Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 74/2014

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík


Miðvikudaginn 18. febrúar 2015 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 74/2014:

 

Kæra A

á ákvörðun

Hafnarfjarðarbæjar

  

og kveðinn upp svohljóðandi

 Ú R S K U R Ð U R:

 

A hefur með bréfi, dags. 17. desember 2014, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Hafnarfjarðarbæjar, dags. 10. desember 2014, á umsókn hennar um sérstakar húsaleigubætur.


I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 12. nóvember 2014, sótti kærandi um sérstakar húsaleigubætur hjá Hafnarfjarðarbæ. Umsókn kæranda var synjað með bréfi Fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðar, dags. 19. nóvember 2014, með þeim rökum að hún hafi ekki átt lögheimili í Hafnarfirði samfellt síðastliðna tólf mánuði líkt og kveðið væri á um í 15. gr. reglna um úthlutun á almennu leiguhúsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ og sérstakar húsaleigubætur. Kærandi áfrýjaði synjuninni til fjölskylduráðs Hafnarfjarðar með bréfi, dags. 26. nóvember 2014. Fjölskylduráð tók málið fyrir á fundi sínum þann 5. desember 2014 og samþykkti svohljóðandi bókun:

Fjölskylduráð Hafnarfjarðar staðfestir niðurstöðu Fjölskylduþjónustunnar um að synja beiðni umsækjanda um sérstakar húsaleigubætur með vísan til 15. gr. reglna um úthlutun á almennu leiguhúsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ og sérstakar húsaleigubætur, þar sem skilyrði um lögheimili í eitt ár í Hafnarfirði er ekki uppfyllt í tilviki umsækjanda.

Niðurstaða fjölskylduráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 10. desember 2014. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála með bréfi, dags. 17. desember 2014. Með bréfi, dags. 5. janúar 2015, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir greinargerð Hafnarfjarðarbæjar vegna kærunnar þar sem meðal annars kæmi fram rökstuðningur fyrir synjun um sérstakar húsaleigubætur. Enn fremur var óskað eftir öllum gögnum málsins. Greinargerð Hafnarfjarðarbæjar barst með bréfi, dags. 27. janúar 2015. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 30. janúar 2015, var bréf Hafnarfjarðarbæjar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

II. Málsástæður kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi flutt með dóttur sína til Hafnarfjarðar í september 2014 eftir skilnað við föður hennar. Hún hafi sótt um sérstakar húsaleigubætur en fengið synjun þar sem hún hafi ekki átt lögheimili í eitt ár í Hafnarfirði. Hún hafi gert ráð fyrir að fá sérstakar húsaleigubætur en það reynist henni nær ómögulegt að ná endum saman án þeirra.

 

III. Sjónarmið Hafnarfjarðarbæjar

Í greinargerð Hafnarfjarðarbæjar vegna kærunnar kemur fram að í gildi séu reglur um úthlutun á almennu leiguhúsnæði og sérstakar húsaleigubætur sem hafi verið settar árið 2005 en hafi tekið nokkrum breytingum í gegnum árin. Á árinu 2009 hafi bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkt að taka upp greiðslu sérstakra húsaleigubóta og reglunum hafi því verið breytt, sbr. 15. gr. reglnanna. Þar segi að heimilt sé að greiða sérstakar húsaleigubætur til leigjenda í Hafnarfirði sem búi við mjög erfiðar fjárhagslegar aðstæður. Þann 1. febrúar 2014 hafi verið bætt við skilyrði um að leigjendur skyldu hafa átt lögheimili í Hafnarfirði a.m.k. síðustu tólf mánuði samfellt til að öðlast rétt til greiðslu sérstakra húsaleigubóta en í reglunum sé ekki gert ráð fyrir að frá því sé vikið. Þar sem kærandi hafi aðeins búið í Hafnarfirði frá því í september 2014 hafi beiðni hennar um sérstakar húsaleigubætur verið synjað.

 

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 16. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum XVII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Fyrir nefndinni liggja reglur um úthlutun á almennu leiguhúsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ og sérstakar húsaleigubætur sem samþykktar voru í bæjarstjórn þann 3. maí 2005 með breytingum sem tóku gildi þann 1. febrúar 2014. Í máli þessu er ágreiningur um það hvort Hafnarfjarðarbæ hafi borið að samþykkja umsókn kæranda, dags. 12. nóvember 2014, um sérstakar húsaleigubætur.

Um sérstakar húsaleigubætur er fjallað í VI. kafla framangreindra reglna Hafnarfjarðarbæjar en þar segir í 15. gr.:

Heimilt er að greiða sérstakar húsaleigubætur til þeirra leigjenda í Hafnarfirði sem búa við mjög erfiðar fjárhagslegar aðstæður og hafa átt lögheimili í Hafnarfirði a.m.k. síðustu 12 mánuði samfellt. Tekjumörk miðast við að árstekjur nemi eigi hærri fjárhæð en 2.863.585.- kr. fyrir einstakling og 479.378.- kr. fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu. Viðmiðunarmörk hjóna/sambúðarfólks/einstaklinga í staðfestri samvist skulu vera 4.010.032.- kr.

Umsókn kæranda var synjað á þeirri forsendu að hún hafi ekki uppfyllt skilyrði 15. gr. reglnanna um lögheimili. Í framangreindum reglum Hafnarfjarðarbæjar er ekki kveðið á um undanþágu frá skilyrði 15. gr. um lögheimili. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að skilyrði 15. gr. reglnanna um lögheimili í Hafnarfirði síðustu tólf mánuði samfellt sé fortakslaust. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi átt lögheimili í Hafnarfirði frá september 2014 og uppfyllir því ekki skilyrði 15. gr. reglnanna um lögheimili.

Almennt ber sveitarfélögum að gæta jafnræðis og samræmis við ákvörðun um fjárhagsaðstoð. Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekkert hafi komið fram um að mat Hafnarfjarðarbæjar á aðstæðum kæranda hafi verið ómálefnalegt eða andstætt þeim reglum sem um það gilda. Með vísan til þessa ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar.

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar, dags. 10. desember 2014, um synjun á umsókn A um sérstakar húsaleigubætur er staðfest.

 

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður 

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum