Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mannanafnnefnd, úrskurðir 4. ágúst 2011

Mál nr. 59/2011                    Eiginnafn:     Mara

 

Úrskurðarbeiðandi:                Þjóðskrá Íslands

f.h. Helenu  Möru Velemir

 

Hinn 4. ágúst 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 59/2011 en erindið barst nefndinni sama dag:

Eiginnafnið Mara (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Möru, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Mara (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

Mál nr. 60/2011                    Eiginnafn:     Ey

 

Hinn 4. ágúst 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 60/2011 en erindið barst nefndinni sama dag:

Eiginnafnið Ey (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Eyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ey (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum