Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 22/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 22/2016

Fimmtudaginn 22. september 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni þann 20. janúar 2016, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. október 2015, að synja beiðni hennar um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. ágúst 2015.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 17. ágúst 2015. Með bréfi, dags. 21. september 2015, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda að umsókn hennar hefði verið samþykkt frá umsóknardegi.

Með tölvupósti til Vinnumálastofnunar þann 6. október 2015 óskaði kærandi eftir að fá greiddar atvinnuleysisbætur frá 1. ágúst 2015. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. október 2015, var beiðni kæranda synjað.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 20. janúar 2016. Með bréfi, dags. 26. janúar 2016, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 3. mars 2016. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. mars 2016, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að henni hafi verið sagt upp störfum þann 30. apríl 2015, en vegna persónulegra mála hafi hún ekki skráð sig strax á atvinnuleysisskrá hjá Vinnumálastofnun. Kærandi óskar því eftir að greiðslur til hennar verði leiðréttar. 

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar er vísað til 1. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem fram komi að launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum sé heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verði atvinnulausir. Þá segi meðal annars í 1. mgr. 29. gr. laganna að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum.

Vinnumálastofnun bendir á að það sé grundvallarskilyrði fyrir því að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga að hinn tryggði sæki um slíkt til stofnunarinnar. Stofnunin telji sér ekki heimilt að greiða atvinnuleysisbætur lengra aftur en frá dagsetningu umsóknar atvinnuleitanda um atvinnuleysisbætur.  Ljóst sé af gögnum málsins að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga þann 17. ágúst 2015, en stofnunin hafi ekki getað vitað að hún væri án atvinnu fyrr en á þeim tíma. Kærandi eigi því rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga frá og með 17. ágúst 2015.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að synja beiðni kæranda um að fá greiddar atvinnuleysisbætur afturvirkt frá 1. ágúst 2015.

Í 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur og er 1. mgr. lagagreinarinnar svohljóðandi:

Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja vottorð fyrrverandi vinnuveitanda, staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. frumvarps þess sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Af gögnum málsins er ljóst að kærandi sótti um atvinnuleysisbætur með umsókn, dags. 17. ágúst 2015. Kærandi á því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006, þrátt fyrir að hafa verið atvinnulaus frá 30. apríl 2015. Ákvæði 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna eru fortakslaus að þessu leyti.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. október 2015, í máli A að synja beiðni hennar um greiðslu atvinnuleysisbóta afturvirkt frá 1. ágúst 2015 er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum