Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 120/2014

Mál nr. 120/2014

Fimmtudaginn 17. nóvember 2016

A

gegn

umboðsmanni skuldara

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Sigríður Ingvarsdóttir formaður, Eggert Óskarsson og Þórhildur Líndal.

Þann 17. desember 2014 barst kærunefnd greiðsluaðlögunarmála kæra A. Kærð var ákvörðun umboðsmanns skuldara sem tilkynnt var með bréfi 11. desember 2014 þar sem greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda voru felldar niður.

Með bréfi 30. desember 2014 óskaði kærunefnd greiðsluaðlögunarmála eftir greinargerð umboðsmanns skuldara sem barst með bréfi 28. janúar 2015.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi 12. febrúar 2015 og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Ítrekun var send 29. júní 2015. Engar athugasemdir bárust.

I. Málsatvik

Kærandi eru fæddur 1965. Hann er kvæntur og býr ásamt eiginkonu sinni í húsnæði tengdaforeldra sinna að B.

Heildarskuldir kæranda, samkvæmt skuldayfirliti umboðsmanns skuldara 26. febrúar 2014, eru 6.264.204 krónur. Til helstu skuldbindinga var stofnað árin 2005, 2010 og 2012.

Kærandi rekur greiðsluerfiðleika sína til atvinnuleysis og veikinda.

Kærandi sótti um greiðsluaðlögun 19. febrúar 2014. Með ákvörðun umboðsmanns skuldara 26. febrúar 2014 var kæranda veitt heimild til að leita greiðsluaðlögunar og umsjónarmaður skipaður með greiðsluaðlögunarumleitunum hans. Í fylgiskjali með ákvörðun umboðsmanns var upplýst um skyldur skuldara við greiðsluaðlögun samkvæmt 12. gr. laga um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010 (lge.).

Með bréfi umsjónarmanns til umboðsmanns skuldara 12. september 2014 lagði umsjónarmaður til að greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda yrðu felldar niður á grundvelli 1. mgr. 15. gr. lge. Í bréfi umsjónarmanns greinir frá því að í ljós hafi komið að kærandi hefði ekki lagt fyrir í greiðsluskjóli og því brotið gegn a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. Miðað við greiðslugetu og að teknu tilliti til framlagðra reikninga vegna læknis- og tannlæknakostnaðar sem námu 100.676 krónum hefði kærandi átt að geta lagt fyrir 855.071 krónu á tímabilinu.

Með bréfi umboðsmanns skuldara til kæranda 11. nóvember 2014 var kæranda kynnt framkomin tillaga umsjónarmanns um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir hans. Þá var kæranda jafnframt gefinn kostur á að láta álit sitt í ljós innan tilskilins frests og leggja fram frekari gögn áður en umboðsmaður skuldara tæki ákvörðun um hvort fella skyldi niður greiðsluaðlögunarumleitanir hans, sbr. 1. mgr. 15. gr. lge. Nokkur samskipti voru á milli kæranda og starfsmanns umboðsmanns skuldara í kjölfarið.

Með ákvörðun 11. desember 2014 felldi umboðsmaður skuldara í framhaldinu niður greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda með vísan til 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir ekki kröfur í málinu, en skilja verður kæru hans svo að þess sé krafist að ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir hans verði felld úr gildi.

III. Sjónarmið umboðsmanns skuldara

Umboðsmaður skuldara vísar til þess að komi fram upplýsingar, sem ætla megi að komi í veg fyrir að greiðsluaðlögun sé heimil á grundvelli lge., skuli umsjónarmaður tilkynna það til umboðsmanns skuldara sem í kjölfarið taki afstöðu til málsins með rökstuddri ákvörðun.

Í 12. gr. lge. séu tilgreindar skyldur skuldara á meðan hann njóti greiðsluskjóls. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. skuli skuldari leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum sínum það fé sem sé umfram það sem hann þurfi til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða.

Samkvæmt útreikningum umboðsmanns skuldara, sbr. bréf embættisins til kæranda 11. nóvember 2014, hafi greiðsluskjól kæranda staðið yfir í rúmlega sjö mánuði en í útreikningum umboðsmanns skuldara sé miðað við tímabilið frá mars til október. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi haft neðangreindar tekjur á tímabilinu í krónum:

Launatekjur 1. mars 2014 til 30. september 2014 að frádregnum skatti 2.220.332
Meðaltekjur á mánuði 317.190
Framfærslukostnaður á mánuði 172.012
Greiðslugeta að meðaltali á mánuði 145.178
Samtals greiðslugeta í sjö mánuði 1.016.248

Samkvæmt þessu verði lagt til grundvallar að kærandi hafi haft 317.190 krónur í meðaltekjur á mánuði á sjö mánaða tímabili sem notað sé til viðmiðunar á þeim tíma er kærandi naut greiðsluskjóls.

Umsjónarmaður hafi tekið tillit til framlagðra reikninga vegna læknis- og tannlæknakostnaðar, samtals að fjárhæð 100.676 krónur. Samkvæmt framansögðu skorti 915.572 krónur á sparnað kæranda á tímabili frestunar greiðslna að frádregnum útlögðum kostnaði umfram framfærsluviðmið.

Umboðsmaður skuldara bendir á að öllum umsækjendum um greiðsluaðlögun hafi verið aðgengilegar upplýsingar um skyldur þeirra í greiðsluskjóli samkvæmt 12. gr. lge. á heimasíðu umboðsmanns skuldara, www.ums.is. Að auki séu skyldur skuldara ávallt útskýrðar og ítrekaðar á fyrsta fundi umsjónarmanns og umsækjenda. Þá hafi skriflegar leiðbeiningar um 12. gr. lge. fylgt með ákvörðun um samþykki umsóknar um greiðsluaðlögun 26. febrúar 2014 sem barst kæranda með ábyrgðarbréfi. Kæranda mátti því vera ljóst að hann skyldi halda til haga þeim fjármunum sem hann átti aflögu í lok hvers mánaðar til greiðslu af skuldum sínum þegar að því kæmi að semja við kröfuhafa.

Með vísan til forsendna hinnar kærðu ákvörðunar fer umboðsmaður skuldara fram á að hún verði staðfest.

IV. Niðurstaða

Ákvörðun umboðsmanns skuldara byggist á 15. gr. lge með vísan til a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge. þar sem skyldur skuldara við greiðsluaðlögun eru tilgreindar.

Samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. skal skuldari leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum það fé sem er umfram það sem hann þarf til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða.

Með bréfi til umboðsmanns skuldara 12. september 2014 lagði umsjónarmaður til að greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda yrðu felldar niður samkvæmt 15. gr. lge. Í bréfinu kemur fram að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. Í kjölfarið felldi umboðsmaður skuldara greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda niður með hinni kærðu ákvörðun 11. desember 2014.

Í 1. mgr. 11. gr. lge. kemur fram að frestun greiðslna hefjist þegar umboðsmaður skuldara hefur samþykkt umsókn um heimild til að leita greiðsluaðlögunar. Kærandi sótti um greiðsluaðlögun 19. febrúar 2014 og umboðsmaður skuldara samþykkti umsókn hans með ákvörðun 26. febrúar sama ár. Kæranda bar því að virða skyldur sínar samkvæmt 12. gr. laganna um leið og umsókn hans var samþykkt og frestun greiðslna hófst.

Umboðsmaður skuldara telur að kærandi hafi átt að leggja til hliðar 1.016.248 krónur frá því að umsókn hans um greiðsluaðlögun var samþykkt. Við meðferð málsins hjá umboðsmanni skuldara var fallist á að taka tillit til óvæntra útgjalda vegna læknis- og tannlæknakostnaðar kæranda á tímabilinu að fjárhæð 100.676 krónur.

Samkvæmt fyrirliggjandi skattframtölum og launaupplýsingum Ríkisskattstjóra, sem eru meðal gagna málsins, hafa mánaðartekjur kæranda í krónum verið eftirfarandi í greiðsluskjóli á neðangreindu tímabili:

Tímabilið 1. mars 2014 til 30. nóvember 2014: Níu mánuðir
Nettótekjur 2.644.588
Nettó mánaðartekjur að meðaltali 293.843

Sé miðað við framfærslukostnað samkvæmt ákvörðun umboðsmanns skuldara og tekjur kæranda var greiðslugeta hans þessi í greiðsluskjóli í krónum:

Tímabilið 1. mars 2014 til 30. nóvember 2014: Níu mánuðir
Nettótekjur alls í greiðsluskjóli 2.644.588
Mánaðarlegar ráðstöfunartekjur að meðaltali í greiðsluskjóli 293.843
Mánaðarleg útgjöld samkvæmt ákvörðun umboðsmanns 172.012
Greiðslugeta kæranda á mánuði 121.831
Alls sparnaður í níu mánuði í greiðsluskjóli x 121.831 1.096.480

Við mat á því hvaða fjárhæð kæranda ber að leggja til hliðar af launum sínum í greiðsluskjóli skal samkvæmt 4. mgr. 16. gr. lge. notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setur. Þegar metið er hvort skuldari hafi sinnt skyldum sínum meðan á frestun greiðslna hefur staðið er gert ráð fyrir svigrúmi til að mæta óvæntum útgjöldum.

Umboðsmaður skuldara hefur tekið tillit til útgjalda kæranda vegna læknis- og tannlæknakostnaðar að fjárhæð 100.676 krónur, sem telst vera óvæntur kostnaður í skilningi a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge., og verður hann því dreginn frá þeirri fjárhæð sem kærandi átti að leggja fyrir á tímabilinu.

Að þessu virtu átti kærandi að geta lagt fyrir 995.804 (1.096.480-100.676) krónur á tímabili greiðsluskjóls en kærandi hefur ekki sýnt fram á að hann hafi lagt neinn sparnað til hliðar. Samkvæmt þessu vantar 995.804 upp á þá fjárhæð sem kærandi átti að geta lagt fyrir á tímabilinu.

Í ljósi alls þessa verður að líta svo á að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. og að umboðsmanni skuldara hafi því borið samkvæmt 1. mgr. 15. gr. laganna að fella greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda niður. Með vísan til þess sem að framan greinir er hin kærða ákvörðun umboðsmanns skuldara staðfest.

ÚRSKURÐARORÐ

Ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir A er staðfest.

Sigríður Ingvarsdóttir

Eggert Óskarsson

Þórhildur Líndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum