Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 5/2007

Þann 15. júní 2007 er í samgönguráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður

í stjórnsýslumáli nr. 5/2007

A

gegn lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu

I. Aðild kærumáls og kröfur

Með stjórnsýslukæru, dags. 28. janúar 2007, kærði A (hér eftir nefndur kærandi) þá ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu (hér eftir nefndur kærði), að synja beiðni kæranda um endurveitingu ökuréttar, sbr. bréf kærða dags. 8. nóvember 2006.

Eftirfarandi skjöl hafa verið lögð fram í málinu:

Nr. 1. Bréf kærða til kæranda, dags. 8. nóvember 2006.

Nr. 2 Bréf kæranda til samgönguráðuneytins, dags. 28. janúar 2007.

Nr. 3. Umsögn B um kæranda, dags. 30. janúar 2006.

Nr. 4 Bréf samgönguráðuneytis til kæranda, dags. 16. febrúar 2007.

Nr. 5 Bréf samgönguráðuneytisins til kærða, dags. sama dag.

Nr. 6 Umsögn kærða til samgönguráðuneytis ásamt sakavottorði, dags. 14. mars 2007.

Nr. 7 Bréf samgönguráðuneytis til kæranda, dags. 14. maí 2007.

Kærandi óskar eftir því að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að sér verði veittur ökuréttur að nýju. Kærði krefst þess að ákvörðun sín verði staðfest.

II. Málsmeðferð

Ofangreind kæra barst samgönguráðuneytinu innan kærufrests, sbr. 1. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

III. Málsatvik

Kærandi var með dómi héraðsdóms Reykjavíkur, uppkveðnum þann 14. maí 2003 sviptur ökurétti vegna ölvunaraksturs ævilangt, sbr. framlagt sakavottorð.

Með bréfi kærða dags. 8. nóvember 2006 var ósk kæranda dags. 18. október 2006 um endurveitingu ökuréttar hafnað. Niðurstaðan var rökstudd með vísan til 1. mgr. 106. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum, en þar er kveðið svo á að hafi maður verið sviptur ökurétti ævilangt megi eigi veita ökurétt að nýju fyrr en svipting hefur staðið í fimm ár.

Með vísan í 3. mgr. 106. gr. umfl. kærði kærandi úrskurðinn til samgönguráðuneytisins þann 19. mars 2007 og krafðist þess að synjun kærða yrði úr gildi felld og fallist yrði á kröfu um endurveitingu ökuréttar.

Gagnaöflun telst lokið og er málið tekið til úrskurðar.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Vegna aðstæðna sinna leggur kærandi áherslu á mikilvægi þess að honum verði veittur ökuréttur að nýju. Hann hafi unnið bug á áfengisvandamáli sínu og hafi búið síðast liðin tvö ár á áfangaheimli SÁÁ. Hann hafi m.a. starfað að félags- og kynningarmálum fyrir SÁÁ og verið treyst fyrir að hafa umsjón með áfangaheimilinu. Nú hafi honum verið úthlutuð félagsleg íbúð í Breiðholti og þar gefist honum betra tækifæri til að sinna tveimur langveikum börnum sínum, sem hann deili forræði yfir með veikri móður þeirra. Svipting ökuréttar árið 2003 hafi haft tilfinnanleg áhrif á líf hans, barna og afkomumöguleika. Því fari hann fram á að niðurstöðu kærða verði hrundið og að honum verði veittur ökuréttur að nýju.

V. Málsástæður og rök kærða

Í bréfi sínu dags. 14. mars 2006 vísar kærði til 1. mgr. 106. gr. umfl. ákvörðun sinni til stuðnings, en þar er kveðið svo á að hafi maður verið sviptur ökurétti um lengri tíma en þrjú ár geti ríkislögreglustjóri heimilað að honum skuli veittur ökuréttur að nýju. Þegar um sé að ræða ævilanga sviptingu megi þó aðeins veita ökurétt að nýju þegar svipting hafi staðið í fimm ár, sbr. síðari málslið 1. mgr. 106. gr. umfl. Ekki sé að finna undanþáguheimild frá þessum tímamörkum í lögunum né í reglugerð nr. 706/2004 um endurveitingu ökuréttar. Kærði líti því svo að að ekki hafi verið heimilt að verða við beiðni kæranda.

Í ljósi ofangreinds telur kærði að ákvörðun sín skuli standa.

VI. Álit og niðurstaða ráðuneytisins

Ágreiningur í máli þessu lýtur fyrst og fremst að því hvort lagaskilyrði séu til endurveitingar ökuréttinda skv. 106. gr. umfl.

Eins og fram hefur komið er kveðið svo á í síðari málslið 1. gr. 106. gr. umfl. að veita megi þeim ökurétt að nýju sem sviptur hefur verið ökurétti ævilangt, hafi svipting hafi staðið í fimm ár. Einungis ef þetta hlutlæga skilyrði fyrir endurveitingu er uppfyllt kemur til skoðunar hvort atvik skv. 2. mgr. eigi við, en þar segir að endurveitingu skuli því aðeins heimila að sérstakar ástæður mæli með því.

Þar sem svipting ökuréttar kæranda hefur einungis staðið í rúmlega fjögur ár, þe. frá 14. maí 2003 kemur ekki til álita að taka afstöðu til þess hvort skilyrði 2. mgr. 106. gr. umfl. um heimild til endurveitingar ökuréttar þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, eigi við í máli þessu.

Í ljósi þess sem að ofan greinir verður ekki fallist á að skilyrði 106. gr. umfl. um endurveitingu ökuréttar eigi við í máli þessu.

Ú r s k u r ð a r o r ð

Hafnað er kröfu A um endurveitingu ökuréttar.

Ragnhildur Hjaltadóttir

Unnur Gunnarsdóttir




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum