Hoppa yfir valmynd

Fiskidrangur ehf. kærir ákvörðun Fiskistofu, dags. 5. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun af byggðakvóta Bakkafjarðar í Langanesbyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Evu NS-197, (6181).

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru frá Ingu Gulu f.h. Fiskidrangs ehf., Jörundarholti 37, 300 Akranesi dags. 17. desember 2013, sem barst ráðuneytinu sama dag, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 5. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun af byggðakvóta Bakkafjarðar í Langanesbyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Evu NS-197, skipaskrárnúmer 6181.


Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

 

Kröfur kæranda

Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi hin kærða ákvörðun Fiskistofu, dags. 5. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun af byggðakvóta Bakkafjarðar í Langanesbyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Evu NS-197 (6181) og að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins í samræmi við kröfur og málsástæður í stjórnsýslukærunni.

 

Málsatvik

Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 8. nóvember 2013, sem birt var í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 9. sama mánaðar, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 í nokkrum byggðarlögum, m.a. á Bakkafirði í Langanesbyggð, en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, sbr. og 5. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 25. nóvember 2013. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hafði þá úthlutað 226 þorskígildistonnum af byggðakvóta til sveitarfélagsins Langanesbyggðar á grundvelli reglugerðar nr. 664/2013, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2013/2014, sem skiptust á byggðarlögin Þórshöfn, 70 þorskígildistonn og Bakkafjörð, 156 þorskígildistonn. Úthlutunin var tilkynnt sveitarfélaginu Langanesbyggð með bréfi, dags. 16. október 2013.


Kærandi sótti um úthlutun byggðakvóta fyrir bátinn Evu NS-197 (6181) með umsókn til Fiskistofu, dags. 13. nóvember 2013.


Hinn 5. desember 2013 tilkynnti Fiskistofa eigendum og útgerðaraðilum báta á Bakkafirði í Langanesbyggð ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa eða höfnun umsókna um úthlutun. Kæranda var tilkynnt að hafnað væri umsókn félagsins um úthlutun byggðakvóta til bátsins Evu NS-197 (6181). Ákvörðun Fiskistofu var byggð á því að samkvæmt 6. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014, skuli eigandi fiskiskips gera skriflegan samning við fiskkaupanda um vinnslu afla sem landað verður hjá viðkomandi vinnslu, sem mótframlagi byggðakvóta. Samningurinn skuli undirritaður af eiganda/útgerðaraðila skipsins, fiskkaupanda, fiskverkanda og einnig skuli samningurinn vera áritaður fyrir hönd sveitarstjórnar. Afrit af samningi þessum skuli fylgja umsókn um byggðakvóta, sem ekki teljist gild nema hann fylgi með. Samningur hafi ekki borist með umsókn um byggðakvóta fyrir skipið Evu NS-197 (6181) þannig að ekki komi til úthlutunar byggðakvóta til skipsins.


Þá kom fram í ákvörðun Fiskistofu að hún væri kæranleg til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu um höfnun umsóknar um úthlutun.

 

Málsástæður í stjórnsýslukæru o.fl.

Með stjórnsýslukæru, dags. 17. desember 2013, sem barst ráðuneytinu sama dag kærði Inga Gula f.h. Fiskidrangs ehf. til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins framangreinda ákvörðun Fiskistofu, dags. 5. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda um úthlutun af byggðakvóta Bakkafjarðar í Langanesbyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Evu NS-197 (6181).


Í stjórnsýslukærunni er þess krafist að skipinu Evu NS-197 (6181) verði úthlutað byggðakvóta í samræmi við 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og reglugerð nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014. Einnig segir í stjórnsýslukærunni að eins og komi fram í hinni kærðu ákvörðun, dags. 5. desember 2013, hafi samningur um vinnslu afla ekki fylgt umsókn kæranda um byggðakvóta. Ástæða þess sé að Eva NS-197 (6181) hafi ekki fengið samning um vinnslu afla þar sem Toppfiskur ehf. á Bakkafirði hafi neitað skipinu um löndunarsamning. Samningar hafi nú tekist við Marinó Jónsson ehf. um vinnslu afla vegna byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2013/2014, sbr. hjálagt fylgiskjal undirritað af eiganda skips, fiskkaupanda, fiskverkanda og staðfest af sveitarstjórn Langanesbyggðar. Af framangreindu sé ljóst að ekkert sé því til fyrirstöðu að úthluta byggðakvóta til bátsins Evu NS-197 (6181) í samræmi við lög og reglugerðir um það efni.


Með bréfi, dags. 19. desember 2013, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið.


Í umsögn Fiskistofu, dags. 15. janúar 2014, segir m.a. að eins og komi fram í hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 5. desember 2013, hafi það skilyrði úthlutunar ekki verið uppfyllt að kærandi hafi gert skriflegan samning við fiskkaupanda um vinnslu afla, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014. Umsókn kæranda hafi verið dags. 13. nóvember 2013, og hafi umsókn verið hafnað með ákvörðun Fiskistofu, dags. 5. desember 2013, á grundvelli framangreindrar ástæðu. Kærandi hafi síðar sent samning sem sé dags. 10. desember 2013. Sá samningur hafi ekki komið til álita eðli málsins samkvæmt þegar ákvörðun hafi verið tekin. Að mati Fiskistofu geti samningur þessi ekki komið nú til athugunar fremur en umsókn sem berist of seint. Þá telji Fiskistofa rétt að benda á að samkvæmt meðfylgjandi gögnum stofnunarinnar hafi bátur kæranda eingöngu landað á Þórshöfn í Langanesbyggð fiskveiðiárið 2012/2013 og hafi því ekki uppfyllt skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á Bakkafirði í Langanesbyggð, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 665/2013.


Eftirtalin gögn fylgdu umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins í ljósritum: 1) staðfest afrit hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 5. desember 2013, 2) yfirlit um úthlutun byggðakvóta á Bakkafirði í Langanesbyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014, dags. 5. desember 2013, 3) umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta til bátsins Evu NS-197 (6181), dags. 13. nóvember 2013, 4) bréf kæranda, dags. 20. nóvember 2013, 5) útprentun af vef Fiskistofu með upplýsingum um landaðan afla bátsins o.fl.


Með bréfi, dags. 20. janúar 2014, sendi ráðuneytið ljósrit af umsögn Fiskistofu til kæranda og veitti honum kost á að gera athugasemdir við umsögnina, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Frestur til þess var veittur til og með 5. febrúar 2014.


Með bréfi, dags. 4. febrúar 2014, bárust ráðuneytinu athugasemdir frá kæranda, Fiskidrangi ehf., um framangreinda umsögn Fiskistofu. Þar segir m.a. að í umsögn Fiskistofu, dags. 15. janúar 2014, sé ranglega bent á að báturinn Eva NS-197 (6181) hafi eingöngu landað á Þórshöfn fiskveiðiárið 2012/2013 og að ekki séu því skilyrði fyrir að viðkomandi bátur geti átt rétt til byggðakvóta á Bakkafirði, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 665/2013. Báturinn Eva NS-197 (6181) sé skráður á Bakkafirði og hafi landað á Þórshöfn til vinnslu á Bakkafirði en einnig á fiskmarkað og uppfylli því skilyrði reglugerðar nr. 665/2013 fyrir að fá úthlutaðan byggðakvóta á Bakkafirði, sbr. meðfylgjandi vigtarnótur bátsins. Þá sé bent á að samkvæmt auglýsingu (I) nr. 990/2013 hafi ráðuneytið staðfest sérreglur fyrir Langanesbyggð um úthlutun byggðakvóta fiskveiðiárið 2013/2014 þannig að fiskiskipum sé skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu frá 1. september 2013 til 31. ágúst 2014. Í þessari sérreglu fyrir sveitarfélagið Langanesbyggð felist að ekki skipti máli hvort afla sé landað í byggðarlaginu Bakkafirði eða byggðarlaginu Þórshöfn þar sem bæði byggðarlögin teljist til sveitarfélagsins Langanesbyggðar. Að mati kæranda beri að skilja ákvæði 4. gr. reglugerðar nr. 665/2013 í ljósi hinnar breyttu 6. gr. sömu reglugerðar enda hefðu breytingar sveitarstjórnar Langanesbyggðar annars enga þýðingu.


Eftirtalin gögn fylgdu bréfi kæranda til ráðuneytisins, dags. 4. febrúar 2014: 1) vigtarnótur til endurvigtunar fyrir bátinn Evu NS-197 (6181) o.fl.


Með bréfi, dags. 10. febrúar 2014, sendi ráðuneytið Fiskistofu ljósrit af athugasemdum kæranda, dags. 4. febrúar 2014, og óskaði eftir að stofnunin svaraði þeim athugasemdum sem þar komu fram. Ítrekunarbréf voru send Fiskistofu 27. mars og 22. maí 2014.


Með bréfi, dags. 16. júní 2014, barst ráðuneytinu svarbréf Fiskistofu en þar eru áréttuð þau svör sem komu fram í eldri umsögn stofnunarinnar, dags. 15. janúar 2014. Þar kemur fram m.a. að umsókn kæranda hafi verið dags. 13. nóvember 2013 og hafi verið hafnað með ákvörðun Fiskistofu, dags. 5. desember sama ár. Umsóknarfrestur hafi runnið út 25. nóvember 2013. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014, skuli eigandi fiskiskips gera skriflegan samning við fiskkaupanda um magn sem landað verður til vinnslu hjá viðkomandi vinnsluaðila og skal bæjarstjórn eða sveitarstjórn árita samninginn til staðfestingar. Samningi samkvæmt framangreindu ákvæði hafi ekki verið framvísað með umsókn en hafi verið sendur Fiskistofu síðar með dagsetningu 10. desember 2013 eða löngu eftir að umsóknarfrestur hafi runnið út. Þegar af þessari ástæðu hafi umsókn kæranda ekki uppfyllt skilyrði reglna um úthlutun byggðakvóta. Einnig hafi báturinn Eva NS-197 (6181) verið skráður samkvæmt skipaskrá Samgöngustofu með heimahöfn á Bakkafirði frá 23. janúar 2001 til 30. apríl 2014. Samkvæmt meðfylgjandi útskrift úr gagnagrunni Fiskistofu hafi báturinn eingöngu landað á Þórshöfn og ekki uppfyllt skilyrði 1. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 665/2013. Þá sé vísað til 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014, þar sem komi fram að afli af fiskiskipum sem landað sé í byggðarlagi af bátum sem ekki séu skráðir innan viðkomandi byggðarlags á sama tíma, teljist ekki til landaðs afla. Þegar af þessum ástæðum hafi bátur kæranda ekki uppfyllt skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014.


Eftirtalin gögn fylgdu bréfi Fiskistofu, dags. 16. júní 2014: 1) yfirlit um landaðan afla bátsins Evu NS-197 (6181) á tímabilinu 18. júní til 27. ágúst 2013.


Með bréfi, dags. 20. júní 2014, sendi ráðuneytið kæranda ljósrit af framangreindum athugasemdum Fiskistofu og veitti félaginu kost á að gera athugasemdir við þær en frestur til þess var veittur til og með 7. júlí 2014.


Engar athugasemdir bárust ráðuneytinu frá kæranda um framangreint bréf Fiskistofu, dags. 16. júní 2014.

 

Rökstuðningur

Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 gildir ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. greinarinnar er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.


Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á umræddu fiskveiðiári en þau eru: a) að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, b) að skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2013 og c) að skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2013. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.


Einnig eru í 4. gr. reglugerðarinnar viðmiðanir um úthlutun aflaheimilda til einstakra fiskiskipa en samkvæmt ákvæðinu er gert ráð fyrir að úthlutun aflaheimilda skuli fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði reglugerðarinnar og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið hefur staðfest, eftir því sem við á, og skuli úthlutað hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2012 til 31. ágúst 2013. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum fellur hlutur til þess niður og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum. Ennfremur koma fram í ákvæðinu nokkrar reglur um úthlutun byggðakvóta miðað við tiltekin skilyrði o.fl.


Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum sem víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum sem ráðherra setur í reglugerð, enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Sambærilegt ákvæði er í 2. gr. reglugerðar nr. 665/2013.


Í 7. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 kemur fram að fiskiskipum sé skylt að landa til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga afla sem nemur í þorskígildum talið tvöföldu magni þeirra aflaheimilda sem þau fá úthlutað skv. 2. tölul. 1. mgr. geinarinnar og að úthlutun til þeirra skuli ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt samkvæmt nánari reglum sem ráðherra setur. Ráðherra er heimilt að víkja frá þessu skilyrði enda sé það gert á grundvelli málefnalegra og staðbundinna ástæðna.


Í 1.-2. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 665/2013 er sambærilegt ákvæði og framangreint ákvæði en þar kemur fram að fiskiskipum sé skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga á tímabilinu frá 1. september 2013 til 31. ágúst 2014. Aflinn skal nema, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerðinni. Einnig kemur fram í 3. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 665/2013 að eigandi fiskiskips skuli gera skriflegan samning við fiskkaupanda um magn sem landað verður til vinnslu hjá viðkomandi vinnsluaðila, þar sem komi fram að vinnsluaðili skuldbindi sig til að vinna aflann og skal bæjar- eða sveitarstjórn árita samninginn til staðfestingar. Úthlutun aflamarks fer fram á grundvelli vigtarnóta sem borist hafa Fiskistofu og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 665/2013. Þá kemur fram í 5. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 665/2013 að ráðherra sé heimilt að fengnum rökstuddum tillögum sveitarstjórnar að víkja frá ákvæðum greinarinnar enda sé það gert á grundvelli málefnalegra og staðbundinna ástæðna.


Sett hafa verið sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í Langanesbyggð, m.a. á Bakkafirði í Langanesbyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 samkvæmt framangreindu ákvæði með auglýsingu (I) nr. 990/2013, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta, sem ekki hafa áhrif á niðurstöðu þessa máls.


Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa á Bakkafirði í Langanesbyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, ákvæðum reglugerðar nr. 665/2013 og auglýsingu (I) nr. 990/2013.


Eins og gerð hefur verið grein fyrir hér að framan kemur fram í 3. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 665/2013, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2013/2014, að eigandi fiskiskips skuli gera skriflegan samning við fiskkaupanda um vinnslu afla sem landað verður hjá viðkomandi vinnsluaðila, þar sem komi fram að vinnsluaðili skuldbindi sig til að vinna aflann og skal bæjar- eða sveitarstjórn árita samninginn til staðfestingar. Umsókn kæranda um úthlutun byggðakvóta til bátsins Evu NS-197 (6181) fylgdi ekki samningur um vinnslu afla í samræmi við framangreint ákvæði 6. gr. reglugerðar nr. 665/2013 en samkvæmt því uppfyllti umsóknin ekki skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta fiskveiðiárið 2013/2014.


Umsóknarfrestur um úthlutun byggðakvóta á Bakkafirði í Langanesbyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 rann út 25. nóvember 2013 samkvæmt auglýsingu Fiskistofu um það efni, dags. 8. sama mánaðar, og var umsókn kæranda, dags. 13. nóvember 2013, um úthlutun byggðakvóta til bátsins Evu NS-197 (6181) hafnað með hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 5. desember 2013. Samningur um vinnslu afla bátsins, dags. 10. desember 2013, sem afhentur var Fiskistofu eftir þann tíma getur því ekki haft þýðingu fyrir úrlausn þessa máls.


Þegar af framangreindri ástæðu telur ráðuneytið ekki unnt að fallast á kröfur kæranda í máli þessu um að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 5. desember 2013.


Þá er það mat ráðuneytisins að aðrar málsástæður kæranda sem koma fram í stjórnsýslukærunni og öðrum gögnum geti ekki haft þýðingu fyrir úrlausn þessa máls.


Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 5. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda, Fiskidrangs ehf., um úthlutun af byggðakvóta Bakkafjarðar í Langanesbyggð fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Evu NS-197 (6181).


Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Úrskurður

Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 5. desember 2013, um að hafna umsókn kæranda, Fiskidrangs ehf., um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013/2014 til bátsins Evu NS-197, skipaskrárnúmer 6181.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum