Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 52/2014

Mál nr. 52/2014

Fimmtudaginn 29. september 2016

A

gegn

umboðsmanni skuldara

 

Úrskurður

 

Mál þetta úrskurða Sigríður Ingvarsdóttir formaður, Eggert Óskarsson og  Þórhildur Líndal.

Þann 4. maí 2014 barst kærunefnd greiðsluaðlögunarmála kæra A. Kærð var ákvörðun umboðsmanns skuldara sem tilkynnt var með bréfi 15. apríl 2014 þar sem greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda voru felldar niður.

Með bréfi 7. maí 2014 óskaði kærunefnd greiðsluaðlögunarmála eftir greinargerð umboðsmanns skuldara sem barst með bréfi 24. júní 2014.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi 27. júní 2014 og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Ítrekun var send 14. janúar 2015. Engar athugasemdir bárust.

I. Málsatvik

Kærandi er fædd X og býr í eigin fasteign að B. Kærandi á 50% hlut í fasteigninni á móti syni sínum og eiginkonu hans. Fasteignin skiptist í tvær íbúðir, annars vegar X fermetra og hins vegar X fermetra að stærð sem kærandi býr í. Hún starfar sem [...] í 50% starfi og samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hefur hún einnig fengið greiðslur frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins vegna veikinda.

Heildarskuldir kæranda samkvæmt skuldayfirliti umboðsmanns skuldara frá 7. maí 2012 eru 30.422.875 krónur. Til helstu skuldbindinga var stofnað árið 2005 vegna fasteignakaupa.

Að sögn kæranda má rekja fjárhagserfiðleika hennar til atvinnuleysis sem varði frá X 2008 til X 2010. Síðan þá hafi hún verið í 50% starfi sem hafi ekki nægt til að leysa úr greiðsluvanda hennar.

Kærandi sótti um greiðsluaðlögun 30. júní 2011. Með ákvörðun umboðsmanns skuldara 7. maí 2012 var kæranda veitt heimild til greiðsluaðlögunar og umsjónarmaður skipaður með greiðsluaðlögunarumleitunum hennar.

Með bréfi umsjónarmanns til umboðsmanns skuldara 13. febrúar 2013 var lagt til að heimild kæranda til greiðsluaðlögunar yrði felld niður þar sem kærandi hefði ekki lagt til hliðar nægilega fjármuni á því tímabili sem frestun greiðslna, svokallað greiðsluskjól, hafi staðið yfir eða allt frá 30. júní 2011. Í bréfinu kom fram að kærandi hefði komið til fundar við umsjónarmann 9. júlí 2012 þar sem hún kvaðst hafa lagt fyrir á milli 700.000 krónur og 800.000 krónur. Umsjónarmaður hafi brýnt fyrir kæranda að halda áfram að leggja til hliðar fjármuni á tímabili greiðsluskjóls. Samkvæmt útreikningum umsjónarmanns hafi mánaðarleg greiðslugeta kæranda verið 116.540 krónur en kærandi hafi átt að leggja alls 1.981.180 krónur  fyrir á tímabili greiðsluskjóls.

Í október 2012 hafi umsjónarmaður óskað eftir nýjum upplýsingum um sparnað kæranda, þar á meðal eftir skýringum og gögnum um hvers vegna hún hefði ekki lagt meira til hliðar. Kærandi kvað sparnað enn vera 800.000 krónur þar sem hún hefði þurft að leggja út fyrir kostnaði vegna viðhalds fasteignar, viðgerðar á bifreið og tannviðgerðar. Umsjónarmaður hafi í kjölfarið tilkynnt til umboðsmanns skuldara með bréfi 13. september 2013 að fram hefðu komið upplýsingar sem ætla mætti að hindruðu að greiðsluaðlögun væri heimil á grundvelli lge.

Umboðsmaður skuldara sendi kæranda bréf 25. mars 2014 þar sem henni var gefinn kostur á að láta álit sitt í ljós innan viku og leggja fram frekari gögn máli sínu til stuðnings áður en umboðsmaður skuldara tæki ákvörðun um hvort fella skyldi niður heimild hennar til greiðsluaðlögunar. Kærandi hafi svarað með bréfi 3. apríl 2014 og kvaðst hafa greitt 254.000 krónur vegna heyrnartækis og annars lækniskostnaðar, 390.000 krónur vegna tannviðgerða, 310.500 krónur vegna trygginga og 201.000 krónur í fráveitugjöld.

Með ákvörðun 15. apríl 2014 felldi umboðsmaður skuldara greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda niður með vísan til 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi kærir ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður heimild til greiðsluaðlögunar. Skilja verður málatilbúnað hennar svo að þess sé krafist að ákvörðun umboðsmanns skuldara verði felld úr gildi.

Kærandi vísar til þess að umboðsmaður skuldara hafi reiknað það út að hún hefði átt að leggja 4.530.565 krónur til hliðar á tímabili greiðsluaðlögunar en hvergi í hinni kærðu ákvörðun sé að finna rökstuðning fyrir þessari fjárhæð. Einungis sé sagt að skuldari skuli leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum sínum það fé sem sé umfram það sem hann þurfi til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða. Hvergi sé fjallað um það í ákvörðun umboðsmanns skuldara hvernig kærandi hefði átt að leggja þessa fjárhæð til hliðar og hvaða umframfé hún hafi haft til ráðstöfunar.

Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga um greiðsluaðlögun einstaklinga skuli umsjónarmaður notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setji. Í hinum kærða úrskurði er því haldið fram af hálfu umboðsmanns skuldara að framfærsluviðmið þessi séu byggð á hlutlægum viðmiðum um almenna framfærslu með tilliti til fjölskyldustærðar og stýrist af vísitölu. Að auki skuli lagt til grundvallar að öllum umsækjendum sé jafnframt veitt nokkurt svigrúm til að mæta óvæntum útgjöldum

Kærandi telur umboðsmann skuldara ekki hafa rökstutt eða skýrt hvers vegna embættið notist við mun lægri framfærsluviðmið en velferðarráðuneytið og Íbúðalánasjóður eða hver hin hlutlægu viðmið séu. Réttur kæranda til upplýsinga samkvæmt stjórnsýslulögum sé því fyrir borð borinn en hún hafi lagt til hliðar eftir bestu getu og í samræmi við viðmið velferðarráðuneytisins.

Kærandi fer enn fremur fram á að fá greiddan málskostnað að mati nefndarinnar.  

III. Sjónarmið umboðsmanns skuldara

Umboðsmaður skuldara vísar til þess að komi fram upplýsingar, sem ætla megi að komi í veg fyrir að greiðsluaðlögun sé heimil á grundvelli lge., skuli umsjónarmaður tilkynna það til umboðsmanns skuldara sem í kjölfarið taki afstöðu til málsins með rökstuddri ákvörðun, sbr. 1. mgr. 15. gr. lge. Skuldara skuli gefið tækifæri til að láta álit sitt í ljós áður en slík ákvörðun sé tekin.

Í 12. gr. lge. séu tilgreindar skyldur skuldara meðan hann nýtur greiðsluskjóls. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. skuli skuldari leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum sínum það fé sem sé umfram það sem hann þurfi til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða.

Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. lge. skuli umsjónarmaður notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setji. Sé umsjónarmanni almennt óheimilt að miða við hærri framfærslukostnað en þann sem reiknaður hafi verið fyrir kærendur með tilliti til fjölskylduaðstæðna. Framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara byggist á hlutlægum viðmiðum um almennan framfærslukostnað með tilliti til fjölskyldustærðar og taki mið af vísitölu. Að auki skuli lagt til grundvallar við mat á því hvort skuldarar hafi sinnt skyldum sínum í greiðsluskjóli að þeim sé að jafnaði játað nokkurt svigrúm til að mæta óvæntum útgjöldum í mánuði hverjum. Þá sé almennt tekið tillit til annarra útgjalda sem fella megi undir almennan heimilisrekstur samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Greiðsluskjól kæranda hafi staðið yfir í 30 mánuði en miðað sé við tímabilið frá 1. júlí 2011 til 31. desember 2013. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi haft neðangreindar tekjur og útgjöld á tímabilinu í krónum:

Nettó launatekjur 1. júlí 2011 til 31. desember 2013 8.984.399
Endurgreiðsla ofgreiddrar staðgreiðslu, vaxtabætur og sérstök vaxtaniðurgreiðsla 726.500
Samtals 9.710.899
Mánaðarlegar meðaltekjur 323.697
Framfærslukostnaður á mánuði* 172.782
Greiðslugeta að meðaltali á mánuði 150.915
Samtals greiðslugeta í 30 mánuði 4.530.565

* Miðað er við framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara fyrir einstakling í mars 2014.

Kærandi kveðst hafa greitt bæði lækniskostnað og tannlæknakostnað á tímabilinu, samtals að fjárhæð 644.000 krónur, auk þess að hafa greitt tryggingariðgjald og fráveitugjald. Umboðsmaður skuldara hafi ekki tekið tillit til læknis- og tannlækniskostnaðar kæranda þar sem hin óvæntu útgjöld hafi ekki verið studd gögnum. Tryggingariðgjald og fráveitugjald falli aftur á móti innan framfærsluviðmiða embættisins og sé því búið að reikna með þeim.  

Umboðsmanni skuldara hafi ekki borist haldbærar skýringar á því hvers vegna kærandi hafi ekki lagt til hliðar fé í samræmi við skyldur sínar og verði því að telja að kærandi hafi brotið gegn þeim samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. með því að leggja ekki til hliðar þá fjármuni sem féllu til umfram framfærslukostnað á tímabili greiðsluskjóls.

Að framangreindu virtu og með hliðsjón af gögnum málsins hafi ekki verið hjá því komist að fella niður heimild kæranda til greiðsluaðlögunar samkvæmt 15. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge.

Með vísan til forsendna hinnar kærðu ákvörðunar fer umboðsmaður skuldara fram á að hún verði staðfest.

IV. Niðurstaða

Ákvörðun umboðsmanns skuldara byggist á 15. gr. með vísan til a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge.,  þar sem fjallað er um skyldur skuldara á meðan leitað er greiðsluaðlögunar.

Á meðan leitað er greiðsluaðlögunar skal skuldari samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum það fé sem er umfram það sem hann þarf til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða. Í 2. mgr. 12. gr. kemur fram að telji umsjónarmaður að skuldari hafi brugðist skyldum sínum, skuli hann óska þess við umboðsmann skuldara að greiðsluaðlögunarumleitanir verði felldar niður samkvæmt 15. gr. lge. Í 1. mgr. 15. gr. lge. segir að komi fram upplýsingar, sem ætla megi að hindri að greiðsluaðlögun sé heimil á grundvelli lge., skuli umsjónarmaður tilkynna um slíkt til umboðsmanns skuldara sem í kjölfarið taki afstöðu til málsins með rökstuddri ákvörðun.

Kærandi telur að Embætti umboðsmanns skuldara hafi hvorki rökstutt hvers vegna embættið notist við lægri framfærsluviðmið en velferðarráðuneytið og Íbúðalánasjóður, né gert henni nægilega grein fyrir því hversu mikið og hvernig hún skyldi leggja til hliðar.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 skal stjórnvald veita þeim sem til þess leita nauðsynlega aðstoð og leiðbeiningar varðandi þau mál er snerta starfssvið þess. Af reglunni leiðir að stjórnvaldi ber að leiðbeina aðilum að eigin frumkvæði. Engar formkröfur eru fyrir hendi varðandi leiðbeiningarskylduna. Þannig geta upplýsingar verið bæði skriflegar og munnlegar, almennar eða sérstakar, komið fram í bæklingum eða á vefsíðum.

Með gildistöku laga nr. 128/2010 frá 18. október 2010 tók gildi tímabundin frestun greiðslna samkvæmt 11. gr. lge. hjá þeim einstaklingum sem sóttu um heimild til greiðsluaðlögunar fram til 1. júlí 2011. Þegar umsókn var lögð fram afhenti umboðsmaður skuldara þessum umsækjendum sérstakt upplýsingaskjal þar sem greint var frá skyldum umsækjenda í greiðsluskjóli í samræmi við 12. gr. lge. Þar á meðal var greint frá því að umsækjendum bæri að leggja fyrir fé sem væri umfram það sem þyrfti til reksturs heimilis, sbr. a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. Þá var greint frá því að umsækjendur mættu greiða það sem tengdist daglegum rekstri heimilis og nota skyldi neysluviðmið umboðsmanns skuldara til viðmiðunar um hvað teldist eðlilegur kostnaður í því sambandi. Þá var sérstaklega vakin athygli á því að uppfyllti umsækjandi ekki skyldur sínar meðan á frestun greiðsla stæði gæti það leitt til þess að samningur um greiðsluaðlögun kæmist ekki á.

Þá sendi umboðsmaður skuldara umsækjendum sem voru í greiðsluskjóli bréf 27. nóvember 2012 þar sem meðal annars var minnt á skyldur umsækjenda þess efnis að leggja til hliðar fjármuni sem væru umfram framfærslu samkvæmt 12. gr. lge.

Á vefsíðu umboðsmanns skuldara á þeim tíma er kærendur sóttu um heimild til greiðsluaðlögunar voru upplýsingar um skyldur umsækjenda við greiðsluaðlögunarumleitanir. Eftirfarandi texta var að finna á vefsíðunni undir liðnum greiðsluaðlögun einstaklinga:

Þegar umsókn um greiðsluaðlögun er móttekin af umboðsmanni skuldara hefst frestun greiðslna. Með frestuninni eru lagðar ákveðnar skyldur á herðar kröfuhöfum og umsækjendum. Á fresttíma má umsækjandi einungis greiða það sem viðkemur rekstri heimilsins og framfærslu. Framfærslan innifelur mat, hreinlætisvörur, tómstundir, fatnað, lækniskostnað skv. neysluviðmiði umboðsmanns og fastra liða í framfærslu s.s. síma, hita, rafmagn, dagvistun og fleira. Umsækjandi þarf einnig að leggja til hliðar allar afgangstekjur sínar. Á fresttíma er kröfuhöfum óheimilt að taka við greiðslum vegna skulda hvort sem umsækjandi er í skilum eða vanskilum. Þetta á við um greiðslur af veðlánum og öðrum lánum s.s. bílakaupalánum, yfirdráttarlánum og fleira. Þá er kröfuhöfum einnig óheimilt að krefjast nauðungarsölu á eigum umsækjenda og hjá þeim sem kynnu að vera í ábyrgðum fyrir umsækjenda. Frestun greiðslna lýkur með samningi, afturköllun eða synjun umsóknar.“

Kærunefndin telur að kæranda hafi mátt vera ljóst að henni bar að haga framfærslukostnaði sínum eftir sérstökum framfærsluviðmiðum umboðsmanns skuldara þegar hún sótti um greiðsluaðlögun. Í því sambandi var sérstaklega tilgreint í umsóknareyðublaði um greiðsluaðlögun við hvaða fjárhæðir framfærsla hennar skyldi miðast og að frekari upplýsingar um framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara væri að finna á vefsíðu embættisins. Í umsókninni segir: „Þú finnur framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara á heimasíðunni www.ums.is

Í ákvörðun umboðsmanns skuldara 7. maí 2012 þar sem kæranda var veitt heimild til greiðsluaðlögunar var henni einnig bent á skyldur sínar í samræmi við 1. mgr. 12. gr. lge. auk þess sem skriflegar leiðbeiningar þar um fylgdu með.

Kærunefndin telur að Embætti umboðsmanns skuldara hafi samkvæmt framansögðu leiðbeint kæranda þegar hún sótti um heimild til að leita greiðsluaðlögunar með fullnægjandi hætti með því að veita upplýsingar við móttöku umsóknar, með skriflegum leiðbeiningum þegar heimild til greiðsluaðlögunar var veitt, í tilkynningum sem sendar voru kæranda á tímabili greiðsluskjóls, á vefsíðu embættisins og með upplýsingum á umsóknareyðublaði um greiðsluaðlögun. Þar var að finna útskýringar á afdráttarlausu lagaákvæði a-liðar 1. mgr. 12. gr. lge. um skyldur skuldara við greiðsluaðlögun þar sem segir að á meðan leitað er greiðsluaðlögunar skuli skuldari leggja til hliðar af launum og öðrum tekjum sínum það fé sem sé umfram það sem hann þurfi til að sjá sér og fjölskyldu sinni farborða. Eins og fram kemur í leiðbeiningunum er þar enn fremur útskýrt að skylda til að leggja fé til hliðar hefjist um leið og umsókn um greiðsluaðlögun er móttekin en þá hefst frestun greiðslna. Að þessu virtu er það álit kærunefndarinnar að umboðsmaður skuldara hafi framfylgt leiðbeiningarskyldu stjórnsýslulaga við meðferð málsins og að réttur kæranda til upplýsinga samkvæmt stjórnsýslulögum hafi verið virtur. Kæranda bar því að virða skyldur sínar samkvæmt a-lið 1. mgr. 12. gr. lge. frá þeim tíma er hún sótti um heimild til greiðsluaðlögunar 30. júní 2011.

Við mat á því hvaða fjárhæð kæranda bar að leggja til hliðar af launum sínum og öðrum tekjum í greiðsluskjóli skal samkvæmt 4. mgr. 16. gr. lge. notast við framfærsluviðmið sem umboðsmaður skuldara setur en í lge. er ekki heimild til að miða við hærri framfærslukostnað en þann sem umboðsmaður skuldara reiknar út. Í c-lið 2. mgr. 1. gr. laga um umboðsmann skuldara nr. 100/2010 kemur fram að eitt af hlutverkum umboðsmannsins sé að veita atbeina til tilrauna til samninga um greiðsluaðlögun. Í nefndaráliti félags- og tryggingamálanefndar Alþingis frá 15. júní 2010 segir um frumvarp til laga um umboðsmann skuldara, er síðar varð að lögum nr. 100/2010: „Nefndin ræddi ítarlega hlutverk umboðsmanns skuldara og telur mikilvægt að stofnuninni verði falið að útbúa lágmarksframfærsluviðmið og uppfæra þau reglulega. Nauðsynlegt er að í frumvarpi til greiðsluaðlögunar komi fram raunhæf tillaga að greiðslum þar sem gert er ráð fyrir framfærsluþörf einstaklingsins og fjölskyldu hans. Jafnframt er mikilvægt að samræmis sé gætt að þessu leyti.“ Samkvæmt þessu gerði nefndin þá breytingartillögu á fyrirliggjandi frumvarpi til laga um umboðsmann skuldara að inn í 2. mgr. 1. gr. var bætt við staflið d þar sem fram kemur að eitt hlutverk Embættis umboðsmanns skuldara sé að útbúa framfærsluviðmið og uppfæra það reglulega.

Í 12. gr. lge. er gerð grein fyrir því hvernig skuldari skuli haga fjármálum sínum á meðan leitað er greiðsluaðlögunar, þar á meðal að leggja fyrir á tímabilinu það fé sem er umfram framfærslukostnað. Eins og kærandi bendir á veitir þetta tiltekna ákvæði út af fyrir sig ekki nákvæmar leiðbeiningar um hvernig framfærslukostnaður skuli reiknaður. Hér verður að hafa í huga að þær aðstæður sem 12. gr. lge. varðar eru þær að skuldarinn hefur sjálfur óskað greiðsluaðlögunarsamnings við kröfuhafa en slíkir samningar fela að jafnaði í sér niðurfellingu krafna að samningstíma liðnum. Samningsferlið leggur þær skyldur á herðar skuldara að hann greiði eins mikið og hann getur af kröfunum. Meðal annars í því skyni að gefa skuldara svigrúm til að leggja fyrir á meðan samningaumleitanir eru undirbúnar og yfirstandandi, er lagt bann við því að kröfuhafar taki á móti greiðslum frá skuldara eða innheimti kröfur á hendur honum, sbr. 3. gr. lge. Til að það takist er ljóst að skuldari verður að stilla framfærslukostnaði sínum í hóf á þessu tímabili. Það er einnig mikilvægt að bæði skuldarar og kröfuhafar njóti jafnræðis að þessu leyti og því verður framfærslukostnaður skuldara að styðjast við fyrirfram ákveðið almennt viðmið. Í ljósi laga um umboðsmann skuldara nr. 100/2010, lögskýringargagna, lge. og þess sem hér hefur verið rakið liggur fyrir að ekki er öðru viðmiði til að dreifa en framfærsluviðmiði umboðsmanns skuldara þegar reiknuð er út sú fjárhæð sem skuldara ber að leggja til hliðar samkvæmt a-lið 12. gr. lge..

Umboðsmaður skuldara telur að kærandi hafi átt að leggja til hliðar 4.530.565 krónur á tímabili greiðsluskjóls.

Samkvæmt fyrirliggjandi skattframtölum og launaupplýsingum Ríkisskattstjóra, sem eru meðal gagna málsins, hafa mánaðartekjur kæranda í krónum verið eftirfarandi í greiðsluskjóli á neðangreindu tímabili:

Tímabilið 1. júlí 2011 til 31. desember 2011: 6 mánuðir
Nettótekjur 1.694.791
Nettó mánaðartekjur að meðaltali 282.465


Tímabilið 1. janúar 2012 til 31. desember 2012: 12 mánuðir
Nettótekjur 3.558.139
Nettó mánaðartekjur að meðaltali 296.512
Tímabilið 1. janúar 2013 til 31. desember 2013: 12 mánuðir
Nettótekjur 3.731.469
Nettó mánaðartekjur að meðaltali               310.956
   
Tímabilið 1. janúar 2014 til 31. mars 2014: Þrír mánuðir
Nettótekjur 924.365
Nettó mánaðartekjur að meðaltali 308.122
   
Nettótekjur alls í greiðsluskjóli           9.908.764
Nettó mánaðartekjur alls að meðaltali í greiðsluskjóli 300.266


Sé miðað við framfærslukostnað samkvæmt ákvörðun umboðsmanns skuldara, tekjur kæranda, vaxtabætur og sérstaka vaxtaniðurgreiðslu, var greiðslugeta kæranda þessi í greiðsluskjóli í krónum:

Tímabilið 1. júlí 2011 til 31. mars 2014: 33 mánuðir
Nettótekjur alls í greiðsluskjóli 9.908.764
Vaxtabætur og vaxtaniðurgreiðsla 698.251
Alls til ráðstöfunar í greiðsluskjóli 10.607.015
Mánaðarlegar ráðstöfunartekjur að meðaltali í greiðsluskjóli 321.425
Mánaðarleg útgjöld samkvæmt ákvörðun umboðsmanns skuldara* 172.782
Greiðslugeta kæranda á mánuði 148.643
Alls sparnaður í 33 mánuði í greiðsluskjóli x 139.367 4.905.209

*Útgjöld miðað við framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara í mars 2014.

Kærandi kveðst hafa  þurft að greiða óvænt útgjöld á tímabili greiðsluskjóls vegna kaupa á heyrnartæki og vegna lækna- og tannlæknakostnaðar, samtals að fjárhæð 644.000 krónur, auk þess að hafa greitt tryggingar- og fráveitugjöld að fjárhæð 511.500 krónur. Kærandi hefur ekki lagt fram reikninga vegna þessara útgjalda og er því ekki unnt að draga framangreindan kostnað frá þeirri fjárhæð sem kærandi átti að spara, sbr. ofangreinda útreikninga. Þá hefur þegar verið reiknað með kostnaði vegna trygginga og fráveitugjalda í áætluðum mánaðarlegum útgjöldum. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem sýna að umrædd gjöld hafi verið hærri en reiknað er með í ákvörðun umboðsmanns skuldara og verður því að leggja áætlun embættisins til grundvallar.

Samkvæmt ofangreindu hefði kærandi átt að geta lagt til hliðar 4.905.209 krónur á tímabili greiðsluskjóls. Samkvæmt því sem fram kemur af hálfu umboðsmanns skuldara hefur kærandi lagt fyrir 800.000 krónur. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn um sparnað fyrir kærunefndina. Ekki er því unnt að líta svo á að kærandi hafi lagt fyrir á tímabili greiðsluskjóls.

Kröfu um greiðslu málskostnaðar verður að mati kærunefndarinnar að skilja svo að farið sé fram á greiðslu þóknunar til umboðsmanns kæranda sem hefur komið fram fyrir hana gagnvart kærunefndinni.

Í 30. gr. lge. kemur fram hvernig háttað skuli greiðslu kostnaðar við málsmeðferð samkvæmt lögunum.  Þar segir að umboðsmaður skuldara beri kostnað við meðferð umsóknar um greiðsluaðlögun og störf umsjónarmanna. Lánardrottnar beri þann kostnað sem á þá falli af meðferð umsóknar um greiðsluaðlögun og framkvæmd hennar. Kostnaður af sölu eignar greiðist af söluandvirði hennar. Í lge. er ekki að finna ákvæði er lúta að kostnaði við málsmeðferð fyrir kærunefnd greiðsluaðlögunarmála. Þannig greina lge. ekki frá því hver beri sérfræðikostnað kæranda, kjósi hann að leita sér aðstoðar utanaðkomandi aðila við málarekstur fyrir kærunefndinni. Þá eru engin ákvæði í lge. er heimila kærunefndinni að ákvarða kæranda kostnað úr hendi þriðja aðila vegna málsmeðferðar fyrir nefndinni. Samkvæmt þessu standa lög ekki til annars en að kærandi verði sjálfur að bera þann kostnað sem hann kann að hafa stofnað til við málsmeðferð fyrir kærunefndinni. Beiðni kæranda um greiðslu málskostnaðar er því hafnað.

Í ljósi þess sem að framan greinir verður að líta svo á að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt  a- lið 1. mgr. 12. gr. lge. og að umboðsmanni skuldara hafi því borið samkvæmt 1. mgr. 15. gr. laganna að fella greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda niður. Samkvæmt öllu framansögðu er hin kærða ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella greiðsluaðlögunarumleitanir kæranda niður staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ

Ákvörðun umboðsmanns skuldara um að fella niður greiðsluaðlögunarumleitanir A er staðfest. Kröfu um málskostnað er hafnað.

Sigríður Ingvarsdóttir

Eggert Óskarsson

Þórhildur Líndal

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum