Hoppa yfir valmynd

Kærð er ákvörðun Fiskistofu að fella niður úthlutun aflamarks byggðakvóta Hólmavíkur í Standabyggð fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátanna Steinunnar ST-26 (6529), Rutar ST-50(6123), Glaðs ST-10 (7187) og Sæbyrs ST-25 (6625)

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru Ágústs Einars Eysteinssonar, Lækjartúni 2, Hólmavík, Þorbjörns Vals Þórðarsonar, Lækjartúni 8, Hólmavík, Gunnlaugs Bjarnasonar, Kópnesbraut 17, Hólmavík og Ellerts Jósteinssonar, Skólabraut 14, Hólmavík, dags. 3. desember 2012, sem barst ráðuneytinu 4. sama mánaðar, þar sem kærðar eru til ráðuneytisins ákvarðanir Fiskistofu, dags. 20. nóvember 2012, um að fella niður úthlutun aflamarks byggðakvóta Hólmavíkur í Strandabyggð fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátanna Steinunnar ST-26, skipaskrárnúmer 6529, Rutar ST-50, skipaskrárnúmer 6123, Glaðs ST-10, skipaskrárnúmer 7087 og Sæbyrs ST-25, skipaskrárnúmer 6625.


Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

 

Kröfur kærenda

Kærendur, Ágúst Einar Eysteinsson vegna bátsins Steinunnar ST-26 (6529), Þorbjörn Valur Þórðarson vegna bátsins Glaðs ST-10 (7087), Gunnlaugur Bjarnason vegna bátsins Rutar ST-50 (6123) og Ellert Jósteinsson vegna bátsins Sæbyrs ST-25 (6625) krefjast þess að felldar verði úr gildi ákvarðanir Fiskistofu, dags. 20. nóvember 2012, um að fella niður úthlutun aflamarks byggðakvóta Hólmavíkur í Strandabyggð fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátanna Steinunnar ST-26 (6529), Rutar ST-50 (6123), Glaðs ST-10 (7087) og Sæbyrs ST-25 (6625) og að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta byggðakvóta til bátanna í samræmi við kröfur og málsástæður í stjórnsýslukærunni.

 

Málsatvik

Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 27. mars 2012, sem birt var í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 28. sama mánaðar, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 á Hólmavík í Strandabyggð en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, sbr. og 5. gr. reglugerðar nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 10. apríl 2012. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hafði þá úthlutað 132 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Strandabyggðar samkvæmt umsókn sveitarfélagsins á grundvelli reglugerðar nr. 1181/2011, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2011/2012, og kom úthlutunin öll í hlut byggðarlagsins Hólmavíkur. Úthlutunin var tilkynnt Strandabyggð með bréfi, dags. 21. desember 2011.


Kærendur sóttu um byggðakvóta til Fiskistofu fyrir bátana Steinunni ST-26 (6529), með umsókn, dags. 18. janúar 2012, Rut ST-50 (6123) með umsókn, dags. 30. mars 2012, Glað ST-10 (7087) með umsókn, dags. 15. febrúar 2012 og Sæbyr ST-25 (6625), með umsókn dags. 18. janúar 2012.


Hinn 13. apríl 2012 tilkynnti Fiskistofa kærendum og öðrum útgerðaraðilum á Hólmavík í Strandabyggð ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa eða höfnun umsókna um úthlutun. Ákvarðanir Fiskistofu voru byggðar á 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, reglugerð nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012 og auglýsingu (II) nr. 297/2012, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta. Kærendum var tilkynnt að eftirtalinn byggðakvóti hafi komið í hlut bátanna: 4.925 þorskígildiskíló til Steinunnar ST-26 (6529), 5.079 þorskígildiskíló til Rutar ST-50 (6123), 5.091 þorskígildiskíló til Glaðs ST-10 (7087) og 5.419 þorskígildiskíló til Sæbyrs ST-25 (6625). Skiptingin kom fram á yfirlitsblaði sem fylgdi ákvörðununum.


Einnig kom fram í ákvörðunum Fiskistofu að þær væru kæranlegar til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá tilkynningum Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta eða höfnun umsókna um úthlutun.


Þá kom fram í ákvörðunum Fiskistofu að úthlutun fari ekki fram fyrr en að kærufresti liðnum, og að því tilskildu að skilyrði 6. gr. reglugerðar nr. 1182/2011 hafi verið uppfyllt.


Með bréfum, dags. 20. nóvember 2012, tilkynnti Fiskistofa kærendum og öðrum útgerðaraðilum á Hólmavík í Strandabyggð að stofnunin hafi lokið úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012. Einnig gerði Fiskistofa grein fyrir hvort einstök skip hafi uppfyllt skilyrði um löndun afla til vinnslu í byggðarlaginu Hólmavík samkvæmt 6. gr. reglugerðar nr. 1182/2011 og því magni aflamarks byggðakvóta sem yrði úthlutað til einstakra fiskiskipa. Í bréfum til kærenda, dags. 20. nóvember 2012, segir m.a. að samkvæmt gögnum Fiskistofu höfðu bátar kærenda þann 31. ágúst 2012 engum afla landað í samræmi við skilgreiningu 6. gr. reglugerðar nr. 1182/2011. Bátarnir hafi því ekki uppfyllt skilyrði til að fá úthlutað af byggðakvóta Hólmavíkur í Strandabyggð fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 en samkvæmt því var felld niður úthlutun þess aflamarks byggðakvóta sem úthlutað hafði verið til bátanna.


Þá kom fram í ákvörðunum Fiskistofu að þær væru kæranlegar til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindum tilkynningum Fiskistofu en það ráðuneyti hafði þá tekið við verkefnum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins samkvæmt lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. nú forsetaúrskurður nr. 71/2013, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

Málsástæður í stjórnsýslukæru o.fl.

Með bréfi, dags. 3. desember 2012, sem barst ráðuneytinu 4. sama mánaðar, kærðu Ágúst Einar Eysteinsson, Þorbjörn Valur Þórðarson, Gunnlaugur Bjarnason og Ellert Jósteinsson framangreindar ákvarðanir Fiskistofu, dags. 20. nóvember 2012, til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.


Í stjórnsýslukærunni segir m.a. að öllum afla sem bátar kærenda komu með að landi í Strandabyggð hafi verið landað til vinnslu á Fiskmarkað Hólmavíkur sem hafði þá þegar tekið við afla frá flestum útgerðum á Hólmavík og þær útgerðir fengið úthlutaðan sinn hluta af byggðakvóta án athugasemda. Kærendur fari því fram á að afli þeirra verði skilgreindur sem afli til vinnslu eins og allur afli sem kom af bátum sem stunduðu grásleppuveiðar og lönduðu í þessa sömu vinnslu. Óskað sé eftir að Strandabyggð verði skilgreind án bolfiskvinnslu og löndun á mótframlagi til vinnslu í byggðarlaginu aflétt. Bolfiskvinnsla sem hafi verið reynt setja á stofn á Hólmavík vorið 2012 hafi ekki haft áhuga á að fá fisk frá útgerðum kærenda til vinnslu. Með því að gera grásleppu og rækju að þorskígildum og samþykkja sem mótframlag fyrir úthlutun byggðakvóta hafi minnkað möguleikar fyrir bolfisk í vinnsluna um á annað hundruð tonn. Sveitarstjórn Strandabyggðar hafi farið fram á að vinnsluskyldu yrði aflétt á byggðakvóta með bréfi, dags. 19. janúar 2012, en þeirri beiðni hafi verið hafnað með bréfi ráðuneytisins, dags. 13. febrúar 2012. Óskað sé eftir að þessi beiðni verði tekin fyrir aftur og ákvörðuninni verði breytt þannig að vinnsluskyldunni verði aflétt og með því farið að óskum sveitarstjórnar Strandabyggðar. Það sé með ólíkindum hvernig staðið hafi verið skilyrðum vegna úthlutunar byggðakvóta. Fisktegundir sem veiddar séu í dagakerfi og hafi aldrei verið í kvótakerfi séu allt í einu orðnar ígildi þorsks og samþykktar sem mótframlag til vinnslu. Þessar ákvarðanir hafi haft þau áhrif að kærendur hafi engin tök haft á að uppfylla sett skilyrði eftir það.


Stjórnsýslukærunni fylgdu bréf frá sveitarstjórn Strandabyggðar til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, dags. 19. janúar og 15. febrúar 2012 og bréf ráðuneytisins til sveitarstjórnar Strandabyggðar, dags. 13. febrúar 2012.


Með bréfi, dags. 4. desember 2012, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um málið, staðfestum afritum af hinum kærðu ákvörðunum auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.


Með bréfi, dags. 12. desember 2012, barst ráðuneytinu umsögn Fiskistofu um málið en þar segir m.a. að eins og komi fram í stjórnsýslukærunni hafi bátarnir Steinunn ST-26 (6529), Rut ST-50 (6123), Glaður ST-10 (7087) og Sæbyr ST-25 (6625) landað bolfiskafla sínum á Fiskmarkað Hólmavíkur, en ekki til vinnslu, enda hafi ekki borist vigtar- og ráðstöfunarskýrslur varðandi bolfiskafla þessara báta. Skilyrði 6. gr. reglugerðar nr. 1182/2011 hafi því ekki verið uppfyllt fyrir því að ofangreindir bátar fengju úthlutun af byggðakvóta Hólmavíkur í Strandabyggð fiskveiðiárið 2011/2012. Fiskistofa taki ekki afstöðu til þess hvers vegna umræddir bátar hafi ekki landað afla sínum til vinnslu. Slík ákvörðun sé alfarið á hendi útgerða umræddra báta.


Eftirtalin gögn fylgdu umsögn Fiskistofu í ljósritum: staðfest afrit af hinum kærðu ákvörðunum Fiskistofu, dags. 20. nóvember 2012, eldri ákvarðanir Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta til bátanna, dags. 13. apríl 2012, umsóknir kærenda, dags. 18. janúar, 15. febrúar og 30. mars 2012 o.fl.


Með bréfi, dags. 20. febrúar 2013, sendi ráðuneytið kærendum ljósrit af framangreindri umsögn Fiskistofu, dags. 12. desember 2012, og veitti þeim kost á að gera athugasemdir við hana. Frestur til þess var veittur til og með 7. mars 2013.


Með bréfi, dags. 4. mars 2013, bárust ráðuneytinu athugasemdir frá kærendum um framangreinda umsögn Fiskistofu. Þar kemur fram m.a. að kærendur árétti kröfu um að úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 í Strandabyggð verði endurskoðuð og óski eftir að bátar þeirra fái úthlutun byggðakvóta. Það sé rétt sem komi fram í umsögn Fiskistofu, dags. 12. desember 2012, að bátar kærenda hafi landað afla sínum á Fiskmarkað Hólmavíkur en það hafi einnig nokkrir aðrir bátar gert sem hafi fengið þennan afla metinn sem mótframlag á móti byggðakvóta. Sá afli sem bátar kærenda lönduðu á Hólmavík hafi verið unninn á sama veg og fiskur sem hafi farið í svokallaða vinnslu sem stofnuð hafi verið á Hólmavík á vormánuðum 2012. Þá hafi kærendur engan þátt átt í þeirri ákvörðun að hætt hafi verið að taka á móti fiski til vinnslu í svokallaðri fiskvinnslu á Hólmavík sumarið 2012 og telji ekki rétt að þeir beri ábyrgð á þeirri ákvörðun.

Rökstuðningur

I. Kæra í máli þessu er byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum en þar kemur fram að ákvarðanir Fiskistofu um úthlutun aflaheimilda samkvæmt greininni sé heimilt að kæra til ráðuneytisins, þ.e. atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Að mati ráðuneytisins verður að skýra ákvæðið með hliðsjón af ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sem einnig gilda um meðferð þessa máls að því leyti sem ekki eru sérstök ákvæði um það í framangreindum lögum nr. 116/2006. Kæruheimild samkvæmt ákvæðinu byggir því að mati ráðuneytisins á því með sama hætti og gert er ráð fyrir í 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, að kærðar séu tilteknar ákvarðanir sem teknar hafa verið um úthlutun aflaheimilda í byggðarlögum til einstakra fiskiskipa til þess að fá þær felldar úr gildi eða þeim breytt. Einnig byggir kæruheimild samkvæmt ákvæðinu á því að kærðar séu tilteknar ákvarðanir sem teknar hafa verið af stjórnvöldum, þ.e. stjórnvaldsákvarðanir. Í 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir m.a. að lögin gildi þegar stjórnvöld, þar á meðal stjórnsýslunefndir, taki ákvarðanir um rétt eða skyldu manna en einnig kemur þar fram að þau gildi þó ekki um samningu reglugerða né annarra stjórnvaldsfyrirmæla. Það er mat ráðuneytisins að málsástæður í stjórnsýslukæru í máli þessu varði að hluta aðeins efni auglýsingar (II) nr. 297/2012, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta, þ.e. reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Strandabyggð fyrir fiskveiðiárið 2011/2012. Ekki er unnt að kæra með stjórnsýslukæru til ráðuneytisins setningu reglugerða og annarra stjórnvaldsfyrirmæla, sbr. framangreint ákvæði 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Ráðuneytið hafnar þegar af þeirri ástæðu kröfu kærenda um að breytt verði ákvæðum framangreindrar auglýsingar (II) nr. 297/2012, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.


II. Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 gildir ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. greinarinnar er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.


Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 1182/2011, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á umræddu fiskveiðiári en þau eru: a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2011 og c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2011. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.


Einnig eru í 4. gr. reglugerðarinnar viðmiðanir um úthlutun aflaheimilda til einstakra fiskiskipa en samkvæmt ákvæðinu er gert ráð fyrir að úthlutun aflaheimilda skuli fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði reglugerðarinnar og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið hefur staðfest, eftir því sem við á, og skuli úthlutað hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum fellur niður úthlutun til þess og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum.


Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök viðbótarskilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum, sem víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum sem ráðherra setur í reglugerð, enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Sambærileg ákvæði eru í 2. gr. reglugerðar nr. 1182/2011.


Í 7. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 kemur fram að fiskiskipum sé skylt að landa til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga afla sem nemi í þorskígildum talið tvöföldu magni þeirra aflaheimilda sem þau fá úthlutað skv. 2. tölul. 1. mgr. greinarinnar og að úthlutun til þeirra skuli ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði sé uppfyllt samkvæmt nánari reglum sem ráðherra setur. Ráðherra er heimilt að fengnum rökstuddum tillögum sveitarstjórnar að víkja frá þessu skilyrði enda sé það gert á grundvelli málefnalegra og staðbundinna ástæðna.


Í 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1182/2011 er sambærilegt ákvæði og framangreint ákvæði en þar kemur fram að fiskiskipum sé skylt að landa til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga á tímabilinu frá 1. september 2011 til 31. ágúst 2012 afla sem nemi, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þeirra aflaheimilda sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerðinni og að úthlutun til þeirra skuli ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði sé uppfyllt. Ráðherra er þó heimilt að fengnum rökstuddum tillögum sveitarstjórnar að víkja frá þessu skilyrði enda sé það gert á grundvelli málefnalegra og staðbundinna ástæðna. Í 2.-5. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar eru ítarlegri ákvæði um efni og framkvæmd greinarinnar. Þá kemur fram í 6. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar m.a. að hafi skilyrði fyrir úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa ekki verið uppfyllt að fullu í lok þess tímabils sem kemur fram í 1. mgr. greinarinnar, falli niður réttur til aflamarks í hlutfalli við það sem upp á vanti að skilyrði séu uppfyllt.


Sett hafa verið sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á Hólmavík í Strandabyggð fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 með auglýsingu (II) nr. 297/2012, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta. Þar segir m.a. að ákvæði reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 gildi um úthlutun byggðakvóta Strandabyggðar með þeim breytingum m.a. að ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist á þann veg að fiskiskipum sé skylt að landa til vinnslu innan byggðarlagsins á tímabilinu frá 1. september 2011 til 31. ágúst 2012 afla sem nemi, í þorskígildum talið, jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerðinni og að úthlutun til þeirra skuli ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði sé uppfyllt skv. vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafi Fiskistofu.


Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa á Hólmavík í Strandabyggð fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, ákvæðum reglugerðar nr. 1182/2011 og auglýsingu (II) nr. 297/2012.


Eins og kemur fram í hinum kærðu ákvörðunum Fiskistofu, dags. 20. nóvember 2012, höfðu bátarnir Steinunn ST-26 (6529), Rut ST-50 (6123), Glaður ST-10 (7087) og Sæbyr ST-25 (6625) engum afla landað til vinnslu á Hólmavík í Strandabyggð á tímabilinu frá 1. september 2011 til 31. ágúst 2012, í samræmi við framangreind ákvæði 7. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, 6. gr. reglugerðar nr. 1182/2011 og auglýsingar (II) nr. 297/2012 samkvæmt þeim upplýsingum sem skráðar eru hjá Fiskistofu og byggðar eru á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa stofnuninni. Bátarnir höfðu samkvæmt því ekki uppfyllt skilyrði fyrir úthlutun aflamarks byggðakvóta Hólmavíkur í Strandabyggð í lok fiskveiðiársins 2011/2012 en þá féll niður réttur bátanna til úthlutunar aflamarksins, sbr. 6. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1182/2011. Þegar af framangreindri ástæðu telur ráðuneytið ekki unnt að fallast á kröfur kærenda í máli þessu um að fella úr gildi hinar kærðu ákvarðanir Fiskistofu, dags. 20. nóvember 2012.


Þá er það mat ráðuneytisins að aðrar málsástæður kærenda sem koma fram í stjórnsýslukærunni geti ekki haft þýðingu fyrir niðurstöðu þessa máls.


Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að staðfesta beri hinar kærðu ákvarðanir Fiskistofu, dags. 20. nóvember 2012.


Úrskurður þessi er kveðinn upp í fjórum samritum, einu fyrir hvern málsaðila.


Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.

Úrskurður

Ráðuneytið staðfestir ákvarðanir Fiskistofu, dags. 20. nóvember 2012, um að fella niður úthlutun aflamarks byggðakvóta Hólmavíkur fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 til bátanna Steinunnar ST-26, skipaskrárnúmer 6529, Rutar ST-50, skipaskrárnúmer 6123, Glaðs ST-10, skipaskrárnúmer 7087 og Sæbyrs ST-25, skipaskrárnúmer 6625.


Fyrir hönd ráðherra


Jóhann Guðmundsson.

Sigríður Norðmann.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum