Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 493/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 13. nóvember 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 493/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18100028

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 11. október 2018 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...](hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. október 2018, um að synja honum um dvalarleyfi.

Af kæru kæranda má ráða að hann krefjist þess að ákvörðunin verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun var kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um dvalar- og atvinnuleyfi þann 22. ágúst 2018. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. október 2018, var kæranda synjað um dvalarleyfi. Tilkynning um kæru barst þann 11. október 2018 en kæru fylgdu athugasemdir. Viðbótargögn frá kæranda bárust kærunefnd 18. október 2018.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var vísað til þess að samkvæmt 2. mgr. 55. gr. laga um útlendinga skuli tilgangur umsækjanda með dvöl hér á landi að vera í samræmi við það dvalarleyfi sem sótt sé um. Í umsókn kæranda hafi komið fram að tilgangur dvalar sé vinna. Hafi kærandi einnig lagt fram umsókn um tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts á starfsfólki. Í ljósi þessa hafi umsókn hans verið flokkuð á grundvelli 62. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt b-lið 1. mgr. 62. gr. laga um útlendinga sé það forsenda fyrir útgáfu dvalarleyfis vegna skorts á starfsfólki að áður hafi verið gefið út atvinnuleyfi samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. október 2018, hafi kæranda verið synjað um atvinnuleyfi. Væri stofnuninni því ekki heimilt að veita kæranda dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki og var umsókn hans því synjað. Þar sem kærandi uppfyllti ekki framangreint skilyrði tók Útlendingastofnun ekki til skoðunar hvort kærandi uppfyllti önnur skilyrði 62. gr. laganna. Var umsókn kæranda um dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki því synjað.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Kærunefnd barst ekki greinargerð frá kæranda. Í athugasemdum með kæru kæranda kemur m.a. fram að kærandi vilji starfa hér á landi til að aðstoða fjölskyldu sína fjárhagslega. Þá vilji kærandi búa með móður sinni sem sé búsett hér á landi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 62. gr. laga um útlendinga er fjallað um heimildir til útgáfu dvalarleyfis vegna skorts á starfsfólki. Skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 1. mgr. 62. gr. laganna eru m.a. þau að útlendingur fullnægi grunnskilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr. laganna, sbr. a-lið 1. mgr. 62. gr., og að tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts á starfsfólki hafi verið veitt á grundvelli laga nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. b-lið 1. mgr. 62. gr. laga um útlendinga.

Í ákvæði 1. mgr. 52. gr. laga um útlendinga er mælt svo fyrir um að Útlendingastofnun taki ákvörðun um veitingu dvalarleyfis en Vinnumálastofnun um veitingu atvinnuleyfis. Af ákvæðinu er ljóst að ákveðin verkaskipting er milli Útlendingastofnunar annars vegar og Vinnumálastofnunar hins vegar. Er hlutverk Útlendingastofnunar m.a. fólgið í að kanna hvort skilyrði fyrir útgáfu dvalarleyfis samkvæmt umsókn þar að lútandi séu fyrir hendi í samræmi við ákvæði laga um útlendinga á meðan Vinnumálastofnun annast m.a. framkvæmd laga atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002, þ.m.t. hvort útlendingi skuli veitt atvinnuleyfi. Samkvæmt gögnum málsins er ljóst að Vinnumálastofnun synjaði kæranda um atvinnuleyfi með ákvörðun, dags. 9. október 2018. Þá verður ekki séð af gögnum málsins að þeirri ákvörðun hafi verið hnekkt. Kærandi uppfyllir því ekki ófrávíkjanlegt skilyrði b-liðar. 1. mgr. 62. gr. laga um útlendinga fyrir veitingu dvalarleyfis vegna skorts á starfsfólki. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar því staðfest.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Gunnar Páll Baldvinsson                                                    Anna Valbjörg Ólafsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum