Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Nr. 228/2019 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 228/2019

Þriðjudaginn 3. september 2019

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 3. júní 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. maí 2019, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 12. apríl 2019. Í vottorði síðasta vinnuveitanda, B, kom fram að kærandi hafi starfað hjá C frá X 2018. Þegar leitað var eftir ástæðum starfsloka hjá vinnuveitanda kom í ljós að kærandi hafi sjálf sagt starfi sínu lausu. Með bréfi, dags. 15. maí 2019, óskaði Vinnumálastofnun eftir skriflegum athugasemdum frá kæranda á ástæðum uppsagnar sinnar. Skýringar bárust frá kæranda samdægurs. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 31. maí 2019, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hennar hjá síðasta vinnuveitanda væri réttur til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. júní 2019. Með bréfi, dags. 6. júní 2019, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 27. júní 2019, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. júní 2019, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að Vinnumálastofnun hafi óskað eftir skýringum vegna starfsloka. Kærandi hafi svarað með þeirri niðurstöðu að yfirmaður hennar hafi gert þriggja mánaða samning við kæranda og hún hafi ekki sjálf sagt upp.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir.

Mál þetta varði þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 segi:

,,Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur á sök á. Hinn tryggði skal uppfylla skilyrði laga þessara á biðtímanum skv. 1. mgr.“

Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur, án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf sé ekki í boði. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar segi meðal annars að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður, sem liggi að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum, séu gildar þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan sé matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysistryggingar skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Ljóst sé að kæranda hafi boðist áframhaldandi starf hjá C í B en kærandi hafi hafnað því að halda áfram störfum. Ágreiningur snúist um það hvort ástæður kæranda fyrir starfslokum teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis. Orðalagið „gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik verið talin falla þar undir.

Samkvæmt upplýsingum frá vinnuveitanda kæranda hafi hún sjálf sagt upp starfi sínu. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar og í kæru sinni til úrskurðarnefndar hafi kærandi útlistað nokkrar ástæður fyrir því að hún hafi hætt störfum hjá C. Meðal ástæðna, sem kærandi hafi fært fyrir starfslokum sínum, séu þær að henni hafi liðið illa í vinnunni og fundið fyrir kvíðaeinkennum. Þá komi fram að samskipti kæranda við stjórnendur hafi verið erfið og að henni hafi verið gert að sinna störfum á [...]. Þá haldi kærandi því fram að hún hafi einungis verið ráðin tímabundið hjá vinnuveitanda og að ráðningarsamningur hafi runnið út.

Vinnumálastofnun telji að í þeim tilvikum sem óánægja starfsmanns með vinnuumhverfi sitt sé ástæða starfsloka, þurfi sá er hlut á í máli að minnsta kosti að hafa gert tilraunir til úrbóta með aðkomu yfirmanns á vinnustað, stéttarfélags síns og eftir atvikum Vinnueftirlitsins áður en hann taki ákvörðun um að segja starfi sínu lausu. Vinnumálastofnun bendir á úrskurð úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða í máli nr. 201/2010, en í því máli hafi reynt á túlkun 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi í því máli hafi sagt starfi sínu lausu vegna óánægju með starfsumhverfi og launakjör. Í niðurstöðuorðum nefndarinnar segi:

„Það er alvarlegt mál að segja starfi sínu lausu og verða án atvinnutekna án þess að vera með annað starf í hendi. Því gera lög um atvinnuleysistryggingar ráð fyrir því að ekki sé afsakanlegt að segja upp starfi sínu og þiggja í framhaldi atvinnuleysisbætur nema fyrir uppsögn séu gildar ástæður. Í samræmi við það verður að gera þá kröfu að launamenn sem telja sig ekki geta gegnt starfi sínu lausu og sækja í kjölfarið um atvinnuleysisbætur.“

Það hafi verið mat úrskurðarnefndarinnar að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu höfðu ekki verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Af úrskurði þessum megi ráða að starfsmanni beri að leita allra leiða til lausnar á þeim vanda sem hann standi fyrir áður en til uppsagnar komi svo að ástæður hans geti talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Skýringar, sem kærandi hafi fært fram í máli sínu, lúti aðallega að aðstæðum á vinnustað og samskiptum við yfirmenn. Ekki sé að sjá að kærandi hafi fullreynt tilraunir til úrbóta þó að greina megi af skýringum kæranda að vinnuveitandi hafi viljað að kærandi starfaði áfram hjá C. Þegar kæranda hafi boðist áframhaldandi vinna hjá C hafi hún fremur kosið að skrá sig atvinnulausa. Í ljósi þess telji Vinnumálastofnun að ástæður þær er kærandi hafi gefið fyrir starfslokum teljist ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda skuli fyrst hefjast þegar kærandi hafi verið skráð hjá Vinnumálastofnun án greiðslna atvinnuleysistrygginga í tvo mánuði.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Í gögnum málsins liggur fyrir staðfesting frá síðasta vinnuveitanda kæranda þess efnis að hún hafi sjálf sagt upp starfi sínu. Kemur því til skoðunar hvort ástæður kæranda fyrir uppsögninni hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir á því hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi hafnað áframhaldandi vinnu hjá B, meðal annars vegna vanlíðanar og kvíða í starfi. Meðal úrræða sem kærandi hafi leitað til var að hafa samband við [...]. Í framkvæmd hefur verið gerð sú krafa til launamanna að þeir nýti sér öll tiltæk úrræði til úrbóta áður en þeir ákveða að segja starfi sínu lausu. Kærandi leitaði ekki slíkra úrræða áður en hún sagði starfi sínu lausu og hafði ekki annað starf í hendi. Það er því mat úrskurðarnefndar velferðarmála að tilgreindar ástæður kæranda fyrir starfslokum hennar séu ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Að því virtu átti kærandi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Með vísan til þess er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda á bið í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar staðfest.

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. maí 2019, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum