Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 26/2018 Úrskurður 18. apríl 2018

Mál nr. 26/2018                     Eiginnafn/Millinafn: Araminta

 


 

Hinn 18. apríl 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 26/2018, en erindið barst nefndinni 5. apríl.

 

Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

-          Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.

-          Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.

-          Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

-          Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Araminta er ekki dregið af íslenskum orðstofni og hefur nefnifallsendingu. Það fullnægir þess vegna ekki skilyrðum laga um mannanöfn.

 

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

 

-          Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

-          Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

-          Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

-          Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

-          Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Araminta (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Aramintu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Araminta er hafnað. Beiðni um eiginnafnið Araminta (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum