Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 9/2018 Úrskurður 18. apríl 2018

Mál nr. 9/2018                       Millinafn:       Hjartar

 


 

Hinn 18. apríl 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 9/2018 en erindið barst nefndinni 19. febrúar. Erindið var áður tekið fyrir á fundi 20. mars en frestað.

Nafnið Hjartar er til sem ættarnafn á Íslandi og borið sem slíkt í þjóðskrá. Samkvæmt  1. mgr. 7. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn, er ættarnafn einungis heimilt sem millinafn í tilvikum sem um getur í 7. gr laganna. Þau eru þessi:

-          Hver maður, sem ber ættarnafn í þjóðskrá má breyta því í millinafn.

-          Hver maður, sem ekki ber ættarnafn en á rétt til þess, má bera það sem millinafn.

-          Maður má bera ættarnafn sem millinafn hafi eitthvert alsystkini hans, foreldri, afi eða amma borið það sem eiginnafn, millinafn eða ættarnafn.

-          Maður á og rétt á að taka sér ættarnafn maka síns sem millinafn. Honum er einnig heimilt að taka sér nafnið sem millinafn beri maki hans það sem millinafn.

Samkvæmt erindi úrskurðarbeiðanda á ekkert þesssara tilvika við um hana og þannig ekki unnt að fallast á Hjartar sem millinafn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Hjartar er hafnað.


 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum