Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 30/2018 Úrskurður 26. júní 2018

Mál nr. 30/2018                    Millinafn:       Ram

 

 

Hinn 26. júní 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 30/2018, en erindið barst nefndinni 2. maí og var fyrst tekið fyrir 22. maí en afgreiðslu þess frestað.

Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.

  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.

  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Ram telst ekki dregið af íslenskum orðstofni og fullnægir þess vegna ekki ákvæði 2. mgr. 6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Ram er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum