Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 142/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 20. mars 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 142/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18010025

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 30. janúar 2018 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefnd kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. janúar 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hana til Frakklands.

Þess er aðallega krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 8. júní 2017. Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt dóttur sinni, […], fd. […], en Útlendingastofnun ákvað að aðskilja mál þeirra mæðgna, […], og var ákvörðun tekin í málum þeirra í sitt hvoru lagi. Þar sem kærandi hafði fengið útgefið dvalarleyfi hjá frönskum stjórnvöldum var, þann 28. júní 2017, beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hennar um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Frakklandi, sbr. 1. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 3. júlí 2017 barst svar frá frönskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 14. nóvember 2017 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hún skyldi endursend til Frakklands. Kærandi kærði ákvörðunina þann 21. nóvember 2017 til kærunefndar útlendingamála. Með úrskurði kærunefndar nr. 695/2017, dags. 12. desember 2017, var ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og stofnuninni gert að taka mál kæranda til meðferðar á ný. Þann 8. janúar 2018 tók Útlendingastofnun á ný ákvörðun í máli kæranda þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að umsókn hennar um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi kærði þá ákvörðun til kærunefndar útlendingamála þann 30. janúar 2018. Greinargerð kæranda, ásamt fylgigögnum, barst kærunefnd 9. febrúar 2018. Þann 5. mars 2018 bárust kærunefnd auk þess umbeðnar upplýsingar frá Útlendingastofnun um málsmeðferð í máli kæranda. Þá bárust kærunefnd frekari upplýsingar frá talsmanni dóttur kæranda með tölvupósti dags. 12. mars 2018. Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að tjá sig við nefndina um efni málsins. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hún skyldi endursend til Frakklands. Lagt var til grundvallar að Frakkland virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Frakklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun mat aðstæður kæranda slíkar að hún væri í sérstaklega viðkvæmri stöðu vegna andlegra og líkamlegra veikinda skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Það var hins vegar mat stofnunarinnar, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, að sérstakar ástæður væru ekki til staðar í málinu, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hana til Frakklands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun lagði kærandi m.a. áherslu á að Útlendingastofnun aflaði gagna af sjálfdáðum og legði mat á nauðsynlegar upplýsingar og gögn sem tengdust sjúkdómi og heilsufari kæranda áður en ákvörðun yrði tekin í málinu. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að talsmaður kæranda hefði leiðbeint kæranda um að gefa stofnuninni ekki umboð til að afla heilsufarsgagna og hefði stofnunin því ekki heimild til að afla gagna um heilsufar kæranda. Útlendingastofnun hefði því þurft að styðjast við þau gögn sem hefðu verið lögð fram.

IV. Málsástæður og rök kæranda

[…]

Í greinargerð kæranda mótmælir hún því harðlega að vera endursend til Frakklands. […]Í greinargerð gerir kærandi athugasemdir við mat og rannsókn Útlendingastofnunar í hinni kærðu ákvörðun. Kærandi sé ósátt við að viðtal við hana hjá Útlendingastofnun hafi farið fram á ensku en ekki móðurmáli hennar, frönsku. Kærandi hafi því óskað eftir framhaldsviðtali en stofnunin hafi hafnað því. Jafnframt hafi kærandi bæði óskað eftir sálfræðimati, geðmati eða annarri könnun á andlegri stöðu hennar með tilliti til sögu hennar um geðræna kvilla en Útlendingastofnun hafi hafnað öllum slíkum beiðnum. Kærandi bendi einnig á að umfjöllun í hinni kærðu ákvörðun um læknisfræðileg gögn sem hafi verið lögð fram við meðferð málsins hjá stofnuninni sé mjög takmörkuð. Þá hafi ekki farið fram fullnægjandi mat á því hvort tilefni sé til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og taka mál kæranda til efnislegrar meðferðar.

Til stuðnings aðalkröfu kæranda um efnislega meðferð umsóknar hennar vísar hún m.a. til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til laga nr. 81/2017 um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 og lögskýringargagna að baki breytingarlögunum, einkum greinargerðar með frumvarpi til laganna og nefndarálits meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar.Til stuðnings varakröfu kæranda, um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi, vísar kærandi m.a. til 10. gr. stjórnsýslulaga.

Í tölvubréfi frá talsmanni dóttur kæranda þann 12. mars sl. til kærunefndar er vakin athygli á því að dóttir kæranda uppfylli skilyrði ákvæðis I til bráðabirgða í lögum nr. 81/2017, um breytingu á lögum um útlendinga, og því beri að taka umsókn dóttur kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, með síðari breytingum.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöld geta þó, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, synjað því að taka til efnismeðferðar umsókn á grundvelli 40. gr. við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum. Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. Af 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur kærunefnd útlendingamála túlkað ákvæðið með þeim hætti að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis enda sé flutningurinn á ábyrgð stjórnvalda.

Í 1. málsl. ákvæðis I til bráðabirgða, sbr. lög nr. 81/2017, segir að þrátt fyrir 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skuli miða við níu mánuði í stað 12 mánaða ef um barn sé að ræða og umsókn þess um alþjóðlega vernd hafi fyrst borist íslenskum stjórnvöldum fyrir gildistöku laga þessara, enda hafi umsækjandi ekki þegar yfirgefið landið.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi, ásamt barni sínu, þann 8. júní 2017. Með úrskurði kærunefndar, dags. 20. mars 2018, var ákvörðun í máli barns kæranda felld úr gildi og lagt fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn hennar um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar í ljósi þess að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016, sbr. lög um breytingu á lögum um útlendinga nr. 81/2017, í máli hennar voru uppfyllt. Með vísan til meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar og til athugasemda með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 81/2017 er það niðurstaða kærunefndar að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda úr gildi og lagt er fyrir stofnunina að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016, sbr. lög um breytingu á lögum um útlendinga nr. 81/2017. Í því tilefni tekur kærunefnd fram að nefndin hefur farið yfir meðferð máls kæranda fyrir stjórnvöldum, m.a. upplýsingar frá Útlendingastofnun, og verður kærandi ekki talin bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsóknarinnar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate of Immigration shall examine the merits of the application of the applicant for asylum in Iceland.

Anna Tryggvadóttir

Erna Kristín Blöndal                                                           Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum