Hoppa yfir valmynd

Synjun Vinnumálastofnunar frá 10. maí 2007 staðfest

Mánudaginn 5. maí 2008 var í félags- og tryggingamálaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

ú r s k u r ð u r:

Með erindi, dags. 30. maí 2007, kærði A hdl., fyrir hönd B, ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. maí 2007, um synjun á veitingu atvinnuleyfis fyrir C, sem er víetnamskur ríkisborgari.

 

I. Málavextir og málsástæður.

Mál þetta varðar synjun Vinnumálastofnunar á veitingu atvinnuleyfis til handa B í því skyni að ráða til starfa C, sem er víetnamskur ríkisborgari. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu atvinnuleyfisins með vísan til a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum.

Þeirri ákvörðun vildi kærandi ekki una og kærði hana til ráðuneytisins. Í erindi kæranda kemur fram að hann sé eigandi fyrirtækisins B sem sjái um að flytja fatnað frá Víetnam til Íslands. Starf kæranda sé mjög sérhæft og krefjist víðtækrar þekkingar, ekki einungis á víetnömskum fatnaði heldur einnig menningu og sögu landsins og tengslum þess við þær vörur sem kærandi hefur til sölu í verslun sinni. Að mati kæranda er ekki unnt að finna starfsfólk innan Evrópska efnahagssvæðisins sem býr yfir þeirri kunnáttu sem nauðsynleg sé til að rekstur fyrirtækisins geti haldið áfram. Enn fremur kemur fram að kærandi telji fullvíst að rekstur verslunarinnar líði undir lok verði honum ekki veitt atvinnuleyfi hér á landi. Þá kemur fram að kærandi telur að lagaheimildir séu ekki nægilega skýrar til að unnt sé að gera kröfu um að sjálfstætt starfandi einstaklingar auglýsi eftir fólki til starfa í sinn stað, sérstaklega ekki í þeim tilfellum þegar þeir hafi sjálfir einstaka þekkingu á rekstri sínum.

Erindi kæranda var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 4. júní 2007, og ítrekaði ráðuneytið erindi sitt með bréfi, dags. 4. júlí 2007. Þá ítrekaði ráðuneytið beiðni sína til Vinnumálastofnunar um umsögn vegna umræddrar stjórnsýslukæru með bréfi, dags. 3. ágúst 2007, þar sem áhersla var lögð á að Vinnumálastofnun bæri að veita umsagnir í málum sem kærð væru til ráðuneytisins í tengslum við ákvarðanir stofnunarinnar um synjun eða afturköllun atvinnuleyfa enda væri ráðuneytinu ekki unnt að komast að efnislegri niðurstöðu í slíkum kærumálum nema að fenginni umsögn stofnunarinnar. Því væri mikilvægt að stofnunin veitti ráðuneytinu umbeðna umsögn án ástæðulausrar tafar. Svarbréf stofnunarinnar barst ráðuneytinu 13. ágúst 2007.

Í umsögn sinni ítrekar Vinnumálastofnun afstöðu sína til málsins sem fram kemur í synjunarbréfi stofnunarinnar, dags. 10. maí 2007, þess efnis að skv. 7. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, sé heimilt að veita leyfi til að ráða útlendinga til starfa hérlendis að uppfylltum tilteknum skilyrðum, svo sem að kunnáttumenn verði ekki fengnir innan lands eða að atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl. Enn fremur bendir stofnunin á að skv. viðauka B við aðildarsamning EES sé aðildarríkjum gert að veita ríkisborgurum þeirra aðildarríkja, sem gengu til liðs við Evrópusambandið sem og Evrópska efnahagssvæðið 1. maí 2004, forgang fram yfir ríkisborgara ríkja sem standa utan Evrópska efnahagssvæðisins að því er varðar aðgengi að vinnumörkuðum sínum. Því beri að leita aðstoðar vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu fáist ekki vinnuafl innan lands. Atvinnurekanda beri því að hafa óskað eftir aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að vinnuafli áður en stofnunin geti veitt atvinnuleyfi. Að mati stofnunarinnar hafi framangreind skilyrði ekki verið uppfyllt í máli þessu.

Í umsögn sinni bendir stofnunin jafnframt á að þeim sem hefja atvinnurekstur hér á landi sé skylt að tilkynna um það til launagreiðendaskrár hjá skattyfirvöldum innan átta daga frá því að fyrsta launagreiðslan var innt af hendi. Sé um virðisaukaskattskylda starfsemi að ræða skuli tilkynna um hana til virðisaukaskattskrár hjá skattyfirvöldum átta dögum áður en starfsemin hefst. Fram kemur að Vinnumálastofnun hafi leitað til skattstjórans í R-umdæmi til að fá nánari upplýsingar um atvinnurekstur kæranda eins og venja sé þegar fjallað er um umsóknir um atvinnuleyfi fyrir einstaklinga sem eru í sjálfstæðum atvinnurekstri, hvort sem um rekstur einkahlutafélags er að ræða eða þegar einstaklingur rekur fyrirtæki á eigin kennitölu. Samkvæmt upplýsingum frá embætti skattstjórans hafi kærandi hvorki skráð sig á launagreiðendaskrá sem sjálfstætt starfandi atvinnurekandi né hafi virðisaukaskattsnúmer verið skráð á kennitölu kæranda. Væri því ljóst að ekki væri um að ræða atvinnurekstur hjá kæranda. Tekur Vinnumálastofnun fram að þar sem B sé ekki atvinnurekandi sé ekki unnt að veita umrætt atvinnuleyfi.

Þá bendir Vinnumálastofnun á að engin gögn hafi fylgt með umsókn kæranda um atvinnuleyfið sem sýni að leitað hefði verið að starfsmanni í starfið af Evrópska efnahagssvæðinu sem hefði til að bera þá sérþekkingu sem krafa er gerð um. Í ljósi þess að kærandi teljist ekki atvinnurekandi í skilningi íslenskra laga þyki ekki ástæða til að fjalla nánar um þá málsástæðu í umsögn stofnunarinnar.

Með bréfi, dags. 13. september 2007, var kæranda gefinn kostur á að gera athugasemdir við umsögn Vinnumálastofnunar. Í svarbréfi kæranda, dags. 27. september 2007, kemur fram að kærandi hafi tilkynnt firmaskrá um starfsemi sína með bréfi, dags. 20. desember 2006, en samkvæmt þeirri tilkynningu sé tilgangur fyrirtækisins að flytja inn, selja og dreifa fatnaði. Í kjölfar tilkynningarinnar til firmaskrár hafi starfsemin verið auglýst í Lögbirtingi. Jafnframt hafi skattstjóranum í R-umdæmi verið tilkynnt um starfsemina með bréfi, dags. 28. desember 2006, en skattstjórinn hafi hafnað skráningu fyrirtækisins með tölvubréfi, dags. 12. janúar 2007, með þeim rökum að eigandinn hefði ekki lögheimili hér á landi. Enn fremur er vísað í athugasemdir við 3. gr. frumvarps þess er varð að lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, í því skyni að sýna fram á að kærandi uppfylli skilyrði þess að sækja um atvinnuleyfi samkvæmt lögunum. Með erindi kæranda fylgdu afrit af tilkynningu til firmaskrár, dags. 20. desember 2006, upplýsingum úr firmaskrá, dags. 27. september 2007, greiðslukvittun frá sýslumanninum í S, dags. 21. desember 2006, tilkynningu um virðisaukaskattskylda starfsemi, dags. 28. desember 2006, og tölvubréfi frá embætti skattstjórans í R-umdæmi, dags. 12. janúar 2007.

 

II. Niðurstaða.

Heimilt er að kæra til félags- og tryggingamálaráðuneytis ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun eða afturköllun atvinnuleyfis, sbr. 24. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum.

Mál þetta varðar synjun Vinnumálastofnunar á veitingu atvinnuleyfis til handa kæranda sem hefur hug á að starfa við eigin atvinnurekstur hér á landi en útlendingum sem þurfa atvinnuleyfi samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga er óheimilt að ráða sig til starfa eða starfa sjálfstætt án atvinnuleyfa hér á landi, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum.

Samkvæmt eldri lögum um atvinnuréttindi útlendinga var útlendingum sem hugðust stofna og reka fyrirtæki hér á landi veitt sérstök atvinnurekstrarleyfi að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Slík leyfi voru felld brott úr lögum á árinu 1993 en tekin upp aftur með lögum nr. 133/1994, um atvinnuréttindi útlendinga. Í athugasemdum við 3. gr. frumvarps þess er varð að lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, kemur fram að ástæður þess að atvinnurekstrarleyfi hafi verið tekin aftur upp með lögum nr. 133/1994 hafi meðal annars verið að „[t]alið var óeðlilegt að útlendingur sem hygðist stofna til rekstrar hér á landi ætti greiðari aðgang að atvinnulífi og vinnumarkaði en þeir sem réðu sig til almennra starfa“. Í frumvarpinu var engu síður lagt til að svokölluð atvinnurekstrarleyfi yrðu aftur felld brott þar sem þau þóttu ekki þjóna tilgangi sínum og mætti miklu frekar segja að um mismunun væri að ræða væru í gildi ólíkar reglur í tengslum við sjálfstæðan atvinnurekstur og almennt launafólk að þessu leyti. Því þætti eðlilegra að „fella niður sérstakt ákvæði um atvinnurekstrarleyfi þannig að ákvæði um atvinnuleyfi, auk reglna um dvalarleyfi, gildi með sama hætti um sjálfstæða atvinnurekendur og almenna launþega“. Enn fremur segir að „[n]iðurfelling atvinnurekstrarleyfa á auk þess ekki að hafa áhrif á útlendingaeftirlit þar sem erlendur aðili sem hyggst stofna til sjálfstæðs rekstrar verður eftir sem áður að uppfylla skilyrði laga um dvalarleyfi ásamt skilyrðum laga um atvinnuleyfi“. Með hliðsjón af framangreindu liggur því fyrir að ákvæðum laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, er ætlað að gilda með sama hætti um veitingu atvinnuleyfa vegna starfa útlendinga hér á landi, hvort sem þeir ráða sig til starfa hjá öðrum eða starfa sjálfstætt.

Atvinnuleyfi vegna starfa útlendinga eru veitt í samræmi við lög, reglugerðir settar með heimild í þeim og stefnu íslenskra stjórnvalda hverju sinni að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga þeirra. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga er það gert að skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að kunnáttumenn verði ekki fengnir innan lands, atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl eða aðrar sérstakar ástæður mæli með veitingu atvinnuleyfis. Þá er tekið fram að áður en atvinnuleyfi er veitt beri atvinnurekanda að hafa leitað til svæðisvinnumiðlunar eftir vinnuafli nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati Vinnumálastofnunar.

Í athugasemdum við 7. gr. frumvarps þess er varð að gildandi lögum um atvinnuréttindi útlendinga kemur fram að ákvæðið sé efnislega samhljóða ákvæðum eldri laga. Þessi skilyrði komu inn sem nýmæli í lög nr. 26/1982, um sama efni. Í athugasemdum við 4. gr. frumvarps þess er varð að þeim lögum kemur fram að færa skuli „rök fyrir nauðsyn þess að nota erlent starfsfólk og gera grein fyrir því hvaða tilraunir hafi verið gerðar til þess að ráða innlent starfsfólk í starfið. Gert er ráð fyrir því að vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins kanni síðan sjálfstætt áður en atvinnuleyfi er veitt, hvert atvinnuástand er á viðkomandi stað og leiti til sambanda aðila vinnumarkaðarins um almenna stefnumörkun í innflutningi erlends starfsfólks með sérstöku tilliti til atvinnuástands í landinu og á ákveðnum landssvæðum.“ Enn fremur var það talið lögbundið hlutverk vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins að „fylgjast náið með atvinnuástandi í landinu og reyna að koma í veg fyrir atvinnuleysi eftir bestu getu. Rétt þótti því að tengja veitingu atvinnuleyfa vegna erlendra starfsmanna þeim upplýsingum og því starfi sem unnið er á skrifstofunni að öðru leyti hvað varðar atvinnuástand í landinu.“

Verður ekki annað séð en að tilgangur skilyrðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. gildandi laga um atvinnuréttindi útlendinga sé í meginatriðum sá sami og áður enda ekkert annað komið fram í lögskýringargögnum. Þá var Vinnumálastofnun falið hlutverk vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins með lögum nr. 13/1997, um vinnumarkaðsaðgerðir, sbr. einnig lög nr. 55/2006, um sama efni. Með síðarnefndu lögunum voru svæðisvinnumiðlanir lagðar niður en skv. 10. gr. laganna var Vinnumálastofnun falið hlutverk þeirra. Af efni ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga má því ráða að mat Vinnumálastofnunar um hvort skilyrði þess fyrir veitingu tímabundinna atvinnuleyfa sé fullnægt skuli aðallega byggjast á aðstæðum á innlendum vinnumarkaði hverju sinni. Þar á meðal er átt við hið lögbundna hlutverk Vinnumálastofnunar að meta hvort leit atvinnurekanda að starfsmanni, sem þegar hefur aðgengi að íslenskum vinnumarkaði, sé fyrirsjáanlega árangurslaus og þar með ekki nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis.

Beiðni um aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði er því lögbundið skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis enda telji stofnunin leitina ekki fyrirsjáanlega árangurslausa. Í apríl 2007 voru að meðaltali 1.866 einstaklingar á atvinnuleysisskrá hér á landi samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun, sbr. yfirlit stofnunarinnar yfir atvinnuástand, nr. 4/2007, en það jafngildir 1,1% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði á þeim tíma. Á sama tíma var atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu 1,0% af áætluðum mannafla sem svarar til 981 einstaklings að meðaltali.

Við mat á því hvort skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga sé fullnægt ber Vinnumálastofnun jafnframt að líta til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. 2. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og b-lið 1. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 339/2005, um atvinnuréttindi útlendinga. Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að skapa skilyrði fyrir fulla atvinnu, bætt lífskjör og bætt starfsskilyrði á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. einnig lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum. Ákvæði 28.–30. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið fjalla síðan sérstaklega um frjálsa för launafólks sem nánar eru útfærð í gerðum um þetta efni og hafa verið felldar undir V. viðauka við samninginn. Samkvæmt reglugerð nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem innleidd var í íslenskan rétt með lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, skal sérhver ríkisborgari annars aðildarríkis njóta þeirra réttinda að ráða sig til starfa á yfirráðasvæði annars aðildarríkis með sama forgangsrétti og ríkisborgarar þess ríkis. Er þar jafnframt kveðið á um náið samstarf vinnumiðlana aðildarríkjanna um miðlun lausra starfa innan svæðisins. Það telst því felast í skuldbindingum íslenskra stjórnvalda samkvæmt framangreindum samningi að þau veiti launamönnum sem eru ríkisborgarar annarra aðildarríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að því er varðar aðgengi að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði.

Evrópska efnahagssvæðið stækkaði 1. maí 2004 er tíu ríki gerðust aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið til viðbótar þeim sem fyrir voru, sbr. aðildarsamning EES. Þessi ríki voru Eistland, Lettland, Litháen, Kýpur, Malta, Pólland, Slóvakía, Slóvenía, Tékkland og Ungverjaland. Reglum samningsins er í meginatriðum ætlað að gilda á öllu svæðinu en gerður var fyrirvari um gildistöku ákvæða 1.–6. gr. reglugerðar nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum. Samningarnir um inngöngu Eistlands, Lettlands, Litháens, Póllands, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklands og Ungverjalands í Evrópska efnahagssvæðið gerðu því ekki ráð fyrir að þau ákvæði giltu fyrst um sinn að því er varðar frjálsa för ríkisborgara þessara ríkja sem launamanna innan svæðisins. Íslensk stjórnvöld nýttu sér þennan fyrirvara með lögum nr. 19/2004, um breytingu á lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum.

Lög nr. 21/2006, um breytingu á lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, tóku síðan gildi 1. maí 2006 en með þeim var ríkisborgurum framangreindra ríkja veitt heimild til frjálsrar atvinnuleitar hér á landi og til að ráða sig til starfa án sérstakra atvinnuleyfa. Þar með njóta ríkisborgarar þessara ríkja réttinda til að ráða sig til starfa hér á landi með sama forgangsrétti og íslenskir ríkisborgarar.

Evrópska efnahagssvæðið stækkaði enn frekar 1. ágúst 2007 er Búlgaría og Rúmenía gerðust aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. aðildarsamning EES. Á sama hátt og gert var við fyrri stækkun svæðisins á árinu 2004 var gerður fyrirvari við gildistöku ákvæða 1.–6. gr. reglugerðar nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum. Íslensk stjórnvöld nýttu sér þennan fyrirvara með lögum nr. 106/2007, um breytingu á ýmsum lögum vegna samnings um þátttöku Lýðveldisins Búlgaríu og Rúmeníu á Evrópska efnahagssvæðinu. Þar á meðal var lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, og lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, breytt. Þrátt fyrir að sækja þurfi um atvinnuleyfi og dvalarleyfi fyrir ríkisborgara hinna nýju aðildarríkja skuldbundu stjórnvöld sig eigi síður til að veita launamönnum sem eru ríkisborgarar hinna nýju aðildarríkja forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að því er varðar aðgengi að vinnumarkaði sínum á aðlögunartímabilinu, sbr. viðauka B við aðildarsamning EES sem lögfestur var með lögum nr. 106/2007, um breytingu á ýmsum lögum vegna samnings um þátttöku Lýðveldisins Búlgaríu og Rúmeníu á Evrópska efnahagssvæðinu.

Stjórnvöld leggja því ríka áherslu á að í þeim tilvikum er vinnuafl skortir á innlendum vinnumarkaði þá leiti atvinnurekendur eftir starfsfólki á hinum sameiginlega vinnumarkaði Evrópska efnahagssvæðisins áður en leitað er út fyrir svæðið eftir launafólki. Á það ekki síst við í ljósi skuldbindinga stjórnvalda um miðlun lausra starfa innan svæðisins sem og langtímaáhrifa veitingar tímabundinna atvinnuleyfa á innlendan vinnumarkað, sbr. c-lið 1. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 339/2005, um atvinnuréttindi útlendinga. Það er því niðurstaða ráðuneytisins að það sé nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis að umsækjandi hafi áður leitað aðstoðar Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, eftir að leit hans innan lands hefur ekki skilað árangri. Jafnframt eru gerðar ríkar kröfur til atvinnurekanda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Í máli þessu taldi Vinnumálastofnun meginreglu ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga eiga við og því nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að umsækjandi hefði áður leitað aðstoðar stofnunarinnar. Þegar litið er til eðlis starfsins sem hér um ræðir verður ekki annað séð en að mat Vinnumálastofnunar um að kæranda hafi borið að leita til stofnunarinnar eftir starfsfólki á innlendum vinnumarkaði sem og af sameiginlegum vinnumarkaði Evrópska efnahagssvæðisins hafi byggst á málefnalegum sjónarmiðum. Af umsögn Vinnumálastofnunar má hins vegar ráða að kærandi hafi ekki óskað eftir aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsmanni til að gegna umræddu starfi, hvorki innanlands né af Evrópska efnahagssvæðinu með milligöngu Eures, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Þessu hefur kærandi ekki mótmælt.

Reynslan hefur sýnt að nokkur hreyfanleiki er meðal ríkisborgara þeirra ríkja sem gerðust aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið á árinu 2004 enda atvinnuleysi þar nokkuð. Fjöldi ríkisborgara þessara ríkja hefur ráðið sig til starfa hér á landi á undanförnum árum. Má þar nefna að á árinu 2005 voru 2.765 launamenn frá þessum aðildarríkjum ráðnir til starfa hjá atvinnurekendum á innlendum vinnumarkaði en á tímabilinu janúar til og með apríl 2006 var um að ræða 2.104 launamenn. Þessi þróun hefur haldið áfram en frá 1. maí 2006 til 30. apríl 2008 hafa 12.858 tilkynningar borist til Vinnumálastofnunar um ráðningar ríkisborgara frá þessum aðildarríkjum sem eru nýir á íslenskum vinnumarkaði.

Samkvæmt ákvæði a-liðar 1. mgr. 7. gr. laganna um atvinnuréttindi útlendinga geta aðrar sérstakar ástæður en þær sem taldar eru upp í ákvæðinu mælt með leyfisveitingu. Í stjórnsýslukærunni kemur fram að kærandi sem sótt er um atvinnuleyfi fyrir sé jafnframt eigandi fyrirtækisins sem sér um að flytja fatnað frá Víetnam til Íslands. Starf kæranda sé því mjög sérhæft og krefjist víðtækrar þekkingar, ekki einungis á víetnömskum fatnaði heldur einnig menningu og sögu landsins og tengslum þess við þær vörur sem séu til sölu í versluninni. Í samræmi við framangreind lögskýringargögn lítur ráðuneytið almennt svo á að ríkisborgarar ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins sem hafi hug á að stofna og reka fyrirtæki hér á landi eigi ekki greiðari aðgang að innlendum vinnumarkaði á grundvelli laganna um atvinnuréttindi útlendinga en þeir sem hafa hug á að ráða sig til almennra starfa hérlendis. Telst því sú fyrirætlan að stofna og reka fyrirtæki hér á landi ekki til málefnalegra sjónarmiða sem sérstaklega réttlæti veitingu atvinnuleyfa enda vel þekkt ráðstöfun að eigendur fyrirtækja ráði starfsfólk til að annast reksturinn fyrir sína hönd. Af gögnum málsins verður að telja að þetta eigi við í þessu tilviki þar sem sú starfsemi sem hér um ræðir virðist nokkuð hefðbundinn verslunarrekstur sem feli í sér innflutning, sölu og dreifingu fatnaðar, í þessu tilfelli frá Víetnam. Telja verður jafnframt að sú tilhögun að ráða starfsmann til að annast reksturinn komi ekki í veg fyrir að sérþekking kæranda sem vísað er til í umræddri stjórnsýslukæru geti komið að gagni við rekstur fyrirtækisins.

Að teknu tilliti til þess að umrætt starf hefur hvorki verið auglýst laust til umsóknar á innlendum vinnumarkaði né á Evrópska efnahagssvæðinu sem og þegar litið er til reynslunnar, skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og gagna málsins í heild er það mat ráðuneytisins að í máli þessu hafi ekki verið nægjanlega sýnt fram á að fullreynt hafi verið að ráða einstakling í starfið af innlendum vinnumarkaði eða af Evrópska efnahagssvæðinu sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Með vísan til framangreinds er það því niðurstaða ráðuneytisins að skilyrðum laga um atvinnuréttindi útlendinga um veitingu tímabundins atvinnuleyfis sé ekki fullnægt í máli þessu.

Uppkvaðning úrskurðar þessa hefur dregist vegna mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 10. maí 2007, um synjun á veitingu atvinnuleyfis til handa B í því skyni að ráða til starfa C, sem er víetnamskur ríkisborgari, skal standa.

 

 

Fyrir hönd ráðherra

 

Bjarnheiður Gautadóttir

Guðrún Sveinsdóttir

 




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum