Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 211/2017

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 211/2017

Fimmtudaginn 17. ágúst 2017

AgegnVinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 7. júní 2017, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. maí 2017, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta þann 3. apríl 2017. Meðfylgjandi umsókn kæranda var vinnuveitandavottorð þar sem fram kemur að kærandi hafi látið af störfum vegna flutnings. Með bréfi, dags. 25. apríl 2017, óskaði Vinnumálastofnun eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna starfsloka hennar. Skýringar á ástæðum uppsagnar bárust frá kæranda 26. apríl 2017. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 4. maí 2017, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt og útreiknaður bótaréttur væri 100%. Með vísan til starfsloka hennar væri réttur til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Frekari skýringar bárust frá kæranda 8. maí 2017 og með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 17. maí 2017, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun í máli hennar væri staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 7. júní 2017. Með bréfi, dags. 8. júní 2017, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 22. júní 2017. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. júní 2017, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi ekki sagt upp störfum eingöngu vegna búferlaflutninga. Hún vilji frekar finna starf nálægt heimili sínu því akstur til B á hverjum degi og dagmömmukostnaður taki meira en helming af launum hennar.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að tilgangur laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim, sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Í greinargerð með frumvarpi því, sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar, sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf sé ekki í boði. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerðinni sé vísað til þess að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður, sem liggi að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi starf sitt, séu gildar þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan væri matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir á því hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar komi fram að hún hafi sagt starfi sínu lausu vegna þess að hún hafi flutt út á land og vegalengd til vinnu því aukist. Hún hafi ekki gæslu fyrir barn sitt og sé að leita að starfi í sínum heimabæ. Vinnumálastofnun tekur fram að búferlaflutningar hafi einir og sér ekki talist gild ástæða fyrir uppsögn á starfi í skilningi laga nr. 54/2006, enda hafi kærandi sjálf tekið ákvörðun um að flytja búferlum. Þar að auki, í ljósi d- og e-liðar 14. gr. laga nr. 54/2006, fallist Vinnumálastofnun ekki á að lengd frá vinnustað kæranda hafi verið nægjanleg ástæða fyrir uppsögn í skilningi 1. mgr. 54. gr. laganna. Því verði ekki fallist á að aðrar ástæður er kærandi hafi fært fram í máli sínu geti talist gildar í skilningi laga nr. 54/2006.

IV. Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kærandi sagði upp starfi sínu hjá tilteknu fyrirtæki en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögninni hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir á því hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi sagt upp starfi sínu vegna flutninga til C. Þá hafi hún frekar viljað finna starf nálægt sínum heimabæ þar sem akstur til B taki of langan tíma auk þess sem kostnaður vegna dagmóður sé mikill.

Samkvæmt framangreindum skýringum ákvað kærandi að flytja til C sem varð þess valdandi að hún sagði upp starfi sínu í B. Líkt og fram hefur komið eru gerðar ríkar kröfur um ástæður uppsagnar og hafa búferlaflutningar fjarri vinnustað ekki verið talin gild ástæða. Það er því mat úrskurðarnefndar velferðarmála að tilgreindar ástæður kæranda fyrir starfslokum hennar séu ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Að því virtu bar kæranda að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Með vísan til þess er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda á bið í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. maí 2017, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum