Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Nr. 86/2019 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 86/2019

Þriðjudaginn 14. maí 2019

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

 

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 26. febrúar 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. janúar 2019, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans og að innheimta ofgreiddar bætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 3. júlí 2017 og var umsóknin samþykkt. Við samkeyrslu Vinnumálastofnunar við nemendaskrár viðurkenndra menntastofnana í nóvember 2018 kom í ljós að kærandi var skráður í 30 ECTS-eininga nám við Háskóla Íslands á haustönn 2018. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 4. desember 2018, var óskað eftir skýringum kæranda vegna þessa ásamt skólavottorði. Skýringar og gögn bárust frá kæranda 11. desember 2018. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. janúar 2019, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar með vísan til 52. gr. laga nr. 54/2006 og að honum bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 20. ágúst til 31. desember 2018 að fjárhæð 490.596 kr., án álags.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 26. febrúar 2019. Með bréfi, dags. 27. febrúar 2019, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 22. mars 2019, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 25. mars 2019, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði ógilt og að honum verði áfram greiddar atvinnuleysisbætur frá dagsetningu ákvörðunar. Kærandi tekur fram að hann hafi lokið 8 ECTS-einingum árið 2018 og sé skráður í 8 ECTS-einingar árið 2019. Það sé innan þeirra marka sem Vinnumálastofnun setji um námsframvindu til að bótaþegi teljist ekki í námi. Kærandi hafi misskilið framkvæmd þess að stunda nám samhliða atvinnuleysi og vísar til meðfylgjandi gagna þess efnis. Allt sem hafi verið ranglega skráð hafi verið leiðrétt og ásetningur að brjóta reglur Vinnumálastofnunar hafi klárlega aldrei verið fyrir hendi. Vottorð þess efnis frá nemendaskrá staðfesti þá fullyrðingu.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar er vísað til þess að í 1. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar komi fram að hver sá sem stundi nám, sbr. c-lið 3. gr., teljist ekki tryggður samkvæmt lögunum á sama tímabili, enda sé námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar. Í 2. og 3. mgr. 52. gr. laganna komi fram að þrátt fyrir framangreint ákvæði geti atvinnuleitendur í háskólanámi átt rétt til atvinnuleysisbóta að nánari skilyrðum uppfylltum. Þær undanþáguheimildir komi einungis til skoðunar þegar nám sé undir 20 ECTS-einingum og ekki lánshæft samkvæmt reglum um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Þar sem nám kæranda sé umfram 20 ECTS-einingar, alls 23 ECTS-einingar, sé það lánshæft samkvæmt reglum lánasjóðsins og falli þar af leiðandi utan skilyrða 2. og 3. mgr. 52. gr. laganna. Því verði að álykta að meginregla 1. mgr. 52. gr. laganna eigi við um atvik í máli kæranda. Af framangreindum ákvæðum sé ljóst að það sé ekki tilgangur laganna að tryggja námsmönnum framfærslu á meðan þeir stundi nám. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 komi fram sú meginregla að námsfólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum, hvort sem um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Auk þess sé það eitt af almennum skilyrðum fyrir atvinnuleysisbótum að atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a-lið 1. mgr. 13. gr. laganna.

Í kæru til úrskurðarnefndarinnar sem og skýringum kæranda til stofnunarinnar komi fram sú málsástæða að kærandi hafi fyrir misskilning talið að honum væri heimilt að sitja námskeið við Háskóla Íslands að því gefnu að hann lyki ekki fleiri en 10 einingum. Hafi hann í samræmi við það aðeins lokið einu prófi á haustönn, alls 8 ECTS-einingum. Þá hafi honum misfarist að skrá sig úr prófum vegna þeirra námskeiða sem hann hafi ekki þreytt próf í. Vinnumálastofnun hafni þeirri málsástæðu, enda taki ákvæði 52. gr. laganna til skráningar í nám óháð námsframvindu og hvort viðkomandi ljúki prófum með tilskyldum námsárangri eða ekki. Þar sem kærandi hafi verið skráður í 30 ECTS-einingar eigi 1. mgr. 52. gr. laganna við um nám kæranda og gildi einu hvort hann hafi aðeins lokið prófum í einum áfanga, alls 8 ECTS-einingum. Þá liggi fyrir að kærandi hafi hitt ráðgjafa stofnunarinnar 6. júlí 2018 þar sem rætt hafi verið um fyrirhugað nám hans á haustmisseri. Í samskiptafærslu komi fram að kærandi hafi verið minntur á að afskrá sig þegar fullt nám hæfist eða ganga frá námssamningi ef nám væri 10 ECTS-einingar eða minna.

Þar sem kærandi uppfyllti ekki almenn skilyrði laga nr. 54/2006 á meðan hann stundaði nám, sbr. 1. mgr. 52. gr. laganna, hafi stofnunin talið rétt að synja umsókn hans um atvinnuleysisbætur, enda hafi hann ekki uppfyllt skilyrði laganna til slíkra greiðslna.

Vinnumálastofnun vísar til þess að í 39. gr. laga nr. 54/2006 sé fjallað um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. laganna beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfyllir ekki skilyrði laganna. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 20. ágúst 2018 til 31. desember 2018 samtals að fjárhæð 490.596 kr. á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laganna. Með vísan til ofangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki átt rétt á atvinnuleysisbótum á meðan hann hafi verið skráður í nám við Háskóla Íslands og að honum beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í IX. kafla laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tilvik er leiða til takmörkunar á atvinnuleysistryggingum. Í 52. gr. laganna er fjallað um nám en þar segir:

„Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar.

Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á háskólastigi sem nemur að hámarki 10 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.“

Í c-lið 3. gr. laganna er að finna skilgreiningu á námi samkvæmt lögunum en þar segir:

„Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Í athugasemdum við ákvæði 52. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Þá kemur fram að það kunni að vera að nám sé nauðsynlegur hluti af starfshæfingu atvinnuleitanda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, en í slíkum tilvikum geti atvinnuleitandi talist tryggður samhliða námi.

Óumdeilt er að kærandi var skráður í og stundaði 30 ECTS-eininga nám við Háskóla Íslands á haustönn 2018. Samkvæmt samskiptasögu kæranda og Vinnumálastofnunar var þann 6. júlí 2018 samþykkt að veita honum námsstyrk vegna náms við Háskóla Íslands á haustönn 2018. Kærandi var þá minntur á að afskrá sig þegar fullt nám hæfist eða gera námssamning ef nám væri 10 ECTS-einingar eða minna. Kærandi hefur vísað til þess að það hafi verið hans skilningur að heimilt væri að sitja námskeið við Háskóla Íslands að því gefnu að hann lyki ekki fleiri en 10 ECTS-einingum. Hafi hann í samræmi við það aðeins lokið einu prófi á haustönn, alls 8 ECTS-einingum. Þá hafi honum misfarist að skrá sig úr prófum vegna þeirra námskeiða sem hann hafi ekki þreytt próf í. Þrátt fyrir framangreind rök kæranda er ljóst að hann uppfyllti ekki skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum á haustönn 2018, þrátt fyrir að hafa einungis lokið 8 ECTS-einingum á þeirri önn, og átti því ekki rétt á greiðslum frá Vinnumálastofnun.

Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum, beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og því er ekki ágreiningur um það atriði. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. janúar 2019, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til handa A, og að innheimta ofgreiddar bætur er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum