Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 35/2017 Úrskurður 22. september 2017

Mál nr. 35/2017                     Millinafn:       Breiðfjörð

 


 

Hinn 22. september 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 35/2017 en erindið barst nefndinni 25. júlí:

Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn, eru nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð í íslensku máli sem annaðhvort eiginnöfn karla eða kvenna, ekki heimil sem millinöfn. Nafnið Breiðfjörð hefur stöðu ættarnafns á Íslandi. Af þessum ástæðum er útilokað að fallast á millinafnið Breiðfjörð á grundvelli 2. mgr. 6. gr. laga um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Hafnað er beiðni um millinafnið Breiðfjörð.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum