Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 53/2015 úrskurður 9. júlí 2015

Mál nr. 53/2015                     Eiginnafn:      Eileiþía


Hinn 9. júlí 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 53/2015 en erindið barst nefndinni 1. júlí:

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

(2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

(3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er meðal annars vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Í máli þessu reynir á skilyrði (3) hér að ofan. Ritháttur nafnsins Eileithyia (kvk.) getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem táknið i kemur ekki fyrir á milli sérhljóða, í þessu tilfelli y og a. Það táknar þar j-hljóð og slíkt hljóð er í íslensku táknað með tákninu j. Engin dæmi eru heldur um það í almennu íslensku ritmáli að h sé ritað á eftir t í ósamsettum orðum. Á nafnið er því aðeins heimilt að fallast ef umbeðinn ritháttur þess telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

 

Samkvæmt gögnum Þjóðskrár þá ber engin kona nafnið Eileithyia í þjóðskrá sem uppfyllir skilyrði mannanafnanefndar varðandi hefð. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1910. Það telst því ekki vera hefð fyrir nafninu Eileithyia.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Eileithyia (kvk.) er hafnað. Vegna þess máls hefur mannanafnanefnd ákveðið að úrskurða nafnið Eileiþía (kvk.) á mannanafnaskrá sem eiginnafn.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum