Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 102/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 102/2016

Föstudaginn 9. september 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 9. mars 2016, kærir A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. febrúar 2016, um innheimtu ofgreiddra bóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 1. mars 2013 og fékk hún greiddar atvinnuleysisbætur til 19. ágúst 2013. Þann 16. ágúst 2013 upplýsti kærandi Vinnumálastofnun um að hún hafi fengið vinnu í júní 2013 og skilaði inn upplýsingum um tekjur fyrir júní, júlí og ágúst 2013. Vegna framangreindra tekna fékk kærandi greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hún átti rétt á og því myndaðist endurgreiðslukrafa á hendur henni. Með innheimtubréfi, dags. 22. febrúar 2016, fór Vinnumálastofnun þess á leit við kæranda að hún greiddi skuld að fjárhæð 96.139 kr., án álags, vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta á tímabilinu 1. júní 2013 til 31. ágúst 2013.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 9. mars 2016. Með bréfi, dags. 10. mars 2016, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 31. mars 2016. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 5. apríl 2016, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi ekki ætlað að hefja störf fyrr en í ágúst 2013 vegna aðgerðar sem hún hafi þurft að undirgangast. Hún hafi hins vegar verið beðin um að hefja störf fyrr og samþykkt að vinna í júní en óskað eftir að vera í fríi í júlí. Kærandi tekur fram að hún hafi ekki skráð sig strax af greiðsluskrá atvinnuleysistrygginga til þess að hún yrði ekki launalaus í júlí mánuði. Kærandi telur innheimtu Vinnumálastofnunar ósanngjarna þar sem hún hafi ekki verið með háar tekjur og fer fram á að skuldin verði felld niður eða lækkuð.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi fengið greidd laun í júní, júlí og ágúst 2013 á meðan hún hafi þegið atvinnuleysisbætur. Laun hennar í júlí hafi ekki komið til skerðingar á atvinnuleysisbótum þar sem tekjur hennar þann mánuðinn hafi verið lægri en frítekjumark atvinnuleysistrygginga. Þar sem kærandi hafi ekki tilkynnt um tekjur til Vinnumálastofnunar hafi greiðslur atvinnuleysistrygginga kæranda verið skertar afturvirkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Vegna þessa hafi myndast skuld í greiðslukerfi Vinnumálastofnunar og kæranda beri að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar bætur, sbr. 2. mgr. 39. gr. laganna.

Vinnumálastofnun tekur fram að stofnuninni sé skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögunum sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Hver sé ástæða þess að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur hafi þannig ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið.

Í málinu liggi fyrir að eftirstandandi skuld kæranda við Vinnumálastofnun nemi 96.139 kr. sem henni beri að endurgreiða stofnuninni í samræmi við 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Vinnumálastofnun hafi ekki gert kröfu um að kærandi greiði 15% álag samkvæmt fyrrnefndu lagaákvæði. Það sé niðurstaða stofnunarinnar að kærandi skuli endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar að fjárhæð 96.139 kr.

Í 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um frádrátt frá atvinnuleysisbótum vegna tekna. Í 1. mgr. 36. gr. segir meðal annars að þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða og atvinnuleysisbætur hans eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skuli skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildi um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu og elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar.

Þá segir í  2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt gögnum málsins á skuld kæranda rætur sínar að rekja til þess að hún fékk ofgreiddar bætur í júní og ágúst 2013 þar sem hún tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um tekjur fyrir vinnu þá mánuði en tekjurnar voru umfram frítekjumark.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt viðkomandi samkvæmt lögunum. Það er því á ábyrgð bótaþega að upplýsa um tekjur en Vinnumálastofnun greiðir atvinnuleysisbætur í samræmi við tekjuáætlun atvinnuleitanda.

Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Því verður ekki fallist á kröfu kæranda um niðurfellingu eða lækkun skuldar. Hins vegar skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og því er ekki ágreiningur um það atriði.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. febrúar 2016, í máli A um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta að fjárhæð 96.139 kr. er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum