Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 20/2018 Úrskurður 18. apríl 2018

Mál nr. 20/2018                     Millinafn:       Starr

 


Hinn 18. apríl 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 20/2018, en erindið barst nefndinni 12. mars. Málið fyrst tekið fyrir á fundi nefndarinnar 20. mars, en afgreiðslu þess frestað:

Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

-          Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.

-          Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.

-          Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

-          Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Starr er af íslenskum orðstofni, sbr. fuglsheitið starri (hliðarmynd er stari); einnig er til hvorugkynsnafnorðið starr í merkingunni 'þræta, rifrildi', sögnin starra (-aði) 'deila, rífast' og lýsingarorðið starr 'stífur, sem verður ekki beygður, stirður, ósveigjanlegur, harður'.

Millinafnið Starr telst uppfylla öll skilyrði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Starr er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum