Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 46/2013, úrskurður 29. júlí 2013

Mál nr. 46/2013
Millinafn: Sig

 Hinn 29. júlí 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 46/2013 en erindið barst nefndinni 26. júlí:

Millinafnið Sig er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Sig uppfyllir þannig ákvæði  6. gr. fyrrnefndra laga.

 Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Sig er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum