Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtbo%C3%B0sm%C3%A1la

Mál nr. 8/2018. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 17. ágúst 2018
í máli nr. 8/2018:
Work North ehf.
gegn
Kópavogsbæ
og Abltaki ehf.

Með kæru 19. júní 2018 kærði Work North ehf. útboð Kópavogsbæjar „Kársnesskóli við Skólagerði, niðurrif“. Kærandi gerir aðallega þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila Kópavogsbæjar (hér eftir vísað til sem varnaraðila) um val á tilboði Abltaks ehf. og að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála afstöðu til þess hvort rétt sé að verða við kröfu kæranda um að stöðva samningsgerðina um stundarsakir, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

Í maí 2018 auglýsti varnaraðili eftir tilboðum í niðurrif Kársnesskóla í Kópavogi. Samkvæmt útboðsgögnum skyldu bjóðendur skila ýmsum gögnum með tilboðum sínum til þess að sýna fram á hæfni til þess að framkvæma verkið. Kostnaðaráætlun vegna verksins var 56.900.000 krónur. Kærandi tók þátt í útboðinu og gerði tilboð að fjárhæð 39.800.000 krónur. Tilboð voru opnuð 5. júní 2018 og kom þá í ljós að kærandi átti næst lægsta tilboðið sem barst en lægsta tilboðið kom frá Abltaki ehf. og nam það 33.286.500 krónum. Gögn sem fylgja áttu með tilboðum samkvæmt útboðsgögnum fylgdu ekki tilboði Abltaks ehf. Kærandi sendi bréf til varnaraðila 7. júní 2018 og lýsti þeirri skoðun að hann teldi að tilboð Abltaks ehf. væri ógilt og að taka bæri tilboði kæranda. Varnaraðili tilkynnti 18. júní 2018 að ákveðið hefði verið að ganga til samninga við Abltak ehf. um verkið.

Kærandi telur að skilyrðum útboðsins um framlagningu gagna hafi ekki verið fullnægt af hálfu Abltaks ehf. og það leiði til þess að tilboðið sé ógilt. Varnaraðili vísar til þess að Abltak ehf. hafi tekið sérstaklega fram í tilboði sínu að gögn yrðu send ef tilboð félagsins kæmi til greina. Í útboðsgögnum hafi meðal annars komið fram að aflað yrði upplýsinga eftir opnun og yfirferð tilboða en gögnin hafi verið misvísandi um það hvaða gögn skyldu fylgja tilboðum. Eftir opnun tilboða hafi varnaraðili talið að útboðsgögnin hafi ekki verið nægjanlega skýr og því hafi skortur á gögnum með tilboði Abltaks ehf. verið afsakanlegur. Auk þess hafi varnaraðili gefið öllum þeim bjóðendum sem ekki hafi skilað staðfestingu á skilum á opinberum gjöldum kost á að skila slíkum gögnum eftir opnun tilboða.

Niðurstaða

Í 1. mgr. 23. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup kemur fram að öll innkaup opinberra aðila yfir innlendum viðmiðunarfjárhæðum skuli bjóða út og gera í samræmi við þau innkaupaferli sem nánar er kveðið á um í IV. kafla laganna. Samkvæmt 4. mgr. 123. gr. laganna öðlast ákvæði 1. mgr. 23. gr. þó ekki gildi fyrr en 31. maí 2019 að því er varðar innkaup sveitarfélaga, stofnana þeirra og annarra opinberra aðila á þeirra vegum. Fram til þess tíma eru innkaup á vegum sveitarfélaga því ekki útboðsskyld nema þau nái viðmiðunarfjárhæðum fyrir opinber innkaup á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. 4. mgr. greinarinnar. Í athugasemdum með frumvarpi sem varð að lögum nr. 120/2016 kemur skýrt fram að ætlunin sé að viðhalda óbreyttu fyrirkomulagi hvað varðar innkaup sveitarfélaga til 31. maí 2019 og gefa sveitarfélögum þannig svigrúm til þess að laga innkaupareglur sínar og ferli að hinum nýju lögum. Samkvæmt þessu fjallar kærunefnd útboðsmála, að svo stöddu, aðeins um lögmæti innkaupa sveitarfélaga að því marki sem þau eru útboðsskyld á Evrópska efnahagssvæðinu.

Í máli þessu stefndi varnaraðili að gerð verksamnings í skilningi 2. mgr. 4. gr. laga um opinber innkaup, eins og greinin verður skýrð með hliðsjón af II. viðauka við tilskipun nr. 2014/24/ESB um opinber innkaup. Samkvæmt reglugerð nr. 178/2018 um auglýsingu innkaupa á útboðsvef, viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa og innkaup samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup er viðmiðunarfjárhæð vegna innkaupa sveitarfélaga á verkum 721.794.800 krónur. Samkvæmt gögnum málsins var kostnaðaráætlun í hinu kærða útboði 56.900.000 krónur og voru öll tilboð sem bárust í útboðinu undir þeirri viðmiðunarfjárhæð. Verður því að leggja til grundvallar að hin kærðu innkaup hafi ekki náð viðmiðunarfjárhæð vegna útboðsskyldu á EES-svæðinu og fellur ágreiningur aðila þar af leiðandi ekki undir úrskurðarvald kærunefndar útboðsmála. Af þeim sökum eru hvorki fyrir hendi skilyrði fyrir sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar né stöðvun samningsgerðar að kröfu kæranda.

Ákvörðunarorð:

Kröfu kæranda, Work North ehf., um að samningsgerð milli varnaraðila Kópavogsbæjar og Abltaks ehf. vegna útboðsins „Kársnesskóli við Skólagerði, niðurrif“ verði stöðvuð, er hafnað.

Reykjavík, 17. ágúst 2018.

Skúli Magnússon

Ásgerður Ragnarsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum