Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 383/2017

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 6. júlí 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 383/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17050032

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 22. maí 2017 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. apríl 2017, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 5. október 2016. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 3. febrúar 2017 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 10. apríl 2017, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og vegna sérstakra tengsla við landið. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 22. maí 2017. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 6. júní 2017. Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að tjá sig við nefndina um efni málsins. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun byggði hann umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að honum stafi hætta af valdamiklum manni í heimaríki sem hafi unnið […] skaða.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og vegna sérstakra tengsla við landið skv. 74. gr. og 78. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli d-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að ástæða flótta hans sé sú að honum stafi hætta af valdamiklum manni að nafni […] í heimaríki. Kærandi tengist honum í gegnum […], sem hafi verið […]. […]. Kærandi kveðst hafa aðstoðað […] við þessi vandamál í […] og hafi […] borið kennsl á hann og viðhaft ógnandi framkomu gagnvart honum. Kærandi hafi ásamt […] leitað til saksóknara í heimaríki sínu sem hafi ráðlagt þeim að flýja land. Kærandi telur sig vera í hættu í heimaríki og ákvað því að flýja til Íslands í október 2016.

Í greinargerð er fjallað almennt um ástand mannréttindamála í […]. Kærandi vísar m.a. til þess að helstu mannréttindabrotin í […] séu handahófskenndar handtökur, annmarkar á réttakerfinu, þ.m.t. þrýstingur á dómstóla í tilteknum málum, veikleikar í opinberum stofnunum, misnotkun af hálfu starfsmanna löggæslustofnana, spilling innan stjórnkerfisins og ófullnægjandi aðstæður í fangelsum. Þá hafi mannréttindasamtök lýst yfir alvarlegum áhyggjum af skorti á sjálfstæði og óhlutdrægni dómstóla. Þá sé eftirlit með spillingu innan sjálfstæðra stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins óvirkt.

Til stuðnings aðalkröfu vísar kærandi til til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og samspil hennar við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. gr. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar. Í frumvarpi að stjórnskipunarlögum nr. 97/1995 sem í fólust breytingar á 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar til samræmis við 3. gr. MSE segi að ómannúðleg og vanvirðandi meðferð birtist á margvíslegum sviðum sem ógerlegt sé að telja með tæmandi hætti. Í því sambandi hafi sérstaklega verið nefndar aðstæður þar sem einstaklingur sé háður boðvaldi annarra eða settur undir yfirburðastöðu annars einstaklings og sem dæmi nefnd, auk frelsissviptingar á borð við fangelsisvist, meðferð barns í skóla eða á öðrum stofnunum. Samkvæmt túlkun á dómum Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Írlands gegn Bretlandi, frá 18. janúar 1978 (mál nr. 5310/71) og í máli Gäfgen gegn Þýskalandi frá 1. júní 2010 (mál nr. 22978/05) sé ekki nauðsynlegt að sýna fram á að viðkomandi einstaklingur hafi sjálfur talið þær athafnir eða aðgerðir sem um séu að ræða sársaukafullar, niðurlægjandi eða auðmýkjandi heldur geti raunhæf hótun um að einstaklingur verði pyndaður valdið svo miklum þjáningum eða ótta að það teljist til ómannúðlegar meðferðar, þótt aldrei komi til að slíkri hótun verði fylgt eftir.

Kærandi vísar til þess að […]. Kærandi kveðst hafa orðið fyrir áhrifum af ofsóknum þeim sem […] hafi orðið fyrir. Kærandi kveðst hafa aðstoðað […] í máli hans gagnvart […] og hafi hann borið kennsl á kæranda og viðhaft ógnandi hegðun í hans garð. Tengsl kæranda við málið auk hinnar ógnandi hegðunar […] í hans garð sem og vitneskju kæranda um skort á vilja […] stjórnvalda til að veita honum vernd hafa vakið hjá honum vanmátt og ástæðuríkan ótta við að verða beittur illri meðferð. Kærandi telji að hin ógnandi hegðun sem […] hafi viðhaft í hans garð verði ekki túlkuð með öðrum hætti en að um sé að ræða hótanir um illa meðferð. Slíkar hótanir séu til þess fallnar að valda þjáningu og tilfinningum sem uppfylli skilyrði ómannlegrar og vanvirðandi meðferðar samkvæmt framangreindu. Beri því að veita kæranda viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Til vara krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu dvalarleyfis á þeim grundvelli geti útlendingur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. vegna erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærandi vísar til greinargerðar með frumvarpi til laganna en þar komi fram að með almennum aðstæðum sé m.a. vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með hliðsjón af framangreindri umfjöllun um aðstæður kæranda og yfirvöld í heimaríki telji kærandi skilyrði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Þá byggir kærandi á því að kærandi hafi sérstök tengsl við Ísland og beri að veita honum dvalarleyfi með vísan til 1. mgr. 78. gr. laga um útlendinga eða 12. gr. f eldri laga um útlendinga nr. 96/2002. Byggir kærandi á því að stjórnvöldum beri að leggja mat á það hvort eldri lög um útlendinga tryggi kæranda önnur og meiri réttindi en hann njóti samkvæmt gildandi lögum. Vísar kærandi til almennra lagaskilareglna íslensks réttar því til stuðnings.

Kærandi telur það rangt af Útlendingastofnun að draga þá ályktun að ekkert bendi til þess að kæranda stafi ógn af […]. Þá telur kærandi gæta misræmis milli þeirra ályktana sem stofnunin dragi í máli kæranda annars vegar og hins vegar í máli […] kæranda. Kærandi telur að þar sem um sé að ræða sama einstakling sem hafi viðhaft ógnandi framkomu gagnvart þeim báðum hafi Útlendingastofnun borið að leggja með jafn afgerandi hætti til grundvallar að […] stjórnvöld hefðu ekki vilja til að veita kæranda vernd. Ofangreindir annmarkar á skyldum Útlendingastofnunar á ákvæðum stjórnsýslulaga styðji kröfu hans um að fella eigi ákvörðun stofnunarinnar úr gildi.

Að lokum bendir kærandi á að við mat á möguleika á flótta innanlands beri að líta til þess hvort slíkur flutningur geti talist viðeigandi úrræði og hvort krafan sé sanngjörn. Þá þurfi að fara fram einstaklingsbundið mat í hverju tilviki fyrir sig og almennt séu ekki forsendur til þess að kanna möguleika á flótta innan heimaríkis ef ljóst sé að ríkið skorti vilja eða getu til að vernda einstaklinga gegn ofsóknum. Við matið þurfi að skoða leiðbeiningar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og athugasemdir með 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem fram komi að hugtakið um raunverulega vernd í öðrum hluta heimaríkis sé ekki meginregla í alþjóðlegri flóttamannalöggjöf. Þá sé þess ekki krafist að einstaklingur sem sæti ofsóknum hafi útilokað alla möguleika í heimaríki áður en hann sæki um alþjóðlega vernd. Telur kærandi flutning innanlands ekki raunhæfan möguleika og vísar þar til ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli […] kæranda þar sem flutningur innanlands hafi ekki verið talinn raunhæfur möguleiki.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 121. gr. laganna, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum að því leyti sem hún hefur enn lagastoð, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað […] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé […] ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í […] m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

[…]

Í ofangreindum gögnum kemur fram að stjórnarskrá […] kveði á um jafnrétti allra fyrir lögunum og mismunun á grundvelli kynþáttar, litarháttar, tungumáls, kyns, trúar- og lífsskoðana, stjórnmálaskoðana, þjóðernis, félagslegrar stöðu eða tengsla, uppruna, búsetu eða efnahagslegrar stöðu sé refsiverð skv. refsilöggjöf landsins. […].

[…]. Yfirvöld hafi hins vegar gripið til ýmissa aðgerða til að sporna við spillingu og hafi miklar framfarir átt sér stað á undanförnum árum, m.a. hafi verið sett á fót sérstök landsáætlun til að sporna við skipulögðum glæpum í landinu […]. Þá beri stjórnvöldum að taka allar tilkynningar um misferli lögreglu til skoðunar og aðili sem telji að brotið sé á réttindum sínum geti kært til æðra stjórnvalds eða farið með mál sitt fyrir dómstóla. […].

Ennfremur kemur fram að stjórnvöld hafi farið í ýmsar aðgerðir til þess að berjast gegn skipulagðri glæpastarfsemi sem hafi verið mikið vandamál í […]. Sett hafa verið ný lög um skipulagða glæpastarfsemi og gerðar breytingar á öðrum lögum s.s. refsilögum landsins. […]. Þá hafi góður árangur náðst í að uppræta glæpahópa og almenningur í landinu hafi verið hvattur til þess að leita til lögreglu og aðstoða við að upplýsa um skipulagð glæpastarfsemi í landinu.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 37. gr. sömu laga. Kærandi ber því við að honum stafi hætta af valdamiklum manni í heimaríki sem hafi unnið […] skaða.

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda um alþjóðlega vernd ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimaríki sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Hugtakið „ástæðuríkur ótti við ofsóknir“ inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn a.m.k. að sýna fram á að ákveðnar líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi hefur borið fyrir sig að eiga á hættu ofsóknir af hálfu valdamikils manns sem hafi beitt […] kæranda alvarlegu ofbeldi. Fyrir liggur að […] hefur verið veitt alþjóðleg vernd hér á landi á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 45. gr. laganna, með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 10. apríl 2017. Kærunefnd hefur farið yfir mál […] kæranda og telur að ástæður þær sem lágu til grundvallar ákvörðun Útlendingastofnunar um viðurkenningu á stöðu hans sem flóttamanns ekki eiga við í máli kæranda. Kærandi kveðst hafa aðstoðað […] í samskiptum við þennan mann og maðurinn hafi viðhaft ógnandi framkomu gagnvart kæranda. Þar sem að kærandi hafi ekki talið að yfirvöld gætu veitt honum vernd hafi hann ákveðið að flýja. Kærandi hefur þó ekki borið fyrir sig að fyrrgreindur maður hafi hótað kæranda beint eða beitt hann ofbeldi. Kærunefnd telur að þau samskipti sem kærandi hefur átt við þann mann sem olli […] hans líkamstjóni sé ekki af þeim toga að raunhæf ástæða sé til að ætla að hann eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Við það mat hefur kærunefnd hliðsjón af því að staða kæranda sé önnur en […], en sem fyrr segir starfaði sá síðarnefndi sem […].

Þá hefur kærandi borið fyrir sig að ástæður ætlaðra ofsókna þessa manns séu tengsl við […] kæranda […]. Í 1. mgr. 37. gr. eru tilgreindar þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast til að staða flóttamanns skv. 1. mgr. 37. gr. verði veitt, þ.e. kynþáttur, trúarbrögð, þjóðerni, aðild að tilteknum þjóðfélagshópi eða stjórnmálaskoðanir. Í a-e-lið 3. mgr. 38. gr. eru þessar ástæður skilgreindar nánar. Að mati kærunefndar og með vísan til gagna málsins er ljóst að ætlaðir ofsóknir ekki á grundvelli þeirra ástæðna sem 1. mgr. 37. tekur til.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 6. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal stjórnvald sem kemst að því að ákvæði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna eigi ekki við um útlending að eigin frumkvæði taka til skoðunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. sömu laga. Þrátt fyrir að orðalag 1. mgr. 74. gr. kveði ekki með skýrum hætti á um veitingu dvalarleyfis má skilja af athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga nr. 80/2016, fyrirsögn greinarinnar og af 6. mgr. 37. gr. laganna að það hafi þó verið ætlunin með ákvæðinu. Kærunefnd telur því rétt að túlka ákvæðið sem heimild til veitingar dvalarleyfis þegar skilyrði þess eru uppfyllt.

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga má líta til mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi er […]. Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið skv. 1. mgr. 78. gr. laga um útlendinga

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið skv. 1. mgr. 78. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt 1. mgr. 78. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi á grundvelli þess að hann teljist hafa sérstök tengsl við landið, að fullnægðum skilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr., sé hann eldri en 18 ára og falli ekki undir ákvæði um önnur dvalarleyfi samkvæmt lögum þessum eða fullnægi ekki skilyrðum þeirra.

Í 3. mgr. 78. gr. er kveðið á um að heildstætt mat skuli fara fram á tengslum umsækjanda við landið. Við það mat skal að jafnaði horft til lengdar lögmætrar dvalar. Jafnframt er heimilt að líta til fjölskyldutengsla, þ.e. fjölskyldusamsetningar umsækjanda með tilliti til umönnunarsjónarmiða, sbr. a-lið 3. mgr. 78. gr. laga um útlendinga, og félagslegra og menningarlegra tengsla við landið á grundvelli atvinnuþátttöku eða annarra sambærilegra tengsla, sbr. b-lið 3. mgr. 78. gr. laganna.

Í 4. mgr. 78. gr. laganna að til sérstakra tengsla við landið skv. 2. mgr. geti ekki talist þau tengsl sem útlendingur myndar við dvöl hér á landi á grundvelli bráðabirgðadvalarleyfis sem gefið er út til umsækjenda um alþjóðlega vernd, sbr. 77. gr. laganna. Af gögnum málsins liggur fyrir að kærandi hefur dvalið hér á landi í átta mánuði vegna umsóknar sinnar um alþjóðlega vernd. Kærunefnd telur að dvöl vegna umsóknar um alþjóðlega vernd, hvort sem umsækjandi hefur fengið útgefið bráðabirgðadvalarleyfi samkvæmt 77. gr. laga um útlendinga eða ekki, geti ekki talist til lögmætrar dvalar í skilningi 3. mgr. 78. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi ekki hafa tengsl við Ísland. Þó fyrir liggi að […] hafi verið veitt vernd hér á landi verður ekki talið að kærandi hafi sérstök tengsl við landið í skilningi 78. gr. laga um útlendinga á þeim grundvelli. Ákvörðun Útlendingastofnunar að því er varðar dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið er því staðfest.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson

Anna Tryggvadóttir Pétur Dam Leifsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum