Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 1/2015

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík

                                                          

Miðvikudaginn 25. mars 2015 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 1/2015:

 

Kæra A

á ákvörðun

Reykjavíkurborgar

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

 

A hefur með bréfi, dags. 6. janúar 2015, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 17. desember 2014, á umsókn hans um námsstyrk á vorönn 2015.

 

 

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 10. nóvember 2014, sótti kærandi um námsstyrk hjá Reykjavíkurborg vegna vorannar 2015. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 15. desember 2014, á þeirri forsendu að kærandi uppfyllti ekki skilyrði 12. og 18. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð. Kærandi áfrýjaði synjuninni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 17. desember 2014 og samþykkti svohljóðandi bókun:

"Velferðarráð staðfesti synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar um fjárhagsaðstoð tímabilið 1. janúar 2015 til 31. maí 2015 skv. 18. sbr. 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð.

Niðurstaða velferðarráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 17. desember 2014. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 6. janúar 2015. Með bréfi, dags. 12. janúar 2015, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir öllum gögnum málsins, þar á meðal umsókn kæranda, ákvörðun sveitarfélagsins og gögnum um fjárhag kæranda. Enn fremur var óskað eftir greinargerð Reykjavíkurborgar þar sem fram kæmi meðal annars rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 16. janúar 2015. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 20. janúar 2015, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki. Með tölvupósti þann 19. mars 2014 óskaði úrskurðarnefndin eftir gögnum frá Reykjavíkurborg um eignir kæranda og bárust þau með bréfi, dags. 23. mars 2015.

 

II. Málsástæður kæranda

Kærandi greinir frá því að umsókn hans hafi verið synjað þar sem hann ætti inneign í banka. Hann hafi átt um 700.000 krónur í banka í nóvember 2014 sem hafi verið sparnaður frá unga aldri en þar sem hann hafi þurft að sjá fyrir sér undanfarna mánuði standi ekkert eftir. Kærandi kveðst stríða við námserfiðleika og eiga erfitt með að finna vinnu vegna sinna aðstæðna. Þá sé kærandi ekki með sterkt bakland og því óvíst hvort hann geti haldið áfram í skóla.

 

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda og fjölskyldu hans. Kærandi stundi nám við framhaldsskóla sem gangi vel með aðstoð námsráðgjafa. Kærandi hafi óskað eftir námsaðstoð fyrir vorönn 2015 en á umsóknartíma hafi hann átt í kringum 800.000 krónur á bankabók. Hann hafi því ekki uppfyllt skilyrði 12. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð sem snúi að réttinum til fjárhagsaðstoðar og því hafi umsókn hans verið synjað. Kærandi hafi átt eignir umfram það sem kveðið væri á um í 12. gr. reglnanna en fjárhagsaðstoð væri neyðaraðstoð og því beri kæranda að nýta þær eignir áður en hann leiti eftir fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi. Ákvæði 18. gr. reglnanna um námsstyrk sé heimildarákvæði og í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga sé ekki að finna ákvæði sem skyldi sveitarfélög til að veita námsstyrk þótt skilyrði ákvæðisins séu uppfyllt.

 

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 63. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Fyrir nefndinni liggja reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg frá 1. janúar 2011, með síðari breytingum. Í máli þessu er ágreiningur um hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um námsstyrk á vorönn 2015.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Umsókn kærandi um námsstyrk fyrir vorönn 2015 var synjað á þeirri forsendu að skilyrði 18. gr., sbr. 12. gr., reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg hafi ekki verið uppfyllt. Í 5. mgr. 12. gr. reglnanna kemur fram að eigi umsækjandi, maki hans eða sambýlingur, eignir umfram íbúðarhúsnæði sem umsækjandi eða fjölskylda hans býr í og eina fjölskyldubifreið, eða hafi hann nýlega selt eignir sínar, skal honum vísað á lánafyrirgreiðslu banka og sparisjóða, þótt tekjur hans séu lægri en grunnfjárhæð. Í málum er varða framangreint ákvæði hefur úrskurðarnefndin litið þannig á að fjárhagsaðstoð sé neyðarúrræði fyrir þá sem hafa ekki aðgang að lausum fjármunum til framfærslu. Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði og fjölskyldubifreið sé eðlilegt að nota sem neyðarúrræði við framfærslu áður en fengin er fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu. Óumdeilt er að kærandi átti bankainnistæðu á umsóknartíma að fjárhæð u.þ.b. 800.000 krónur.

Úrskurðarnefndin tekur fram að hverjum manni er skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára, sbr. 19. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Reykjavíkurborg veitir fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Ákvæði 5. mgr. 12. gr. reglnanna byggist á þeim grundvelli að eigi umsækjandi um fjárhagsaðstoð eignir umfram íbúðarhúsnæði og eina fjölskyldubifreið skuli hann nota þær eignir til framfærslu eða til tryggingar fyrir láni frá banka eða sparisjóði. Það er mat úrskurðarnefndarinnar að í máli þessu verði ekki hjá því litið að kærandi átti ótvírætt eignir umfram íbúðarhúsnæði og eina fjölskyldubifreið, sbr. 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Honum bar því að nýta þær sér til framfærslu ellegar til tryggingar fyrir láni. Úrskurðarnefndin telur því að Reykjavíkurborg hafi verið rétt að synja umsókn kæranda um námsstyrk á grundvelli 12. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborgar.

Almennt ber sveitarfélögum að gæta jafnræðis og samræmis við ákvörðun um fjárhagsaðstoð. Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekkert hafi komið fram um að mat Reykjavíkurborgar á aðstæðum kæranda hafi verið ómálefnalegt eða andstætt þeim reglum sem um það gilda. Með vísan til þessa ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 17. desember 2014, um synjun á umsókn A um námsstyrk á vorönn 2015 er staðfest.

 

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson 

Gunnar Eydal

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum