Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 11/2018 Úrskurður 18. apríl 2018

Mál nr. 11/2018                    Kenninafn: Lúðvíksdóttir

 

 


Hinn 18. apríl 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 11/2018 en erindið barst nefndinni 20. febrúar. Málið var einnig tekið fyrir á fundi nefndarinnar 20. mars en var þá frestað til næsta fundar.

 

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 20. febrúar 2018, var óskað úrskurðar mannannefndar um beiðni xxx um að eiginnafn föður, Ludis, verði lagað að íslensku máli og að föðurkenning verði Lúðvíksdóttir.

 

Í 4. mgr. 8. gr. laga um mannanöfn, nr. 45/1996, segir svo: „Nú óskar maður þess að hann eða barn hans beri kenninafn sem degið er af erlendu eiginnafni foreldris og má þá með úrskurði mannanafnanefndar laga kenninafnið að íslensku máli.“ Lúðvíksdóttir er að mati mannanafnanefndar aðlögun nafnsins Ludis að íslensku máli og því samþykkt.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um föðurkenninguna Lúðvíksdóttir er samþykkt.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum