Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 23/2014, úrskurður 13. mars 2014

Mál nr. 23/2014
Millinafn: Joð

Hinn 13. mars 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 23/2014 en erindið barst nefndinni 5. mars:

Millinafnið Joð er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Joð uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Joð er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá. 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum