Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A6%C3%B0ingar-%20og%20foreldraorlof

Mál nr. 1/2012

Fimmtudaginn 30. ágúst 2012

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Jóna Björk Helgadóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 6. janúar 2012 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 5. janúar 2012. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) um að endurkrefja kæranda um ofgreiðslu frá Fæðingarorlofssjóði.

Með bréfi, dags. 9. janúar 2012, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 15. janúar 2012.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 18. janúar 2012, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda.

I.

Sjónarmið kæranda.

Í kæru sinni greinir kærandi frá því að hann hafi verið í fæðingarorlofi í febrúar og mars 2011 og í ágústmánuði sama ár. Heimilisaðstæður kæranda hafi verið þannig að hann hafi ekki búið með barnsmóður sinni á umræddum tíma en þau hafi verið með sameiginlegt forræði yfir barni þeirra. Kærandi hafi unnið á bílaverkstæði og hafi hætt í vinnunni þegar hann hafi byrjað í orlofi. Kærandi hafi einnig starfað í hlutastarfi við brunavarnir sem varðstjóri og hafi þegið fyrir það fastar greiðslur. Kærandi hafi einnig farið í frí á þeim vinnustað og hafi ekki sinnt útköllum, æfingum eða bakvöktum. Síðan hafi það gerst að slökkviliðsstjóri hafi gleymt að taka kæranda af launalista og 1. mars 2011 hafi kærandi fengið borgaða fasta greiðslu. Þá hafi kærandi skoðað lögin og talið að skv. 13. gr. laga nr. 95/2000 hafi þessi greiðsla verið innan þeirra tekjumarka sem kærandi hafi mátt þiggja án skerðingar á fæðingarorlofi og því hafi kærandi sagt við slökkviliðsstjóra að ef hann vildi styrkja kæranda í fæðingarorlofi væri það í lagi og hafi hann borgað kæranda líka fyrir mars með greiðslu 1. apríl 2011. Síðan hafi það gerst 5. ágúst sama ár að kærandi hafi verið nýbúinn að fara með son sinn til móður sinnar þegar útkall hafi komið vegna bílslyss og slökkviliðsstjóri hafi hringt í kæranda og spurt hvort kærandi gæti sinnt þessu, það hafi legið mikið við og margir slökkviliðsmenn hafi verið í fríi. Kærandi hafi farið í útkallið sem hafi reynst vera alvarleg bílvelta. Nokkrum dögum seinna hafi kærandi sagt slökkviliðsstjóra að hann skuli ekki borga kæranda fyrir ágúst og kærandi hafi ekki ætlað að taka laun fyrir útkallið. Slökkviliðsstjórinn hafi gleymt þessu og því hafi kærandi fengið borgaða þrjá tíma fyrir ágúst, sem hafi verið vegna þessa útkalls en ekki vegna fastagreiðslu. Af þessari ástæðu hafi Fæðingarorlofssjóður ákveðið að kærandi hafi verið að vinna í fæðingarorlofinu og endurkrafið kæranda um hluta af greiðslunum. Það hafi verið töluvert strembið að reka heimili og kærandi hafi ekki átt peninga til að endurgreiða Fæðingarorlofssjóðnum og því hafi kæranda ekki fundist það réttlátt að hegna sér með þessum hætti fyrir að sinna borgaralegri skyldu sinni. Fæðingarorlofssjóður sé ekki að fara eftir lögunum um fæðingarorlof um útreikning tekna og lögin um störf slökkviliðsmanna í útkalli gangi fyrir lögum um foreldra- og fæðingarorlof.

 

II.

Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram með bréfi, dags. 20. október 2011, hafi verið vakin athygli kæranda á því að stofnunin væri með mál hans til meðferðar vegna hugsanlegrar ofgreiðslu fyrir febrúar, mars og ágúst 2011. Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK hafi hann fengið laun frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðlum, tímaskýrslum, útskýringum vinnuveitanda og útskýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Skrifleg staðfesting hafi borist frá vinnuveitanda kæranda, dags. 26. október 2011, ásamt launayfirliti fyrir tímabilið og afriti af bréfi til Fæðingarorlofssjóðs, dags. 2. júní 2008. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 3. nóvember 2011, ásamt sundurliðun ofgreiðslu þar sem hann hafi verið krafinn um endurgreiðslu hluta útborgaðrar fjárhæðar fyrir febrúar, mars og ágúst 2011 ásamt 15% álagi. Litið hafi verið svo á samkvæmt skrám RSK, fyrirhugaðri töku fæðingarorlofs með barni fæddu Y. júlí 2010 og innsendum gögnum og skýringum að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði skv. 9. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og f-lið 8. gr. laga nr. 74/2008, nú 10. mgr. 13. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 136/2011, sbr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl.

Þann 8. nóvember 2011 hafi borist bréf frá vinnuveitanda kæranda. Með bréfi til kæranda, dags. 9. nóvember 2011, hafi verið talið að innsent bréf gæfi ekki tilefni til að breyta fyrri ákvörðun í málinu. Tölvupóstur hafi borist frá kæranda sjálfum þann 9. nóvember 2011. Kæranda hafi verið sent bréf að nýju, dags. 14. nóvember 2011, þar sem fram hafi komið að innsend gögn hafi ekki gefið tilefni til að breyta fyrri ákvörðun í málinu.

Fæðingarorlofssjóður bendir á að skv. 1. mgr. 7. gr. ffl. sé fæðingarorlof samkvæmt lögunum leyfi frá launuðum störfum sem stofnast til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 8. gr. sé fjallað um rétt foreldra á vinnumarkaði til fæðingarorlofs og í 10. gr. sé fjallað um tilhögun fæðingarorlofs.

Fæðingarorlofssjóður vísar til þess að í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008 og a-lið 16. gr. laga nr. 120/2009 sem hafi verið í gildi við fæðingardag barns kæranda, sé kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram sé og að miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Þegar um sé að ræða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna á viðmiðunartímabili skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur miðuðust við og aldrei skuli taka mið af hærri fjárhæð en nemi þeim viðmiðunartekjum enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli þessara greiðslna og viðmiðunartekna bættan samhliða greiðslunum. Í 2. mgr. 13. gr. ffl. segi enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Fæðingarorlofssjóður vísar til þess að samkvæmt fortakslausu ákvæði 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, nú 10. mgr. 13. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 136/2011, skuli greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru hærri en nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skulu greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja má til breytinga á störfum foreldris. Fæðingarorlofssjóður vísar til þess að í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, segi orðrétt:

 „Talið er mikilvægt að lögin kveði skýrar á um tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði en þeim er ætlað að bæta fyrir 80% af tekjumissi foreldra er þeir leggja niður störf í fæðingarorlofi. Fái foreldri tekjutapið bætt frá vinnuveitanda er eðlilegt að það komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó er gert ráð fyrir að foreldri geti fengið bætur annars staðar frá fyrir þann tekjumissi er Fæðingarorlofssjóði er ekki ætlað að bæta. Kæmi sá hluti því ekki til frádráttar. Er því lagt til að kveðið verði skýrt á um að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram 20% af meðaltali heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þegar foreldri hefur hærri tekjur en hámarkstekjurnar sem lagt er til að verði miðað við skv. 3. mgr. þá er gert ráð fyrir að hærri greiðslur en sem nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr sjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til tiltekinna breytinga sem geta orðið á tekjum foreldra á þeim tíma sem líður frá því að viðmiðunartímabili lýkur og fram til upphafs fæðingarorlofs foreldris og geta talist vera í samræmi við það sem almennt tíðkast á íslenskum vinnumarkaði. Með þessum hætti er verið að undirstrika tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem er aðallega ætlað að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki. Er með þessu enn fremur lögð rík áhersla á að foreldrar leggi sannanlega niður launuð störf á þeim tíma er þeir nýta sér rétt sinn samkvæmt lögunum.“

Þá segi í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, orðrétt:

„Lögin um fæðingar- og foreldraorlof gera ráð fyrir að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til ákveðinna breytinga á launakjörum foreldra skv. 9. mgr. 13. gr. laganna. Þykir mikilvægt að tekið sé fram að eingöngu sé verið að miða við greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi. Ástæðan er einkum sú að foreldrar kunna að eiga rétt á eingreiðslum frá vinnuveitendum á ákveðnum tíma árs sem koma til framkvæmda meðan foreldri er í fæðingarorlofi en er ætlað fyrir lengra tímabil en nemur fæðingarorlofstíma foreldris. Dæmi um slíkar greiðslur eru bónusgreiðslur sem koma til framkvæmda við árslok en miðast við frammistöðu starfsmanns eða velgengni fyrirtækis á hluteigandi ári.“

Fæðingarorlofssjóður bendir á að í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, komi fram hvaða laun skuli telja með við útreikning á meðaltali heildarlauna. Samkvæmt ákvæðinu skuli telja til launa hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeninga, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, sé stofn til tryggingagjalds allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, sem skattskyld eru skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Í 7. og 8. gr. laga um tryggingagjald sé frekari upptalning á því hvað teljist til gjaldstofns tryggingagjalds skv. 6. gr. laganna og í 9. gr. sé upptalning á því hvaða greiðslur séu undanþegnar tryggingagjaldi. Við mat á því hvaða greiðslur vinnuveitenda megi fara með og hvaða greiðslur megi ekki fara með greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði sé því nauðsynlegt að hafa til hliðsjónar hvaða greiðslur það eru sem sjóðurinn telur með þegar fundið sé út meðaltal heildarlauna foreldris.

Í 15. gr. a ffl., sbr. 6. gr. laga 90/2004, sé fjallað um leiðréttingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 2. mgr. komi fram að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Ekki hafi komið fram nein rök sem gefi tilefni til að fella niður 15% álag á kæranda.

Með umsókn kæranda, dags. 14. desember 2010, hafi kærandi sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í þrjá mánuði vegna barns hans sem fæddist Y. júlí 2010. Tvær tilkynningar hafi borist frá kæranda um tilhögun fæðingarorlofs en kærandi starfaði hjá tveimur vinnuveitendum. Á tilkynningu frá B, dags. 28. desember 2010, hafi komið fram að kærandi hafi verið í 21% starfi hjá B síðustu sex mánuði fyrir fæðingardag barns og að hann yrði í fæðingarorlofi í febrúar, mars og ágúst 2011. Var kærandi afgreiddur í 100% fæðingarorlof í samræmi við það, sbr. greiðsluáætlun til hans, dags. 3. janúar 2011.

Á staðfestingu frá vinnuveitanda kæranda, dags. 26. október 2011, hafi sagt að það hafi verið augljóst að orðið hafi mjög slæm mistök sem hafi verið algjörlega á ábyrgð vinnuveitandans og harmi hann það að hafa valdið kæranda þessum vandræðum. Síðar í bréfinu segi vinnuveitandinn að hvernig sem á málið verði litið hafi mistökin algjörlega verið vinnuveitandans og biðjist hann innilega afsökunar á því. Á yfirliti launa fyrir febrúar hafi komið fram að kærandi hafi haldið óskertum launum frá B þrátt fyrir 100% fæðingarorlof. Hann hafi fengið 21% mánaðarlaun og hafi haldið að auki greiðslum vegna símavaktar, hafi fengið fjóra tíma greidda í yfirvinnu auk orlofs. Á yfirliti launa fyrir mars 2011 virðist kærandi einnig hafa haldið óskertum launum frá B þrátt fyrir 100% fæðingarorlof. Hann hafi verið með 21% mánaðarlaun og hafi haldið að auki greiðslum vegna símavaktar, hafi fengið átta tíma greidda í yfirvinnu auk orlofs. Á yfirliti launa fyrir ágúst 2011 hafi kærandi hins vegar fengið leiðrétt mánaðarlaun, greiðslu fyrir símavakt, átta tíma í yfirvinnu auk orlofs.

Á staðfestingu frá vinnuveitanda kæranda, dags. 8. nóvember 2011, hafi komið fram að slökkviliðsstjóri hafi viljað árétta að kærandi hafi ekki verið starfsmaður B á framangreindu tímabili. Hann hafi hvorki gengið bakvaktir né sinnt útköllum. Jafnframt segi í sama bréfi að kærandi hafi verið kvaddur til útkalls þann 5. ágúst 2011 vegna bílslyss.

Fæðingarorlofssjóður bendir á að í tölvupósti frá kæranda, dags. 9. nóvember 2011, hafi kærandi sagst hvorki hafa verið á bakvakt né sinnt útköllum hjá slökkviliðinu í febrúar og mars 2011. Þann 5. ágúst hafi hann farið í útkall vegna alvarlegs bílslyss þar sem hann hafi verið laus til að sinna því þar sem barn kæranda hafi verið hjá móður sinni.

Samkvæmt öllu framangreindu megi sjá að kærandi hafi verið í 21% starfi sem varðstjóri hjá B. Þrátt fyrir að hafa verið skráður í 100% fæðingarorlof hjá B tímabilið febrúar, mars og ágúst 2011 hafi hann haldið fullum launum vegna 21% starfs hjá þeim fyrir febrúar og mars 2011 og sinnt útkalli í ágúst 2011 vegna bílslyss sem hann hafi fengið greitt fyrir. Því megi ljóst vera að kærandi hafi ekki lagt niður launuð störf í fæðingarorlofi hjá B eins og honum hafi borið að gera í samræmi við ffl.

Í bréfi frá slökkviliðsstjóra B, dags. 2. júní 2008, sem hann hafi látið fylgja með útskýringum sínum, dags. 26. október 2011, hafi aðstæðum vinnufyrirkomulags og launa í slökkviliðinu verið ágætlega lýst. Hafi bréfinu verið svarað þann 30. júní 2008 og hafi afrit af því fylgt með greinargerð Fæðingarorlofssjóðs.

Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda X kr. útborgað að viðbættu 15% álagi X kr. Alls sé því gerð krafa um að kærandi endurgreiði Fæðingarorlofssjóði X kr., sbr. greiðsluáskorun til hans ásamt sundurliðun á ofgreiðslu, dags. 3. nóvember 2011.

 

III.

Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns hinn Y. júlí 2010.

Í hinni kærðu ákvörðun er á því byggt að kærandi hafi þegið of há laun frá vinnuveitanda sínum, B, í febrúar, mars og ágúst 2011 á sama tíma og hann þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði.

Af hálfu kæranda kemur fram að greiðslur frá B fyrir febrúar og mars 2011 megi rekja til þess að slökkviliðsstjóra hafi láðst að taka kæranda af launaskrá, þrátt fyrir beiðni þar um, og þannig hafi kærandi fengið greidda fasta greiðslu fyrir hlutastarf sitt hjá B þessa mánuði, en kærandi var í 100% fæðingarorlofi þá mánuði. Kærandi telur hins vegar að þessar greiðslur rúmist innan þess hlutfalls af meðaltals heildarlaunum sem foreldri er heimilt að þiggja frá vinnuveitanda samkvæmt ffl. án vinnuframlags. Varðandi útkall þann 5. ágúst 2011 hafi kærandi ekki ætlað að taka laun fyrir það útkall þar sem hann var í 100% fæðingarorlofi í ágústmánuði, en slökkviliðsstjóra hafi láðst að fylgja þeim óskum kæranda eftir og greitt kæranda fyrir útkallið.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. er fæðingarorlof leyfi frá launuðum störfum sem stofnast við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í hinni kærðu ákvörðun felst að Fæðingarorlofssjóður telur kæranda ekki hafa lagt niður launuð störf í fæðingarorlofi hjá B, eins og honum hafi borið að gera í samræmi við ffl. Með bréfi slökkviliðsstjóra, dags. 8. nóvember 2011, er staðfest að kærandi hafi ekki verið í starfi hjá B í febrúar og mars 2011 og hafi hann hvorki gengið bakvaktir né sinnt útköllum á þeim tíma. Hann hafi hins vegar sinnt útkalli þann 5. ágúst 2011 vegna alvarlegs bílslyss í samræmi við skyldu sína skv. 19. gr. laga um brunavarnir, nr. 75/2000.

Ekkert í gögnum málsins gefur ástæðu til að véfengja fullyrðingu kæranda og B um að kærandi hafi hvorki gengið bakvaktir né sinnt útköllum mánuðina febrúar og mars 2011. Verður sú staðreynd að kærandi sinnti útkalli þann 5. ágúst 2011, ekki talin til þess fallin að draga í efa þær fullyrðingar, meðal annars með vísan til 19. gr. laga nr. 75/2000, þar sem mælt er fyrir um að allir verkfærir menn 18–60 ára að aldri sem hafa búsetu í sveitarfélagi séu skyldir til þjónustu í slökkviliði. Verður því litið svo á að kærandi hafi lagt niður launuð störf í febrúar og mars 2011, í samræmi við ákvæði ffl. Öðru máli gegnir að hluta til um greiðslur fyrir ágústmánuð, en fyrir liggur að kærandi sinnti útkalli í þeim mánuði sem hann fékk sérstaka greiðslu fyrir að fjárhæð X kr., auk orlofs.

Í 9. mgr. (nú 10. mgr.) 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, segir að greiðslur frá vinnuveitanda, sem eru hærri en nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris samkvæmt fyrrnefndri 2. mgr. 13. gr. laganna, skuli koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Barn kæranda er eins og fyrr greinir fætt Y. júlí 2010 og er viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. tímabilið frá janúar 2009 til desember 2009. Í greiðsluáætlun, dags. 3. janúar 2011, kemur fram að meðaltekjur kæranda á viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. voru alls X kr.

Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði í samræmi við 100% fæðingarorlof í febrúar 2011, alls X kr. Samkvæmt upplýsingum úr skrám ríkisskattstjóra, launaseðlum og upplýsingum um launatímabil frá vinnuveitanda fékk kærandi greidd laun frá vinnuveitanda sínum í febrúar 2011, alls X kr. Í mars 2011 fékk kærandi sömu greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði eða X kr., en X kr. frá vinnuveitanda. Í 13. gr. ffl. kemur fram að vinnuveitanda sé heimilt að bæta foreldri tekjumissi sem Fæðingarorlofssjóði sé ekki ætlað að bæta. Er þar átt við mismun á meðaltali heildarlauna foreldris og framlagi Fæðingarorlofssjóðs. Í gögnum málsins liggur sem fyrr segir fyrir staðfesting frá vinnuveitanda um að kærandi hafi ekki innt vinnu af hendi mánuðina febrúar og mars 2011 og ekki gengið bakvaktir, en vinnuveitandi hafi ætlað að bæta kæranda tekjutapið með launagreiðslum án vinnuframlags kæranda. Verða þessar greiðslur frá vinnuveitenda til kæranda fyrir febrúar og mars 2011 því taldar rúmast innan reglna ffl. að þessu leyti og skal ekki koma til endurgreiðslu vegna þeirra.

Í ágúst sama ár fékk kærandi greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í samræmi við 100% fæðingarorlof, alls X kr. Samkvæmt upplýsingum úr skrám ríkisskattstjóra, launaseðlum og upplýsingum um launatímabil frá vinnuveitanda fékk kærandi greidd laun frá vinnuveitanda sínum þann mánuð, alls X kr., þar af X kr. fyrir átta yfirvinnutíma. Þannig hvílir á kæranda endurgreiðsluskylda vegna ofgreidds fæðingarorlofs í réttu hlutfalli við greiðslu fyrir umrædda yfirvinnutíma.

Með vísan til framangreinds verða greiðslur vinnuveitanda fyrir umrædda mánuði taldar rúmast innan þeirra heimilda sem vinnuveitandi hefur til launagreiðslna í fæðingarorlofi skv. 13. gr. ffl., Öðru máli gegnir að hluta til um greiðslur fyrir ágústmánuð, en fyrir liggur að kærandi sinnti útkalli í þeim mánuði sem hann fékk sérstaka greiðslu fyrir að fjárhæð X kr., auk orlofs.

Í 2. mgr. 15. gr. a, sbr. 6. gr. laga nr. 90/2004, segir að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Í ákvæðinu segir jafnframt að fella skuli niður álagið færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Eins og mál þetta er vaxið hefur kærandi að mati úrskurðarnefndarinnar fært fullnægjandi rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til endurkröfu Fæðingarorlofssjóðs. Verður kæranda því ekki greitt að greiða álag á þá endurgreiðslu sem honum ber að inna af hendi vegna ágústmánaðar.

Með hliðsjón af framangreindu verður því hin kærða ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs felld úr gildi.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja A um greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði að viðbættu 15% álagi er felld úr gildi.

 

 

Jóna Björk Helgadóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum