Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 43/2018 Úrskurður 22. ágúst 2018

Mál nr. 43/2018                    Millinafn:       Lindberg

 

 

 

Hinn 22. ágúst 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 43/2018 en erindið barst nefndinni 6. júní.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslenskumáli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má eki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Nafnið Lindberg telst dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn karla né kvenna. Millinafnið Lindberg uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga. Nafnið er heldur ekki ættarnafn í skilningi 7. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Lindberg er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum