Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 406/2017

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 406/2017

Miðvikudaginn 21. febrúar 2018

A og B

v/ C

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 31. október 2017, kærði A og B, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Tryggingastofnunar ríkisins frá 12. september 2017 um greiðslu umönnunarbóta, þar sem umönnun fóstur[…] þeirra C, var felld undir 3. flokk, 0% greiðslur.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Með umönnunarmati, dags. 12. september 2017, var umönnun fóstur[…] kærenda felld undir 3. flokk, 0% greiðslur, frá 1. júní 2017 til 31. júlí 2022 en kærendum var synjað um umönnunargreiðslur á þeim grundvelli að barn væri í fóstri og vistun væri greidd af félagsmálayfirvöldum.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 31. október 2017. Með bréfi, dags. 1. nóvember 2017, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 21. nóvember 2017, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún kynnt kærendum með bréfi, dags. 22. nóvember 2017. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kærenda

Kærendur gera þá kröfu að úrskurðarnefnd velferðarmála úrskurði um hvort kærð ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins standist lög.

Í kæru segir að rökstuðningur Tryggingastofnunar fyrir ákvörðun sinni sé undarlegur þar sem allir þeir aðilar sem hafi komið að greiningu barnsins sem og félagsmálayfirvöld auk barnaverndarnefndar hafi ekki virst hafa gert ráð fyrir öðru en barnið ætti rétt til þessara bóta. Óskað sé eftir skriflegu svari frá úrskurðarnefnd velferðarmála þar sem það sé staðfest að afgreiðsla Tryggingastofnunar sé samkvæmt gildandi lögum og í samræmi við tilgang laganna.

III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kærð sé ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins að synja kærendum um umönnunargreiðslur með fóstur[…] þeirra. Stofnunin hafi 12. september 2017 gert mat samkvæmt 3. flokki, 0% greiðslur, fyrir tímabilið frá 1. júní 2017 til 31. júlí 2022, þ.e. kærendum hafi verið synjað um umönnunargreiðslur þar sem ekki sé heimilt að greiða umönnunargreiðslur með börnum í vistun utan heimilis.

Kveðið sé á um heimild til fjárhagslegrar aðstoðar við framfærendur fatlaðra og langveikra barna í 4. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð. Þar segi að Tryggingastofnun sé heimilt að inna af hendi umönnunargreiðslur til framfærenda fatlaðra og langveikra barna sem dveljist í heimahúsi eða á sjúkrahúsi. Nánar sé fjallað um heimildir og skilyrði greiðslna í reglugerð nr. 504/1997, með síðari breytingum.

Í lagaákvæðinu og í 1. gr. reglugerðarinnar sé það gert að skilyrði fyrir fjárhagslegri aðstoð frá Tryggingastofnun að barn sé haldið sjúkdómi eða andlegri eða líkamlegri hömlun, og að sjúkdómur eða andleg eða líkamleg hömlun hafi í för með sér sannanleg tilfinnanleg útgjöld og sérstaka umönnun eða gæslu.

Í 2. mgr. 4. gr. laga um félagslega aðstoð segi að almenn leikskóla- og skólaþjónusta skerði ekki umönnunargreiðslur en önnur dagleg sértæk þjónusta og vistun utan heimilis, þar með talin umtalsverð skammtímavistun, skerði greiðslur.

Í 5. gr. reglugerðar nr. 504/1997 sé lagaákvæðið nánar útfært. Þar segir í 4. mgr. að umönnunargreiðslur til framfærenda falli niður við vistun á vistheimili eða vistun greidda af félagsmálayfirvöldum.

Hið kærða mat sé fyrsta mat Tryggingastofnunar vegna […]. Með umsókn kæranda, dags. 29. júní 2017, hafi fylgt læknisvottorð, dags. 7. júlí 2017, og tillaga að umönnunarmati, dags. 3. ágúst 2017.

Almennt sé litið svo á að venjulegur framfærslukostnaður barns sé fjárhæð sem svari til tvöfalds barnalífeyris, þ.e. einfalds frá hvoru foreldri. Úrskurðarnefnd almannatrygginga sé sammála þeirri túlkun í úrskurði sínum nr. 65/2014 og úrskurðarnefnd velferðarmála einnig í úrskurði sínum nr. 92/2016 og vísi þar til 2. málsl. 1. mgr. 20. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Tryggingastofnun og úrskurðarnefndin telji að sem meginreglu skuli líta á fósturráðstöfun, þar sem greiðslur til fósturforeldra með barni séu umfram venjulegan framfærslukostnað, sem vistun greidda af félagsmálayfirvöldum í skilningi ofangreinds reglugerðarákvæðis. Umönnunargreiðslum sé ætlað að mæta sannanlegum tilfinnanlegum útgjöldum og kostnaði við sérstaka umönnun eða gæslu barna, sbr. 4. gr. laga nr. 99/2007. Þessum útgjöldum megi, eðli málsins samkvæmt, ekki vera mætt af öðrum aðilum samtímis því að umönnunargreiðslur eigi sér stað.

Hjá Tryggingastofnun liggi fyrir upplýsingar um að […] hafi verið í fóstri hjá kærendum frá árinu X. Við meðferð kærunnar hafi verið óskað eftir því að skriflega yrði staðfest hvaða greiðslur væru greiddar með barninu til fósturforeldris og bárust umbeðnar upplýsingar með tölvupósti 13. nóvember 2017. Samkvæmt barnavernd fá kærendur greitt sem samsvari þreföldu meðlagi/barnalífeyri með […].

Með vísan til framanritaðs líti Tryggingastofnun svo á að vistun […] sé greidd af félagsmálayfirvöldum og að kostnaði við umönnun sé mætt. Af þeim sökum telji Tryggingastofnun að ekki sé heimild til að greiða kærendum umönnunargreiðslur.

IV. Niðurstaða

Mál þetta varðar synjun Tryggingastofnunar ríkisins frá 12. september 2017 um greiðslu umönnunarbóta vegna fóstur[…] kærenda. Í ákvörðuninni var umönnun […] metin til 3. flokks, 0% greiðslur, frá 1. júní 2017 til 31. júlí 2022.

Ákvæði um umönnunargreiðslur er í 4. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð. Segir í 1. mgr. 4. gr. að Tryggingastofnun ríkisins sé heimilt að taka aukinn þátt í greiðslu sjúkrakostnaðar ef andleg eða líkamleg hömlun barns hafi í för með sér tilfinnanleg útgjöld og sérstaka umönnun eða gæslu. Þá sé heimilt að inna af hendi umönnunargreiðslur til framfærenda barna með alvarleg þroskafrávik, sem jafna megi við fötlun, og barna með alvarleg hegðunarvandamál sem jafna megi við geðræna sjúkdóma. Í 2. mgr. ákvæðisins segir:

„Almenn leikskóla- og skólaþjónusta skerðir ekki umönnunargreiðslur. Önnur dagleg, sértæk þjónusta og vistun utan heimilis, þar með talin umtalsverð skammtímavistun, skerðir umönnunargreiðslur.“

Í 4. mgr. 4. gr. laga um félagslega aðstoð segir að ráðherra setji reglugerð um nánari framkvæmd greinarinnar. Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna nr. 504/1997, ásamt síðari breytingum. Skerðingar samkvæmt 2. mgr. 4. gr. framangreindra laga eru útfærðar í 4. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar og samkvæmt því ákvæði falla umönnunargreiðslur alveg niður við vistun á vistheimili og vistun greidda af félagsmálayfirvöldum.

Um ráðstöfun barna í fóstur er fjallað í XII. kafla laga nr. 80/2002 um barnavernd. Í 75. gr. laganna segir að sveitarfélag sem ráðstafar barni í fóstur beri ábyrgð á að greiða fósturforeldrum framfærslueyri, fósturlaun eða eftir atvikum annan útlagðan kostnað vegna barnsins sem leiðir af ákvæðum laganna. Nánar er kveðið á um skiptingu kostnaðar í reglugerð nr. 804/2004 um fóstur. Í 24. gr. reglugerðarinnar er að finna viðmið um hvað teljist framfærslueyrir, fósturlaun og annar kostnaður og tekið er fram að framfærslueyrir og fósturlaun skuli nema samanlagt að lágmarki tvöföldum barnalífeyri. Þá beri að öðru leyti að meta fjárhæðir með hliðsjón af þörfum barns hverju sinni. Getið er sérstaklega um greiðslur til fósturforeldra vegna sérstaks og ófyrirséðs kostnaðar vegna barns sem er í fóstri og útgjalda vegna umtalsverðrar heilbrigðisþjónustu, svo sem vegna alvarlegra eða langvarandi sjúkdóma.

Samkvæmt gögnum málsins hefur C verið í varanlegu fóstri hjá kærendum frá X og fá þau greitt sem nemur þreföldum barnalífeyri með […]. Með hliðsjón af framangreindu er það mat nefndarinnar að vistunin sé greidd af félagsmálayfirvöldum, sbr. 5. málsl. 4. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 504/1997 um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna.

Með hliðsjón af framangreindu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um synjun á umönnunargreiðslum til kærenda.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja A og B, um umönnunargreiðslur vegna C, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum