Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 89/2018 Úrskurður 20. nóvember 2018

Mál nr. 89/2018                    Eiginnafn:     Myrká (kvk.)

 

Hinn 20. nóvember 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 89/2018 en erindið barst nefndinni 2. nóvember.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í þessu máli reynir á annað skilyrðið hér að ofan um að eiginnafn megi ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Skilningur mannanafnanefndar á íslensku málkerfi er í samræmi við þá túlkun löggjafans sem fram kemur í athugasemdum með frumvarpi til laga um mannanöfn. Þar segir m.a.: „Íslenskt málkerfi er samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli.“

Eiginnafnið Myrká (kvk.) er dregið af bæjarnafninu Myrká. Ekki er hefð fyrir því að mynda eiginnöfn á þennan hátt. Yfirhöfuð er mjög sjaldgæft að eiginnöfn séu dregin af örnefnum en undantekningar eru fjallanöfn eins og Hekla og Katla. Hins vegar er fordæmalaust að eiginnafn sé dregið af örnefni með lið sem tilgreinir tegund örnefnis, t.d. –á eða –fjall. Mannanafnanefnd telur ljóst, miðað við hefðir íslensks máls, að eiginnöfn af þessu tagi séu ekki í samræmi við þær reglur sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Nefndin lítur því svo á að óheimilt sé að fallast á eiginnafnið Myrká.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Myrká (kvk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum