóknaraðili hafi svarað varnaraðila með tölvupósti sendum 8. janúar 2019 og síðan reynt að hafa samband við hana í nokkur skipti þar sem varnaraðili hafði lofað að upplýsa um endanlega ákvörðun sína um fjárhæð kröfunnar.

Sóknaraðili fallist ekki á skoðun varnaraðila á íbúðinni og með vísan til húsaleigulaga eigi hún rétt á fullri endurgreiðslu á tryggingarfénu.

III. Sjónarmið varnaraðila

Varnaraðili segir að samskipti aðila hafi byrjað á tilteknu vefsvæði í mars 2018 þar sem sóknaraðili hafi óskað eftir að fá leigt eitt af fjórum herbergjum í íbúð varnaraðila haustmisserið 2018. Samkvæmt upplýsingum varnaraðila hafi sóknaraðili yfirgefið íbúðina 22. desember 2018. Áætlaður leigutími hafi verið fjórir mánuðir og aðilar átt góð samskipti allan þann tíma. Þegar nær hafi dregið að lokum leigutímabils hafi varnaraðili sent leiðbeiningar um skil og frágang á íbúðinni á lokað svæði á facebook. Í þeirri kveðju hafi hún einnig nefnt að systir hennar, sem sé búsett erlendis, myndi dvelja í íbúðinni ásamt fjölskyldu sinni frá 22. desember 2018 en hún sjálf kæmi heim fjórum dögum síðar. Áform systur hennar hafi breyst þannig að hún hafi aldrei komið í íbúðina. Frá brottfarardegi sóknaraðila hafi því enginn dvalið í íbúðinni.

Á öðrum degi jóla hafi varnaraðili komið heim ásamt fjölskyldu sinni og vonast til að koma að hreinni íbúð, í samræmi við skilalýsingu og hvernig hún hafði skilið við hana þegar hún hafi afhent leigjendum hana í ágúst 2018. Það hafi þó ekki orðið raunin. Hún hafi því sent bréf til allra leigjenda á sameiginlegt facebook svæði þeirra þar sem hún hafi greint frá ástæðum þess að ekki yrði unnt að greiða allt tryggingarféð til baka. Í ljósi þess að hún hafi átt von á gestum næstu daga í gistingu hafi hún þurft að ræsa út vini og vandamenn til að aðstoða við þrif á íbúðinni sem sé á tveimur hæðum. Þá hafi nokkrir munir orðið fyrir skemmdum eða horfið og ekki hafi öllum lyklum verið skilað.

Í ljósi þess að fimm einstaklingar hafi deilt almennum rýmum íbúðarinnar hafi varnaraðili ekki séð annan kost en þann að skipta kostnaði jafnt á milli þeirra allra þar sem enginn hafi stigið fram og gengist við óhöppunum. Sóknaraðili hafi sent varnaraðila bréf rafrænt í janúar þar sem hún hafi gert athugasemdir við niðurstöðu varnaraðila um endurgreiðslu tryggingarfjárins sem hún hafi svarað.

Það hafi alfarið lent á varnaraðila og hennar fólki að þrífa íbúðina í miðju jólahaldi og bæta það tjón sem hafi orðið á munum. Það hafi tekið lengri tíma, en hún hafi óskað eftir mati á kostnaði vegna tjónsins. Það liggi nú fyrir og búið sé að endurgreiða þeim leigjendum, sem hafi skilað inn viðeigandi bankaupplýsingum, hluta af tryggingarfénu. Sóknaraðili eigi enn eftir að senda varnaraðila þær upplýsingar, þrátt fyrir beiðni hennar þar um. Um leið og þær upplýsingar berist verði erlend greiðslubeiðni framkvæmd.

IV. Niðurstaða            

Fyrir liggur að sóknaraðili greiddi varnaraðila tryggingarfé að fjárhæð 350 evrur til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi aðila 18. september 2018. Leigutíma lauk 22. desember 2018. Varnaraðili hefur ekki endurgreitt sóknaraðila tryggingarféð á þeirri forsendu að þrifum á íbúðinni hafi verið ábótavant við lok leigutíma og einnig hafi orðið skemmdir á munum í íbúðinni á leigutíma og einhverjir horfið.

Í 1. málsl. 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994, segir að leigusali skuli svo fljótt sem verða megi og eigi síðar en innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðis gera leigjanda skriflega grein fyrir því hvort hann geri kröfu í tryggingarfé samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. eða hafi uppi áskilnað um það, sbr. einnig 1. mgr. 64. gr. Hafi leigusali ekki gert kröfu samkvæmt 1. málsl. skuli hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt vöxtum án ástæðulauss dráttar og skal hann greiða leigjanda dráttarvexti samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu frá þeim degi er fjórar vikur eru liðnar frá skilum leiguhúsnæðis til þess dags er hann skilar tryggingarfénu. Í 5. mgr. sömu greinar segir að geri leigusali kröfu í tryggingarfé innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðis samkvæmt 4. mgr. skal leigjandi tilkynna leigusala skriflega hvort hann hafnar eða fellst á kröfuna innan fjögurra vikna frá móttöku kröfunnar. Hafni leigjandi kröfu leigusala ber leigusala að vísa ágreiningi um bótaskyldu leigjanda til kærunefndar húsamála eða höfða mál um bótaskyldu leigjanda innan fjögurra vikna frá þeim degi er leigjandi hafnaði kröfunni, ella skal hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt vöxtum án ástæðulauss dráttar.

Leigutíma lauk 22. desember 2018, sbr. fyrirliggjandi rafræn samskipti aðila 14. nóvember 2018. Varnaraðili gerði kröfu í tryggingarféð 7. janúar 2019 á sameiginlegu facebook svæði aðila. Sóknaraðili gerði athugasemdir vegna kröfunnar með rafrænum skilaboðum sendum til varnaraðila 14. janúar 2019. Frá þeim tíma mátti varnaraðila vera ljóst að ágreiningur væri um bótaskyldu sóknaraðila. Þar sem varnaraðili vísaði þeim ágreiningi hvorki til kærunefndar húsamála né dómstóla innan fjögurra vikna frá þeirri dagsetningu talið ber henni, þegar af þeirri ástæðu, að endurgreiða sóknaraðila tryggingarféð, sbr. 5. mgr. 40. gr. húsaleigulaga. Samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. og 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, sbr. lög nr. 63/2016, ber varnaraðila að endurgreiða tryggingarféð ásamt vöxtum frá þeim tíma sem það var lagt fram og dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi er fjórar vikur eru liðnar frá skilum leiguhúsnæðis til þess dags er varnaraðili skilar tryggingarfénu. Þar sem samningi aðila lauk 22. desember 2018 reiknast dráttarvextir frá 20. janúar 2019.

Ákvæði 5. mgr. 85. gr. húsaleigulaga, sbr. lög nr. 63/2016, kveður á um að úrskurðir kærunefndar séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum er heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður var kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 7. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Varnaraðila ber að endurgreiða sóknaraðila tryggingarfé að fjárhæð 350 evrur ásamt vöxtum, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994, frá 18. september 2018 til 20. janúar 2019 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags.

 

Reykjavík, 6. maí 2019

 

 

 

Auður Björg Jónsdóttir

 

 

 

Valtýr Sigurðsson                                          Eyþór Rafn Þórhallsson

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum