Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 17/2015

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hinn 30. júlí 2015 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 17/2015.

1. Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 5. janúar 2015, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði ákveðið á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar þar sem hún hafi verið við vinnu samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Var það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skyldi ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún hefði starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. september 2014 til 30. september 2014, samtals að fjárhæð 60.760 kr. með 15% álagi.

Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar nýrra gagna. Með bréfi, dags. 23. janúar 2015, tilkynnti Vinnumálstofnun kæranda að það hefði verið mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun, enda hafi sú ákvörðun haft að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn í málinu hafi borist. Mál kæranda var í annað sinn tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar erindis frá kæranda sem barst stofnuninni 27. janúar 2015. Með bréfi, dags. 5. febrúar 2015, tilkynnti Vinnumálstofnun kæranda að það hefði verið mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun, enda hafi sú ákvörðun haft að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir að ný gögn í málinu hafi borist.

Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 9. febrúar 2015. Kærandi krefst þess að 15% álagsgreiðslan verði látin falla niður. Vinnumálastofnun telur að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 29. janúar 2013 og reiknaðist með 50% bótarétt. Með bréfi, dags. 8. desember 2014, var kæranda tilkynnt að við samkeyrslu tölvugagna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi komið fram upplýsingar um ótilkynntar tekjur kæranda í september 2014 að fjárhæð 180.000 kr. Í bréfinu var óskað eftir skriflegum skýringum á ótilkynntum tekjum. Engar athugasemdir bárust frá kæranda.

Með bréfi, dags. 5. janúar 2015, var kæranda tilkynnt um viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar. Í kjölfarið barst stofnuninni tilkynning um tilfallandi tekjur kæranda og var því mál hennar tekið fyrir að nýju á fundi stofnunarinnar þann 20. janúar 2015. Með bréfi, dags. 23. janúar 2015, var kæranda tilkynnt um að fyrri ákvörðun stofnunarinnar væri staðfest.  

Þann 27. janúar barst Vinnumálastofnun skýringarbréf frá kæranda þar sem segir meðal annars að hún hafi ekki gert sér grein fyrir því að hún hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur og að henni hafi ekki verið kunnugt um að óheimilt væri að þiggja verktakagreiðslur samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Óskaði kærandi eftir því að stofnunin myndi endurskoða ákvörðun sína um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta, eða í hið minnsta að 15% álag sem lagt var á skuld hennar yrði fellt niður. Með bréfi, dags. 5. febrúar 2015, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda að málið hafi verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna og að það hafi verið mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun.  

Af hálfu kæranda kemur fram í kæru, dags. 9. febrúar 2015, að vegna vankunnáttu hennar, heiðarleika og vilja til að afla sér vinnu hafi hún unnið í nokkra tíma við undirbúning og uppsetningu B. Hún hafi fengið verktakagreiðslu fyrir sem hún hafi þurft að borga skatta af þannig eftir stóðu 70.000 kr. Hún hafi haldið að hún gæti fengið 50% atvinnuleysisbætur á móti þeim greiðslum eins og hún hafi verið búin að fá undanfarna mánuði. Hún krefst þess að hin kærða ákvörðun verði endurskoðuð eða í það minnsta að álagsgjaldið verði niðurfellt.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 20. mars 2015, segir að mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar þar sem kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Kæranda hafi einnig verið gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laganna.

Bent er á að annar málsliður 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar taki á því þegar atvinnuleitandi starfi á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín. Fram komi í 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laganna að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. sömu laga sé að finna nánari útfærslu á því hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfi á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu né í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Á þeim sem fái greiðslur atvinnuleysistrygginga frá Vinnumálastofnun hvíli rík skylda til að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar um hagi viðkomandi. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé að finna ákvæði þar sem þessi skylda sé ítrekuð. Þannig segi í 3. mgr. 9. gr. laganna að sá sem teljist tryggður á grundvelli laga þessara skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysistrygginga eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um tekjur sem hann fái fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir eða ef atvinnuleit sé hætt.

Vinnumálastofnun bendir á að við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi komið í ljós að kærandi hafi reiknað sér endurgjald fyrir septembermánuð sem hún hafi ekki tilkynnt stofnuninni um. Í skýringum kæranda til stofnunarinnar, dags. 27. janúar 2015, kveðst hún ekki hafa haft vitneskju um að henni hafi verið óheimilt að starfa sem verktaki samhliða greiðslum atvinnuleysistrygginga.

Rík skylda hvíli á þeim sem njóta greiðslna atvinnuleysistrygginga að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar sem geta ákvarðað bótarétt viðkomandi. Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum að tilkynna til stofnunarinnar að atvinnuleit sé hætt eða tilkynningu um tekjur, sbr. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum við stofnunina og eigi að sæta viðurlögum í samræmi við brot sitt. Hvað varði röksemdir kæranda að hún hafi ekki haft vitneskju um að henni hafi verið óheimilt að starfa sem verktaki samhliða greiðslum atvinnuleysistrygginga þá vísi Vinnumálastofnun til þess að almennt sé ekki unnt að bera fyrir sig vankunnáttu á réttarreglum til að komast hjá íþyngjandi ákvörðunum stjórnvalda. Vinnumálastofnun telji því ekki ástæðu að meta atvinnuleitendum það til málsbóta að viðkomandi hafi ekki verið kunnugt um þær skyldur sem á honum hvíli.

Samkvæmt ofangreindu hafi kærandi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 60.760 kr. með 15% álagi sem henni beri að endurgreiða, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 25. mars 2015, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 13. apríl 2015. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2. Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sbr. 23. gr. laga nr. 134/2009 og 4. gr. laga nr. 103/2011:

Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingarsem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þá segir í 35. gr. a:

Þeim sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum ber að tilkynna til Vinnumálastofnunar með að minnsta kosti eins dags fyrirvara um tilfallandi vinnu sem hann tekur á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum. Heimilt er þó að tilkynna samdægurs um tilfallandi vinnu enda sé um að ræða tilvik sem er þess eðlis að mati Vinnumálastofnunar að ekki var unnt að tilkynna um hina tilfallandi vinnu fyrr. Í tilkynningunni skulu meðal annars koma fram upplýsingar um hver vinnan er, um vinnustöðina og um lengd þess tíma sem hinni tilfallandi vinnu er ætlað að vera.

Í meðförum úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hefur ákvæði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verið túlkað með þeim hætti að fyrsti málsliður þess eigi við ef atvinnuleitandi hefur með vísvitandi hætti hegðað sér með tilteknum hætti á meðan slíkt huglægt skilyrði á ekki við ef háttsemin fellur undir annan málslið ákvæðisins. Þessi munur stafar af því að annar málsliðurinn tekur á því þegar atvinnuleitandi starfar á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína skv. 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar að upplýsa Vinnumálastofnun um þessa atvinnuþátttöku. Vinnumálstofnun byggir á því að háttsemi kæranda falli undir síðari málsliðinn.

Samkvæmt gögnum málsins reiknaði kærandi sér endurgjald í september 2014. Úrskurðarnefnd atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerða telur því ljóst að kærandi hafi verið starfandi á innlendum vinnumarkaði í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar samhliða töku atvinnuleysisbóta.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið að kærandi hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um þessa vinnu sína. Atvinnuleitendum sem þiggja atvinnuleysisbætur ber að tilkynna Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar. Í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er jafnframt kveðið á um þá skyldu atvinnuleitanda að upplýsa Vinnumálastofnun um breytingar á högum viðkomandi eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, eins og námsþátttöku og tekjur fyrir tilfallandi vinnu.

Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu atvinnuleitanda sem kveðið er á um í 35. gr. a sömu laga, verður að telja að kærandi hafi brugðist trúnaðar- og upplýsingaskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun. Háttsemi kæranda hefur því réttilega verið heimfærð til ákvæðis 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda ber því að sæta viðurlögum þeim sem þar er kveðið á um, enda var hún starfandi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hún þáði atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um tilfallandi vinnu eða um tekjur. Þá er ákvæði 60. gr. fortakslaust en í því felst að ekki er heimild til að beita vægari úrræðum en ákvæðið kveður á um. Skal kærandi ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hún hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði.

Í 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um leiðréttingar á atvinnuleysisbótum og hljóðar 2. mgr. lagagreinarinnar svo:

Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ber því kæranda einnig að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem hún uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar auk 15% álags eða samtals 60.760 kr.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 5. febrúar 2015 í máli A, þess efnis að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hún hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og hún skuli endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur með 15% álagi, samtals að fjárhæð 60.760 kr., er staðfest.

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum