Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 33/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 30. janúar 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 33/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU18120032

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 12. desember 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. nóvember 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar, í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 1. mgr. 42. gr. laganna og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 16. ágúst 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann sama dag kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að hann nyti þar alþjóðlegrar verndar. Í kjölfarið var grískum stjórnvöldum send beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda þar í landi. Í svari grískra yfirvalda, dags. 28. september 2018, kemur fram að kæranda hefði verið veitt réttarstaða flóttamanns 30. október 2017 og að hann væri með gilt dvalarleyfi í Grikklandi til 6. desember 2020. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 30. október 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 21. nóvember 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 27. nóvember 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 12. desember 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 21. desember 2018 ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnun kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-liður 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda vísar hann til endurrita af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun þar sem fram komi að hann glími við bakverki sem tengist pyndingum sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki. Þá hafi kærandi verið greindur með þunglyndi í Grikklandi. Hann hafi stöðugar áhyggjur, hugsi of mikið, sofi ekki neitt og vilji helst ekkert þurfa að hitta annað fólk. Kærandi greinir jafnframt frá slæmum aðstæðum í viðtökuríki. Hann hafi ekki haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu, enga aðstoð eða fræðslu fengið frá grískum yfirvöldum, ekki verið kleift að fara í skóla, enga launaða atvinnu fengið og verið þolandi fordóma. Þá hafi kæranda verið gert ókleift að sameinast eiginkonu sinni í Grikklandi. Kærandi áréttar við kærunefnd að hún hlutist til um að skoða vel og vandlega innihald þeirra fylgigagna sem fylgdu með greinargerðinni og leggur til að nefndin þýði innihald einnar skýrslu sérstaklega.

Kærandi telur að í ljósi líkamlegra og andlegra kvilla hans auk þeirra pyndinga sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki sé hann einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi mótmæli niðurstöðum Útlendingastofnunar um hið gagnstæða. Ekkert liggi fyrir um að stofnunin hafi látið þýða gögn þau sem kærandi hafi lagt fram um andlega heilsu hans og stofnunin því ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni. Kærandi bendir á skyldu stjórnvalda skv. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga til þess að tryggja að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort kærandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Þá hafi löggjafinn mælt fyrir um aðkomu sálfræðinga eða geðlækna sé uppi grunur um andleg veikindi. Þá verði mat sérfræðinganna að vera nógu vandað til þess að ólærðir geti greint ástand og getu umsækjenda út frá þeim. Á grundvelli rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins sé stjórnvöldum skylt að leiða hið sanna og rétta í ljós. Kærandi fari fram á að framkvæmt verði formlegt mat sálfræðings svo að ástand hans og geta liggi fyrir og hann metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð kæranda gerir hann almenna grein fyrir aðstæðum, aðbúnaði og réttarstöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og vísar í því sambandi til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka. Þar komi m.a. fram að vegna landfræðilegrar legu hafi Grikkland þurft að bera þungann af straumi flóttafólks frá Afríku og Mið-Austurlöndum síðastliðin ár, þrátt fyrir að vera það Evrópuríki sem hafi ef til vill verið einna síst í stakk búið til að taka á móti slíkum fjölda fólks vegna efnahags- og stjórnmálakreppu sem hafi haft mikil áhrif á landið. Í greinargerð sinni vísar kærandi m.a. til skýrslu mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins frá 6. nóvember 2018. Þar komi fram að aðbúnaður umsækjenda um alþjóðlega vernd í flóttamannabúðum sé mjög slæmur. Plássleysi sé mikið og skortur á nauðsynlegri heilbrigðis- og félagslegri þjónustu. Þá sé aðgengi að atvinnu í Grikklandi takmarkað og mikið um fordóma í garð flóttamanna. Kærandi bendir á að íslensk stjórnvöld hafi ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands síðan í október 2010 og að heimildir beri með sér að staða einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi sé síður en svo betri en staða umsækjenda. Þá kveður kærandi að einstaklingar með alþjóðlega vernd, sem sendir séu aftur til Grikklands, eigi á hættu að dveljast á götunni án þjónustu, matar og drykkja.

Kröfu sína um efnismeðferð byggir kærandi í fyrsta lagi á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann njóti verndar 1. mgr. 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi bendi á að íslenska ríkið sé bundið af grundvallarreglunni um non-refoulement þar sem lagt sé bann við því að senda einstakling þangað sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu. Með setningu 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga hafi verið áréttaður sá vilji löggjafans að við möguleg brot gegn grundvallarreglunni skuli taka umsóknir um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Kærandi telji að túlkun íslenskra stjórnvalda á dómum Mannréttindadómstóls Evrópu sé röng og að með núverandi framkvæmd firri þau sig ábyrgð skv. framangreindri grundvallarreglu langt umfram efni. Kærandi gerir athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar í máli hans og telur að rökstuðningur stofnunarinnar um lagalegan rétt flóttafólks í Grikklandi sé ófullnægjandi enda séu raunverulegar aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd þar í landi verri en stofnunin haldi fram. Þá bendir kærandi á nánar tilgreinda dóma Mannréttindadómstólsins, þ.m.t. Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, máli sínu til stuðnings og telji að við endursendingu hans til Grikklands muni íslensk stjórnvöld gerast brotleg við grundvallarregluna um non-refoulement. Telur kærandi að við endursendingu til Grikklands muni lífsgæði hans ekki aðeins versna verulega heldur muni lífskjör hans ekki ná því lágmarki sem 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu kveði á um. Kærandi kveður að þörf hans fyrir mannúðarvernd hér á landi sé sérstaklega brýn og að fyrir hendi séu sannfærandi mannúðarástæður. Telji kærandi því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kröfu sína um efnismeðferð byggir kærandi í öðru lagi á því að uppi séu sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísar í því sambandi til lagaáskilnaðarreglu 2. málsl. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 sem setji stjórnvöldum afar þröngar skorður við setningu stjórnvaldsfyrirmæla vegna meðferðar umsókna um alþjóðlega vernd. Kærandi telji að reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, brjóti gegn lögmætisreglunni. Þar séu að finna skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem ekki hafi stoð í settum lögum og önnur sem beinlínis gangi gegn ákvæðum laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til lögskýringargagna máli sínu til stuðnings og kveður að stjórnvöld hér á landi hafi við túlkun sína á hugtakinu sérstakar ástæður horft í of ríkum mæli til mannréttindasáttmála Evrópu og notað dómafordæmi alþjóðadómstóla til að skerða réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í ljósi markmiðs laga um útlendinga, sbr. 4. mgr. 2. gr. laganna, um að tryggja beri mannúðlega meðferð stjórnvalda í málefnum útlendinga hér á landi, hafni kærandi því að við mat á sérstökum ástæðum hafi sjónarmið um skilvirkni umsóknarferilsins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins nokkurt vægi. Þá bendi kærandi á að hvergi í lögskýringargögnum sé að finna kröfur um hátt alvarleikastig erfiðleika, alvarlega mismunun, verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu eða að meðferð sjúkdóms sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Þessar kröfur hafi enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni. Kærandi vísar þá til úrskurðar kærunefndar nr. 393/2018 þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að taka umsókn fjölskyldu með alþjóðlega vernd í Grikklandi, sem metin hafði verið í sérstaklega viðkvæmri stöðu, til efnismeðferðar m.a. á þeim grundvelli að það geti verið vandkvæðum bundið að sækja heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og telur að aðstæður hans svipi til aðstæðna fjölskyldunnar. Kærandi telur að þær alvarlegu pyndingar sem hann hafi þurft að þola gefi til kynna að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu og að nauðsynlegt sé að greina afleiðingar þeirra á heilsu hans. Þá muni hann eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna mismununar og fyrri reynslu og því sé íslenskum stjórnvöldum skylt að taka umsókn hans til efnislegrar meðferðar hér á landi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt réttarstaða flóttamanns í Grikklandi þann 30. október 2017 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 6. desember 2020. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] barnlaus karlmaður sem kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun vera kvæntur. Í gögnum um heilsufar kæranda kemur m.a. fram að hann eigi í erfiðleikum með svefn og að honum hafi verið ávísað lyfjum vegna þess. Kærandi kveður að hann sé þolandi pyndinga og þá kemur fram í gögnum um heilsufar kæranda að hann sé haldinn neikvæðum hugsunum og hafi verið skráður með greininguna [...]. Samkvæmt gögnum málsins fái kærandi þá verki í baki og fæti og hafi verið ávísað lyfjum vegna þess.

Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. framlagðar komunótur, beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé svo alvarlegt að hann teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018);
  • 2017 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017) og
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016).

Af framangreindum gögnum má sjá að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Jafnframt eru til staðar frjáls félagasamtök sem aðstoða þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi við að kynna sér réttindi sín.

Þá eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Af framangreindum skýrslum má ráða að grísk stjórnvöld hafi verið gagnrýnd fyrir skorður á möguleikum einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd til fjölskyldusameiningar í Grikklandi. Kemur þar m.a. fram að samkvæmt grískum lögum eiga einstaklingar sem hlotið hafa viðbótarvernd í Grikklandi ekki rétt á fjölskyldusameiningu og þá eru ýmsar hömlur fyrir þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd, m.a. vegna langs afgreiðslutíma umsókna, kröfu stjórnvalda um framlagningu gagna og erfiðleika við útgáfu vegabréfsáritana fyrir fjölskyldumeðlimi þegar umsókn hefur verið samþykkt.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að aðbúnaður í fangelsum og varðhaldsmiðstöðvum sé víða ekki fullnægjandi. Klefar séu yfirfullir, óþrifnaður sé mikill og aðgengi að heilbrigðisþjónustu takmarkað. Einnig kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu. Kærunefnd tekur ekki undir þá málsástæðu kæranda að sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu hans til Grikklands.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu kæranda að lífskjör hans í Grikklandi nái framangreindu lágmarks alvarleikastigi og að flutningur hans þangað myndi fela í sér brot á grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Hefur kærandi m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður eigi við í máli hans þar sem hann verði fyrir mismunun í Grikklandi og staða hans þar sé verulega síðri en almennings. Þá sé hann í viðkvæmri stöðu og skortur sé á viðhlítandi heilbrigðisþjónustu, og annarri félagslegri þjónustu, honum til handa í Grikklandi. Hann eigi jafnframt ekki rétt á fjölskyldusameiningu í Grikklandi.

Þrátt fyrir ýmsar aðgangshindranir hefur kærandi heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og á rétt á félagslegri aðstoð til jafns við gríska ríkisborgara. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Vegna athugasemdar kæranda varðandi möguleika hans til fjölskyldusameiningar tekur kærunefnd fram að samkvæmt gögnum málsins hafa einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns möguleika á fjölskyldusameiningu í Grikklandi. Aftur á móti eru takmarkanir á heimildum til fjölskyldusameiningar fyrir einstaklinga sem njóta viðbótarverndar en slíkar takmarkanir eru í samræmi við regluverk Evrópusambandsins, þ.m.t. tilskipun nr. 2003/86/EC frá 22. september 2003 um fjölskyldusameiningu. Að mati kærunefndar verður ekki litið svo á að reglur um fjölskyldusameiningu í Grikklandi séu þess eðlis að litið verði svo á að kærandi eigi erfitt uppdráttar af þeim sökum. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Af framburði kæranda og framlögðum gögnum frá Grikklandi, svo og gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður þar, verður ráðið að kærandi eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegum lyfjum. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Því telur kærunefnd gögn málsins ekki benda til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 393/2018 frá 27. september 2018. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í úrskurði nr. 393/2018 í ljósi einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda, einkum þar sem um var að ræða fjölskyldu með börn auk þess sem konan var barnshafandi.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 30. október 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 16. ágúst 2018.

Reglur stjórnsýsluréttar

Í greinargerð kæranda er gerð athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Er m.a. gerð athugasemd við það að Útlendingastofnun hafi ekki látið þýða tiltekin gögn sem kærandi hafi lagt fram. Í máli kæranda liggur fyrir að honum hafi verið leiðbeint, í viðtölum hjá stofnuninni, að leggja fram læknisfræðileg gögn sem gætu haft þýðingu við ákvörðun í máli hans. Í því sambandi bendir kærunefnd á að kærandi hafi hitt sérfræðinga Göngudeildar sóttvarna auk þess sem hann hafi lýst andlegri líðan sinni í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Kærunefnd áréttar þá að í málinu liggja m.a. fyrir komunótur Göngudeildar sóttvarna, dags. 6. september 2018 til 12. desember 2018, þar sem fram komi m.a. að kærandi eigi erfitt með svefn […]. Er það mat kærunefndar að framangreind heilsufarsgögn gefi með nægjanlega skýrum hætti til kynna stöðu kæranda og telur kærunefndin því ekki að þörf sé á að hún hlutist til um þýðingu á efni framangreindrar skýrslu. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars 2018, voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Af greinargerð kæranda verður ráðið að hann telji ákvæði reglugerðar nr. 540/2017, sbr. reglugerð nr. 276/2018, ekki eiga sér viðhlítandi stoð í lögum og ganga gegn lögmætisreglunni.

Tilvitnuð ákvæði reglugerðar nr. 276/2018 eru sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem segir að ráðherra hafi heimild til að setja reglugerð um framkvæmd 36. gr. laganna. Löggjafinn hefur því framselt ráðherra vald til að útfæra framangreind ákvæði nánar og ljóst að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg eins og að framan hefur verið lýst. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þessar athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 15. ágúst 2018. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 16. ágúst 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Árni Helgason                                                       Erna Kristín Blöndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum