Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mannanafnanefnd, úrskurðir 3. júní 2011

Mál nr. 44/2011                    Millinafn:       Reginbald

 

Hinn 3. júní 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 44/2011 en erindið barst nefndinni 20. maí:

Millinafnið Reginbald er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Reginbald uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Reginbald er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

Mál nr. 45/2011                    Eiginnafn:     Ást

 

Hinn 3. júní 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 45/2011 en erindið barst nefndinni 27. maí:

Eiginnafnið Ást (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ástar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ást (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum