Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Almannatryggingar

Nr. 222/2018 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 222/2018

Miðvikudaginn 29. ágúst 2018

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 22. júní 2018, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 28. maí 2018 um upphafstíma barnalífeyris.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með rafrænni umsókn 24. maí 2018 sótti kærandi um barnalífeyri með syni sínum B. Með bréfi, dags. 28. maí 2018, tilkynnti Tryggingastofnun ríkisins að umsókn hans um barnalífeyri hefði verið samþykkt frá 1. maí 2016. Með tölvubréfi 22. júní 2018 óskaði kærandi eftir rökstuðningi fyrir ákvörðun Tryggingastofnunar. Umbeðinn rökstuðningur var veittur með bréfi, dags. 26. júní 2018.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. júní 2018. Með bréfi, dags. 27. júní 2018, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 29. júní 2018, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir ekki formlegar kröfur í málinu en ráða má af gögnum málsins að kærandi óski eftir því að fá greiddan barnalífeyri lengra aftur í tímann.

Í kæru segir að kærandi sé öryrki. Fram kemur að það hafi verið sett á hann meðlagsskuld að fjárhæð rúmlega X kr. sem hafi orðið til þegar hann var skráður öryrki. Það séu mistök í kerfinu sem hann eigi ekki að greiða.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærður sé upphafstími greiðslna barnalífeyris. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 28. maí 2018, hafi verið samþykkt að láta barnalífeyri með barni kæranda ganga upp í fyrirframgreitt meðlag, sem Tryggingastofnun hafi milligöngu um, frá 1. maí 2016. Kærandi óski eftir greiðslu barnalífeyrisins lengra aftur í tímann.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé barnalífeyrir greiddur með börnum yngri en 18 ára, ef annað hvort foreldra sé látið eða örorkulífeyrisþegi, hafi annað hvort foreldra þess eða barnið sjálft búið hér á landi að minnsta kosti þrjú síðustu árin áður en umsókn sé lögð fram.

Í 4. mgr. 64. gr. laga um almannatryggingar segir að þegar svo hátti til að Tryggingastofnun hafi milligöngu um meðlagsgreiðslur með barni, sbr. 1. mgr. 63. gr. laganna, og hið meðlagsskylda foreldri öðlist rétt til barnalífeyris samkvæmt 20. gr. laganna vegna barnsins sé stofnuninni heimilt að láta greiðslu barnalífeyris ganga til fyrirframgreiðslu meðlags vegna sama tímabils. Þá verði ekki um kröfu á hendur meðlagsskyldum aðila að ræða fyrir það tímabil.

Samkvæmt 39. gr. laga um almannatryggingar sé umsækjanda rétt og skylt að veita Tryggingastofnun þær upplýsingar sem nauðsynlegar séu svo að unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum. Þá sé skylt að tilkynna um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á bætur og greiðslur.

Í 52. gr. laga um almannatryggingar sé kveðið á um að sækja skuli um allar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins og að umsóknir skuli vera á þar til gerðum eyðublöðum eða sendar með rafrænum hætti. Þá kemur fram í 4. mgr. 53. gr. sömu laga að bætur skuli aldrei ákvarðaðar lengra aftur í tímann en tvö ár frá því að umsókn berist.

Kærandi hafi verið með gilt örorkumat frá X. Kærandi hafi sótt um barnalífeyri með syni sínum með rafrænni umsókn 24. maí 2018. Með bréfi, dags. 28. maí 2018, hafi umsókn kæranda um barnalífeyri verið samþykkt tvö ár aftur í tímann eða frá 1. maí 2016. Þar sem kærandi sé meðlagsskyldur með syni sínum og Tryggingastofnun annist milligöngu meðlagsins hafi barnalífeyrir kæranda verið látinn ganga til fyrirframgreiðslu meðlagsins frá þeim tíma.

Réttindi og skilyrði greiðslna barnalífeyris séu bundin í lögum og lagatúlkun. Í 1. mgr. 52.gr. og 4. mgr. 53. gr. laga um almannatryggingar komi fram að sækja þurfi um bætur skriflega og að ekki sé heimilt að greiða lengra aftur í tímann en tvö ár. Þá segi í 39. gr. laganna að umsækjanda sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til þess að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt. Sú skylda sé því lögð á bótaþega að hann leiti eftir rétti sínum.

Samkvæmt skýru og afdráttarlausu orðalagi 4. mgr. 53. gr. almannatryggingalaga skuli bætur aldrei úrskurðaðar lengra aftur í tímann en tvö ár frá því að umsókn og önnur gögn sem nauðsynleg séu til að unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt og fjárhæð bóta berist stofnuninni. Með framangreindri afgreiðslu á umsókn kæranda um greiðslu barnalífeyris telji Tryggingastofnun að komið sé eins langt til móts við kröfur hans og leyfilegt sé lögum samkvæmt. Ekki sé til staðar lagaheimild til að verða við þeim kröfum kæranda sem settar séu fram í kæru hans um greiðslu barnalífeyris lengra aftur í tímann en greitt hafi verið.

Benda megi á að í málum úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 360/2015, 312/2015, 286/2015 og 193/2017 hafi nefndin komist að sömu niðurstöðu varðandi upphafstíma barnalífeyris.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 28. maí 2018, þar sem umsókn kæranda um barnalífeyri var samþykkt frá 1. maí 2016. Í kæru kvartar kærandi yfir því að enn sé til staðar skuld vegna meðlags. Þar sem barnalífeyrir kæranda var látinn ganga upp í fyrirframgreiðslu meðlags telur úrskurðarnefnd velferðarmála að af kæru megi ráða að kærandi óski eftir að fá greiddan barnalífeyri lengra aftur í tímann. Ágreiningur málsins lýtur því að upphafstíma greiðslu barnalífeyris.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar er barnalífeyrir greiddur með börnum yngri en átján ára, ef annað hvort foreldra er látið eða er örorkulífeyrisþegi, hafi annað hvort foreldra þess eða barnið sjálft búið hér á landi að minnsta kosti þrjú síðustu árin áður en umsókn er lögð fram. Kærandi, sem er örorkulífeyrisþegi, á rétt á greiðslu barnalífeyris, sbr. 1. mgr. 20. gr. laga um almannatryggingar.

Í 4. mgr. 64. gr. laganna segir að þegar svo hátti til að Tryggingastofnun hafi milligöngu um meðlagsgreiðslur með barni samkvæmt 1. mgr. 63. gr. og hið meðlagsskylda foreldri öðlist rétt til barnalífeyris samkvæmt 20. gr. vegna barnsins sé stofnuninni heimilt að láta greiðslu barnalífeyris ganga til fyrirframgreiðslu meðlags vegna sama tímabils. Barnalífeyrir kæranda var látinn ganga upp í fyrirframgreiðslu meðlags í samræmi við framangreint ákvæði.

Við úrlausn þessa máls lítur úrskurðarnefnd velferðarmála til þess sem greinir í 1. málsl. 1. mgr. 52. gr. laga um almannatryggingar. Þar segir svo:

„Sækja skal um allar bætur og greiðslur samkvæmt lögum þessum.“

Samkvæmt framangreindu er barnalífeyrir ekki sjálfkrafa greiddur af Tryggingastofnun ríkisins heldur verður að sækja sérstaklega um slíkar greiðslur.

Um upphafstíma greiðslna almannatrygginga er fjallað í 53. gr. laga um almannatryggingar. Svohljóðandi eru 1. og 4. mgr. ákvæðisins:

„Réttur til bóta stofnast frá og með þeim degi er umsækjandi telst uppfylla skilyrði til bótanna og skulu bætur reiknaðar frá fyrsta degi næsta mánaðar eftir að bótaréttur er fyrir hendi. Bætur falla niður í lok þess mánaðar er bótarétti lýkur.

[…]

Bætur skulu aldrei ákvarðaðar lengra aftur í tímann en tvö ár frá því að Tryggingastofnun berst umsókn og önnur gögn sem nauðsynleg eru til að unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt og fjárhæð bóta.“

Af framangreindu ákvæði verður ráðið að ekki sé heimilt að ákvarða bætur lengra aftur í tímann en tvö ár frá því að umsókn og önnur nauðsynleg gögn til að leggja mat á bótarétt og fjárhæð bóta berast Tryggingastofnun ríkisins. Þá skulu bætur reiknaðar frá fyrsta degi næsta mánaðar eftir að bótaréttur er fyrir hendi. Í gögnum málsins liggja fyrir umsóknir kæranda um barnalífeyri frá árunum X, X og X vegna annarra barna hans. Kærandi sótti aftur á móti ekki um greiðslur barnalífeyris vegna sonar síns B fyrr en með rafrænni umsókn 24. maí 2018. Tryggingastofnun ákvarðaði honum greiðslur frá 1. maí 2016 vegna B. Kærandi fékk því greiddar bætur rúmlega tvö ár aftur í tímann frá umsókn. Engar heimildir eru í lögum til þess að greiða barnalífeyri lengra aftur í tímann.

Að framangreindu virtu er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um upphafstíma greiðslna barnalífeyris staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, frá 28. maí 2018, um upphafstíma greiðslna barnalífeyris til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum